Lesbók Morgunblaðsins - 05.05.1963, Qupperneq 11
Ferðin mín
SIGRÍÐUR JÓNSDÓTTIR,
Bræ'öraborgarstig 19, segir frá:
Síðastliðið sumar fórum við
þrjár saman í dásamlegt ferða-
lag til Norðurlandanna, sem
ferðaskrifstofan Saga skipu-
lagði fyrir okkur, útvegaði alla
farseðla og hótelherbergi.
Ferðin var öll mjög skemmti
leg og velheppnuð, en eftir-
minnilegastar eru þriggja daga
ferð sem við fórum frá Bergen
til Osló og eins dags ferð frá
Gautaborg til Stokkhólms.
Ferðin hófst 16. júní, með
þvi að við flugum til Bergen.
í>ar dvöldum við í fjóra daga
og fórum í ferðir þar í Jtring
bæði á sjó og landi. Bergen er
falleg borg og hefur upp á ótrú
lega margt að bjóða ferðamönn
um.
Ferðin frá Bergen til. Osló
var hópferð á vegum ferða-
skrifstofunnar Vinge og var
farin í þægilegum langferða-
bíl og leiðsögumaður með.
Fyrsta daginn var ekið inn
hinn fagra Harðangursfjörð og
upp á hálendið og gist á Hótel
Stalheim, sem er nýtísku fjalla
hótel í dásamlega fögru um-
hverfi. í tveim stofum á hótel-
inu ' er komið fyrir á mjög
smekklegan hátt minjasafni úr
byggðinni.
Annan daginn er ekinn hæsti
fjallvegur Noregs, 1000 feta
hæð, og niður að Gudvangen
og farið þaðan á ferjum um
hinn undurfagra Sognfjörð til
Lærdal. Síðan var ekið áfram
að Borgund og þar skoðuð hin
sérkennilega stafakirkja frá
12. öld. Þá var ekið að Fagra-
nesi, þar er fryggðasafn í 200
ára gömul seli. Fólk í þjóð-
búningum tók á móti okkur,
bornir voru fram þjóðarréttir,
dansaðir þjóðdansar, spilað á
gömul hljóðfæri og skoðuð vef-
stofa, þar sem stúlkur sátu ■'úð
vefnað. Síðan var haldið til
Gjövik og gist þar á Strand
Hótel, sem er stórt hótel með
öllum hugsanlegum þægind-
um, sundlaug hvað þá annað.
Þriðja daginn var ekið með-
fram hinu fagra vatni Mjösa til
hinis sögufræga staðar Eidsvoll
og staðurinn skoðaður og það-
an var svo haldið til Osló. Og
þar með var þessari ógleyman-
legu ferð lokið. Öll þjónusta í
þessari ferð var alveg frábær,
eins og reyndar öll ferða-
mannaþjónustan í Noregi.
í Osló vorum við í tvo daga,
fórum tií Bygdöy og skoðuðum
Vikingaskipin, pólarfarið Fram,
Kon-Tiki og önnur 'söfn sem
þar eru, fórum að Frognerset-
eren og Holmenkollen, að ó-
gleymdum hinum undurfagra
Vigelandsgagði. Frá Osló fór-
um við með langferðabíl út
með Oslófirði til Svinesund og
yfir hina sérstæðu hábrú yfir
Iddfjörð til Svíþjóðar og síðan
áfram til Gautaborgar.
Þá er nú komið að hinni ó-
gleymanlegu ferð frá Gauta-
borg til Stokkhólm. Við fór-
um með lest. til Karlsborg og
þar fórum við um borð í Göta-
land, sem er nýtízku skemmti-
siglingaskip með öllum hugsan
legum þægindum. Með þvi
sigldum við yfir Váttern og
áfram upp göta kanal til Ljungs
bro. Landslagið á þessari leið
er svo fagurt að því fá engin
orð lýst, aðra eins fegurð hafði
okkur aldrei dreymt um að
sjá. Fyrir utan hvað það er
bæði fróðlegt og skemmtilegt
að fara um skipastigana. Frá
Ljungsbro förur. við svo með
langferðabíl til Linköping og
þaðan með lest til Stokkholm.
