Lesbók Morgunblaðsins - 04.09.1955, Blaðsíða 4
•i
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
r 472
Grænlenzka
prestkonan og tvær
ungar stúlkur úr
ferðahópnum.
(Myndin var tekin á
ísafirði).
eftir sjávarfletinum. Fyr en varði og
áður en augað eygði, höfðu þeir hvolft
bátnum og stungið sér á höfuðið ofan
í vatnið eins og sundfugl. Veiðibrellur
sínar sýndu þeir einnig, og var hvort
tveggja jafnt, gleði áhorfenda og á-
nægja Grænlendinga, sem satt að
segja mega vera talsvert hreyknir af
veiðimanna yfirburðum sínum og hin-
um frábærlega vandaða útbúnaði, bæði
á bátunum og sjóklæðum sjálfra
þeirra, sem eru gjörsamlega vatns-
held.
Heimsókn þessi mun lengi í minnum
höfð, engu síður meðal ísfirðinga en
Grænlendinga sjálfra, sem vafalaust
lifa í endurminningu hennar það sem
eftir er ævi, svo hrifnir og þakklátir
voru þeir.
„Eg held þeir vildu helzt verða hér
eftir“, sagði nýlendustjórinn*) um þá,
rétt áður en skipið fór. En þótt svo
yrði eígi, þótt þeir sigldu fleyi „burt
frá strönd og ey“, þá verða endurminn-
ingarnar eftir, og þær ættu að hvetja
oss til þess að bera hlýrri bróðurhug
en verið hefir, til þeirrar nágranna-
þjóðar vorrar, sem öðrum fremur er
afskift ýmsum lífsins gæðum og svift
réttindum, sem aðrar þjóðir telja sín
dýrmætustu hnoss.
ísfirðingar eiga skilið heiður og
þökk fyrir alúð þá og umönnun, er
þeir sýndu grænlenzku gestunum sín-
um í hvívetna, og þá einkanlega mót-
tökunefndin, sem lét sér svo mjög hug-
arhaldið um að gera þeim þessa fáu
dvalardaga á fslandi, ánægjulega og
ógleymanlega.
Allt snerist um „Gustav Holm“
og Eskimóana þessa daga, sem
skipið var í ísafirði. Þeir þóttu ein-
kennilegir yfirlitum, breiðleitir,
smáeygir og brúnir á hörund. Allir
voru þeir lágir vexti og svo fót-
nettir að furðu sætti. En hitt vakti
þó enn meiri athygli hve kurteisir
þeir voru og háttprúðir í allri fram-
göngu. Og ekki voru ísfirðingar að
hneikslast á því, þótt þeim þætti
það dálítið ankannalegt, að konurn-
ar höfðu börn sín í bakpokunum
þegar þær fóru á bíó. Margir ís-
firðingar sóttust eftir kaupum við
þá og fengu hjá þeim til minja skó-
klæði þeirra. Voru þau úr selskinni
og gerð af mesta hagleik, skreytt
margskonar útflúri og allavega lit-
mrn
MHÍ
— - 'Zí' »v -
*>Það var Petersen nýlendustjóri í
Angmagsalik, sem fylgdi þeim norður,
og var þar hjá þeim eitt ár.
Scoresbysund
og nokkur
hluti
byggðarinnar