Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 2

Lesbók Morgunblaðsins - 23.09.1951, Blaðsíða 2
430 LESBÓK MORGUNBLAÐSINS margar og margvíslegar, t. d. ógæti- legur akstur, bilanir á farartækjum o. fl., en um þetta eða þesskonar verður ekki rætt hjer. Þá er hál,ka á vegum hættuleg og ekki hvað síst yfir hengiflugi, eins og víða er í Oshlíðinni. Við þeirri hættu munu ekki önnur ráð, en aðgæsla og traust- ' ur útbúnaður. Mætti þó tala um færslu vegarins þarna oe verður vik- ið að því lítilsháttar síðar. Hættum þeim á Óshlíðinni, sem aðallega verður rætt um hjer, má • skipta í fernt: Snjóflóð, brim. aur- skriður og steinkast eða grjótskriður. Er þó eiri hættan enn, sem ekki má gleyma, Og ér það hrun á sjálfum veginum, þar sem snarbratt er og r verður líka minst á það síðar. Þegar snjóflóðahættan vofir yfir, r er vegurinn ekki akfær oe þarf því ekki að ræða um þessa hættu í sam- ’ bandi við ökuferðir um hlíðina. Brim gengur einstaka sinnum upp í kletta á tveimur eða þremur stöð- um, en vegurinn er nú fyrir ofan alla þessa kletta, og á meðan svo er, er engin bein hætta af briminu. Aurskriður falla ekki mjög hratt niður og ná oftast yfir mjótt svæði eða renna í þröngum giljum. Veg- farendum þarf því ekki að vera búin hætta áf þeim, ef einhver aðgæsla er við höfð. Steinkastið, frá fjallinu eða grjót- skriðurnar eru því eina hættan, sem | óttast þarf og varast, að sumarlagi, á þessum vegi. Þessar skriður byrja oftast með því, að steinn eða steinar, smærri j eða stærri, losna úr hinum þver- hnýpta hamravegg efst í fjallinu og fara í loftinu niður í hlíðina. Lendi þeir þar í lausu grjóti, kemst það á hreyfingu og tekur að velta niður, eykur við sig og dreifir sjer og get- ur því skriðan náð yfir nokkurra 1 metratuga svæði neðst. Stundum taka flugsteinarnir ekkert með sjer og fara þá jafnan í loftköstum alla leið niður í f jöru. Margir munu ætla að öll Óshlíðin sje jafn hættuleg, þar sem hamrarn- 1 ir hanga yfir, en svo er ekki. Mestur hluti leiðarinnar er ekki hættulegur vegna grjóthruns. Aðal hættusvæðin á Óshlíðinni eru þrjú: Sporhamarsleitið, Haldsgilið i og undir Hvanngjánum. Sporhamarsleitið er rjett fyrir utan Kálfadal (þar varð slysið 8. júlí s. 1.). Eru skriðuföll þar tíð og geta eins komið fyrir í þurru veðri um hásumar. Eru þarna háir hamr- ar yfir, en hlíðin upp að klettunum er líka nokkuð há og ekki mjög snar- brött. Er því gott að sjá til fjallsins þarna og þessvegna hægra um varn- ir. Hið sífelda grjóthrun þarna, er um aldirnar búið að mynda mikla bun^u eða leiti, sem auðvitað er hæst og breiðast neðst. Leitið er snarbratt neðst vegna þess að sjór- inn brýtur framan af því. í gamla daga var reiðvegurinn í fjörunni undir leitinu, en var færður í seinni tíð upp á hábunguna, af því að hann stóð svo illa fyrir neðan. Breidd leitis- ins eða lengd vegarins yfir þetta hættusvæði mun vera um 500 metrar og ætti þá bíll að vera um hálfa mínútu eða vel það að renna þar yfir. Haldsgilið er nokkru fvrir innan Kálfadal. Falla þar oft bæði aur- og griótskriður. En gilið er svo mjótt, að hættulitið er, ef enginn steinn er á ferðinni, þegar farið er inn í gilið. Hvanngjárnar eru upDi vfir mið- hlíðinni á milli Ófæru o<r Steinsófæru. Þar fjell skriðan, er olli skemmdum og meiðslum 7. ágúst s.l. Þar er Svunta. Er það grjótbelti, sem nær alla leið á milli hamra og fjöru, er aldrei grær á gras vegna rennslisins. Þarna er svo snarbratt að ofanföllin spýtast niður í fjöru. en haustbrim- in jafna svo úr. