Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 7

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 7
LESBÓIC MORGUNBLAÐSINS 4S5 2000 'ÁRA AFMÆLIS- SJÓDUR ÍSLANDS í MARSMÁNUÐI árið 1390 ! irtist cítirfarandi frásögn um stoínun hins einkennilegasta sjóðs, sem til er hjer á landi. HINN 3. þ. mán. lögðu fimm menn hjer í Reykjavík í Söfnunarsjóðinn 4 kr. í peningum, með þeim kjörum, að vextir og höfuðstóll skyldi útborgast árið 2874, á 2000 ára afmæli íslands. Standi þessar 4 kr. á vöxtum þessi 984 ár með aðeins 1%, þá verður upp- hæðin orðin samt með vöxtum 89.730 krónur. Sje vextirnir hafðir 2%, verður upp- hæðin orðin 1160 miljónir, en það verða rúmar 16.500 kr. í hlut handa hverju mannsbarni á íslandi, með þeirri fólks- tölu, sem nú er, 70 þúsundum. Sje vextirnir hafðir 3% verður af- mælissjóðurinn 17 biljónir 240 þús. miljónir. Það verða 246 milj. handa hverju mannsbarni á íslandi. Þá gæti hver maður á landinu haft í árstekjur 4900 kr., þó hann ljeti sinn hlut standa á vöxtum með aðeins 2%. Húskofi til þess að geyma í þessar 17 biljónir 240 þús. milj. í gulli í tómum 20 króna peningum, þarf að vera 400 alnir á lengd, 300 alnir á breidd og 20 alnir á hæð. En stæðu nú þessar 4 kr. á vöxtum . allan tímann með 4%, þá verður upp- hæðin orðin á 2000 ára afmæli íslands 288 þúsund og eitt hundrað biljónir. Sú tala lítur svona út: 288.100.000.000.000.000. Með þessu fje mætti hylja alt fsland og alia firði í kring um það með 20 króna peningum röðuðum hverjum við annan, og yrði þó nokkuð afgangs. Þó að landsbúar á íslandi væru þá orðnir 1 miljón á 2000-ára-afmæli lands ins, gæti hvert mannsbarn á landinu samt fengið í hátíðargjöf af sjóði þess- um 288.100 milj. kr. En það er svo mik- ið fje, þetta sem hver fengi í sinn hlut, að meðal-mannsævi entist eigi til að telja 20. partinn af þvi, þó að það væri í eintómum 20-króna-peningum, og maðurinn teldi 720.000 kr. á dag, 60.000 á klukkustundinni. Sjóðstofnun þessi er, eins og gefur að skilja, gerð fremur í gamni en al- vöru. Hvorki sjóðstofnendur nje aðrir munu láta sjer til hugar koma, að sjóð- urinn verði orðinn 288.100 biljónir á 2000 ára afmæli íslands — ekki vegna þess, að framangreindur reikningur muni eigi vera fyllilega rjettur, og því þurfi eigi annað en að frumstofninn, 4 krónurnar, sje reglulega ávaxtaðar með aðeins 4% ásamt rentum og rentu- rentum — heldur af þvi, að það sem fyrir getur komið á jafnlöngu tímabili til tálmunar þrifum og viðgangi sjóðs- ins, er svo ótal margt og mikið, að sje nokkur hlutur vonargripur, þá er það vonin í þessum feiknamikla sjóði eftir 984 ár. Nú er sjóður þessi orðinn um 70 krónur eftir að hafa staðið 60 ár á vöxtum. Vextirnir hafa verið nokkuð misjafnir á þessum tíma, en með nú- verandi vöxtum tvöfaldast sjóðurinn á hverjum 15 árum. Að 100 árum liön- um ætti hann því að vera orðinn um 8000 kr., eftir 200 ár er hann orðinn um 400 þús. kr. og eftir 300 ár er hann orðinn um 53 miljónir. Árið 2874 verð- ur hann því orðinn miklum mun stærri heldur en ráð er fyrir gert í þessari grein. Á hinn bóginn er ekki rjett að tala um gullkrónur í þessu sambandi, því að sjóðurinn mun ólíkiega greidd- ur út í gulli. Þess vegna sjáum vjer nú það einkennilega fyrirbrigði, að sjóð- urinn er raunverulega minni heldur en hann var þegar hann var stofnaður. Kaupmóttur 4 króna stofnsjóðsins var meiri en 70 króna nú. Það sjest t. d. á því, að árið 1890 gátu menn fengið rúmlega 3 kg. af kaffi fyrir 4 krónur, en nú kostar brent og malað kaffi um 40 kr. og fást því tæplega 2 kg. af því fyrir 70 kr. Árið 1890 gátu menn feng- ið 6 flöskur af brennivíni fyrir 4 krón- ur, en nú kostar 1 flaska af brennivíni 85 kr. og hrekkur 70 kr. sjóðurinn því ekki til að kaupa eina flösku. BRIDGE S. D 8 Lf H. 8 5 3 T. Á 8 4 L. K 9 6 4 2 S. Á 10 6 H. K 9 5 4 T. K 6 5 3 L. 8 2 N V A S S. 9 r ' 3 2 H. D G T. D G 10 7 2 L. 10 S. K G 7 H. Á 10 7 T. 9 L. Á D G 5 .: Suður hafði sagt 5 1. • n út. Nú sjer S að hann hefur 3 tapspil, 2 í hjarta og eitt í spaða. Ex hjörtun eru 4 og 3 hjá andstæðingum, þá er spilið tapað. Eina vonin er au V hai. spilað út í 5-lit. C þar sem A lælur gosann, þá getur hann ekki haft kóng- inn; hann hlýtur a^ vera hjá V. En V getur ekki haít drotninguna líka, því að þá hefði han slegið út kóng. Þess vegna er sennuegast að A hafi aðeins 2 hjörtu, gosa og drotningu. Að þessu athuguðu drepur S með hjarta- ás. Þá geta hinir ekki fengið nema einn slag í hjarta. S slær út trompi og síðan spaða og þá er spilið unnið. ^ ðt ðí I Málshæfitir ÞAÐ er einkennilegt að meðal hinna ólíkustu þjóða eru til hinir sömu máls- hættir, eða málshættir sem hafa sömu merkingu. Vjer skulum taka til dæmis islenska málsháttinn: Margt smátt ger- ir eitt stórt. Englendingar segja: Droparnir mynda haf. Frakkar segja: Af ótal stráum byggir fuglinn hreiður siít. Spánverjar segja: Smátt og smátt fyllist mælirinn. Japanar segja: Rykið myndar stórar hæðir. Arabar segja: Eitt og eitt hár mynda skeggið. Þjóðverjar segja: Iðni dropinn holar steininn. Rússar segja: Sínn spottinn úr hverri áttinni nægir í skyrtu.

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.