í hinni fögru Stokkholms-
borg vorum við í tvo daga og
nutum þess að skoða hina fjöl-
mörgu fögru lystigarða, fórum
á hinn sérkennilega skemmti-
stað Skansen og fleira.
Frá Stokkhólm fórum við
með lest til Kaupmannahafnar,
dvöldum þar í 10 daga og flug
um síðan heim, með viðkomu
í Glasgow.
- SIGGI SIXPENSARI -
— Ef maður ætti svona bíl, þá gæti maður dáið á tíu bjórstofum
sama kvöldið!
Jóhann Hannesson:
k- x. ÞANKARÚNIR
HOMO HUMANUS
Sú var tíðin að orðið humanitas, mennska, var tízkuorð
meðal hugsuða og rithöfunda, líkt og orðið þróun var
I upphafi vorrar aldar. Ciceró, sá hinn sami sem margir muna
úr skóla, lagði fram sinn mikla skerf til hugsjónasögunnar með
því að móta hugtakið heimspekilega, þótt aðrir hafi komið því
í umferð á undan honum þegar á annarri öld f. Kr.
Hvaða tilgang hafði Ciceró með því að nostra við þetta hug-
tak? Annars vegar er hann að andmæla oflæti og drembilæti
Rómverja (homo Romanus), hins vegar er hann að berjast
gegn því að hugsað sé til framandi þjóða eins og framandi
menn væru ekki mennskir menn, nema Grikkir einir. Hann
viidi ekki sætta sig við að þeir væru kallaðir barbaroi, skræl-
ingjar, villimenn. Þannig myndaðist merkileg mannhyggja
(humanismus) þegar í fornöld, sem þráði víðtækari skilning
og dýpri samúð milli manna og þjóða en áður hafði þekkzt.
Andstöðu mennskunnar var ekki að finna með dýrum né held-
ur með ókunnum þjóðum, heldur í ómennskunni, inhumanitas,
eða andmennskunni, perversio, það er afneitun mennskunn-
ar, mannlegrar hugsunar, siða, tilfinninga og verðmæta. Hvorki
þjóðerni, tunga, stétt né starf veldur ómennsku. heidur mann-
úðarleysið, skilningsleysi á annarra manna högum.
Það gefur auga leið að þessar mennskuhugsjónir greiddu
götu kristninnar í fyllingu tímans, þegar hinn Eini sanni
kom inn í söguna. Helgisagnir mynduðust um bréfasamband
milli Páls postula og Seneca, hins spakvitra stóiska húmanista.
Guð lét af einu blóði allar þjóðir byggja allt yfirborð jarðar-
innar — þessi setning Páls lét ekki illa í eyrum grísk-róm-
verskra hugsuða. Erfiðara var að átta sig á hinu, að hinn Eini
sanni hefði dáið og risið upp frá dauðum. Annar erfiðleiki var
fólginn í því að boðendur hans sneru sér fyrst og fremst að
fyrirlitnum mönnum og gengu oft og einatt fram hjá snilli
spekinganna og vizku vitringanna, með allt annarri vizku en
áður hafði verið viðurkennd í hinni hetjudýrkandi, heiðnu
fornöld: Vizku agapee, vizku kærleikans.
Illa hefir öld vorri haldizt á hugsjón mennskunnar.
