Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 3

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 3
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS 431 frá því að bíllinn fer um og þar til. skriðan fellur. En nú leiðir jörðin hristinginn einnig til hliðar, og get- ur því grjótið fallið fyrir framan vagninn, en þar i liggur hættan, eins og síðar verður vikið að. En jafnvel þó að ekkert mark sje tekið á þessu, þá ætti þó ekki að nota stóra mann- flutningabíla á Óshlíðinni. Hvert mannslif er dýrt og slysin því átak- anlegri, sem fleiri verða fyrir þeim í einu. Ekki ættu heldur margir bílar að aka samtímis yfir hættusvéeðin, af sömu ástæðu. Þegar bílar þurfa að mætast þar og sjá ekki hvor til ann- ars er þeir koma að hættustaðnum, má hvorugur nema staðar. Vegurinn verður að vera svo breiður og sljettur þarna, að alls engin töf þurfi að verða, er bílarnir aka hvor fram hjá öðrum. Hugsum okkur að skriða felli á milli bílanna rjett áður en þeir mætast og að þeir tefðust eitt augna- l)lik? Nei, það vill víst enginn hugsa þá hugsun til enda. En þurfi nú að breikka veginn, á hættusvæðunum, svo að hann verði ekinn hiklaust, með fullum hraða, hvað sem mætir, þá sjest enn betur sparnaðurinn, sem yrði við það að færa hann niður und- ir Hvanngjánum. Þar niður við sjó mun sjást, úr öruggum stöðum báðum megin frá, til farartækis er kæmi á móti. Þarna þyrfti því aldrei að vera á ferð nema einn bíll í einu og mætti því vegurinn vera miklu mjórri en ella. Allir fararstjórar skyldu gæta þess að aka aldrei inn á hættusvæðin án þcss fyrst að aðgæta vel alt fjallið fyrir ofan, — í myrkri og þoku verð- ur að hlusta, — en sje þá alt kyrt, er varla hætta á því að grjót nái bílnum, þó að það falli síðar, að minsta kosti ekki á Sporhamarsleit- inu nje í Haldsgilinu. Þessa varúð munu flestir áður hafa við haft, hvort sem þeir voru gangandi eða ríðandi. Aðalhættan er sú, að skriðan falli fyrir framan vegfarandann, án þess að eftir sje tekið og að ekið sje blind- andi beint undir voðann. Nú gæti það þó viljað til, enda þótt alt væri með kyrrum kjörum, þegar ekið er inn á hættusvæðið, að skriða felli augnabliki síðar, en svo langt fyrir framan bílinn, að tví- sýnt þætti hvort heldur aka skyldi áfram eða stöðva bílinn og jafnvel yfirgefa hann og hlaupa til baka. — Verður þá bílstjórinn einn, með eld- ingarhraða, að taka ákvörðun Og framkvæma hana á svipaðan hátt og sá er stýrir báti þegar hann þarf að sigla af sjer brotsjó. Ekkert augna- blik má missast. Þegar svona kynni að vilja til' og raunar altaf, verður að hafa það í huga, að grjótið ber oft af beinni leið í niðurfallinu, og er því aldrei hægt að sjá með vissu hvar steinarnif lenda, þegar þeir eru komnir alla leið niður. ÓSHLÍÐIN hefur verið alfaravegur gangandi manna síðan land bygðist og reiðvegur að minsta kosti um 70 —80 ára bil; áður var reiðvegurinn um Hnífsdalsheiði. Hafa því senni- lega orðið þar einhver slys á öllu þessu tímabili. Það gætu og verið til heimildir um það, þó að þær sjeu ekki nærtækar. Hinsvegar er víst um þrjú dauðaslys er urðu þar á nítjándu öldinni. Þar fórst í snjóflóði 17. febr. 1817, sjera Hákon Jónsson, prófastur að Eyri (ísafirði). Ekki er getið um aðra, er með honum hafi farist eða komist af. Kristján Þorbjarnarson, frá Selárdal í Súgandafirði, 19 ára gamall, fórst þarna 8. mars 1880, lika í snjóflóði. Unglingur frá Bol- ungarvík, Set Guðmundsson að nafni, týndist á Óshlíð haustið 1885. Var álitið að hann hefði farið í sjóinn, líkið fanst ekki. Fjörutíu og þremur árum síðar, eða 11. febrúar 1928, far- ast svo tvær konur og tveir karl- menn í snjóflóði á hlíðinni. Fimti maðurinn í förinni komst af, og var því til frásagnar um slysið. Þetta fólk lagði á hlíðina i náttmyrkri og ófærð, með snjóflóðahættu yfirvoí- andí. Það settist niður til að hvíla sig í ’ hættulegasta staðnum undir Hvanngjánum, en skriðan fell yíir það nokkrum augnablikum eftir að það stóð upp. Fyrir tæpum 60 árum fell grjót- skriða mikil á Sporhamarsleitinu yf- ir mann er var þar einn á ferð ríð- andi. Vegurinn var þá undir leitinu, en þar var altaf ógreiðfært í fjöru- grjótinu. Undankomu var því ekki auðið. Maðurinn tók þvi það ráð að fara af baki og verjast í sjálfri skrið- unni, og tókst það svo vel, að hann slapp með fremur lítilsháttar meiðsli á fæti. Hestinn sakaði hvcrgi. Slysin tvö á Óshlíðinni í sumar, eru því fyrstu og einu alvarlegu grjótskriðuslysin, sem þar hafa orðið svo vitað sje, svo langt aftur í tím- ann er sagnir ná og heimildir greina. Má þó vera, að mjer, sem þetta rita, hafi yfir eitthvað skotist. En það mun þó óhætt að fullyrða, að allar þær sögur, sem gengið hafa manna á milli og jafnvel komist á prent, um mjög tíð og margskonar slys á Óshlíð, sjeu úr lausu lofti gripnar, þær eru að minsta kosti órökstuddar. En viti einhver um fleiri slys þarna en hjer hafa verið tilgreind, væri gott að fá upplýsingar um það. EKKI mun það kunnugt, að skriðu- föllin á Óshlíð hafi aftrað nokkrum manni að fara þar um, ef með þurfti. Hliðina hafa gengið og riðið þúsundir manna og kvenna, þ. á. m. prestar, læknar og sýslumenn, og oft einir á ferð, eins og t. d. sjera Þorvaldur Jónsson, er kom vanalegast ríðandi

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.