Mörgu, sem áður hafði á unnizt, var nú á glæ kastað
víða um lönd. Frændur vorir, sem ætluðu sér að framleiða
ofurmenni, eiga nú, eins og vér, fullt í fangi með að verjast
fávitahætti og ómennsku. Ofdrambið annars vegar og ánauð
manna undir ofurveldi hlutanna hins vegar torvelda hið lífs-
nauðsynlega viðhald mennskunnar. Heilbrigð hugsun kiknar
undir álagi skvaldurs og hávaða. Mennskan kengbognar inn í
glingrið og tildrið þegar menn vilja vera sjálfum sér nægir.
Maðurinn verður sjálfum sér framandi og kyndir heita elda
undir kötlum eigin óhamingju. Kommúnistar og nazistar hafa
gert tilraunir til að stofna hamingjuríki án tillits til mennsk-
unnar, og hefir báðum tekizt illa, en sömu mistök geta átt sér
stað í hvaða veraldarvizku, sem vér kunnum að velja að leið-
arljósi. Spekingar fornaldarinnar spurðu eftir mennsku, og
þeim var gefið svar: Einn sannur maður, maðurinn frá Nazaret.
að fara að safna ís-
lenzkum frímerkjum nú í
dag, má það heita ógerning-
ur að ná fullkomnu (komp-
let) safni frá íslandi, nema
afar mikið fé sé fyrir hendi,
og jafnvel erfitt fyrir því.
Margir sem hafa byrjað söfn
un hin aíðari ár hafa því safn
að einungis frá einhverju á-
kveðnu ári og fram á þennan
dag, t.d. frá 1930, 1940 og það
sem hefur orðið algengast er
að safna fra 1944 eða „lýð-
veldinu" sen. kallað er. Frá
1944 til dagsins í dag hafa
verið gefin út hér á landi
um eða innan við 250 frí-
merki. Safn þessara merkja
mun kosta í dag ónotaðra
frá 1400—1600 krónur fyrir
heildarsafn, en verð þeirra
notaðra er mikið minna.
Slíku safni er tiltölulega
auðvelt að koma saman enn
sem komið er, en það verða
ekki mörg ár þar til mörg
merki úr þessu tímabili
verða iil- eða jafnvel ófáan-
leg nema fyrir mikið verð.
Safni sem þessu er auðvelt
að halda „komplet", því í
hvert sinn sem ný frímerki
eru gefin út þá þarf ekki
annað en muna eftir að
kaupa 1 sett á pósthúsinu.
í hvert sinn sem ný frí-
merki eru gefin út, má sjá
fjölda fólks sem kaupir frí-
merki til að láta stimpla á
útgáfudegi, og notar svoköll-
uð fyrstadagsumslög undir
frímerkin. Það er sjálfsagt
fyrir safnara að fá sér fáein
umslög með slíkum stimpl-
unum, en safnari á ekki að
kaupa slík umslög í tuga og
jafnvel hundraðatali, því ef
hann ætlar að selja safn sitt
þá er mjög vafasamt að hann
fái eins hátt verð fyrir þessi
umslög og fyrir í mörgum til
fellum samskonar frímerki ó
notuð. Það virðist vera að
fólk álíti að það sé að ávaxta
peninga sína á afar hyggileg-
an hátt með því að kaupa
fyrstadagsumslög, en því
miður er slíkt misskilning-
ur. Ef þú safnari góður v'ilt
mynda þér góðan sjóð og
vel ávaxtaðan, þá skalt þú
kaupa 1 örk af hverju frí-
merki þegar það kemur út
og setja þessa örk niður hjá
þér í góða möppu svo hún
ekki skemmist og geyma,
helzt geyma 1 til 2 ár. Ef
frímerkið selst upp í milli- ,
tíðinni, þá skalt þú sjá hvort
þú hefur ekki ávaxtað pen-
ingana þína vel, því slík
merki í örkum er í flestum
tilfellum auðvelt að selja
söfnurum eða frimerkjakaup !
mönnum, þó að hinir sömu
mundu ekki líta við útgáfu- |
dagsumslögum af sömu frí-
merkjum.
/ MRM.
16. tölublað 1963
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS H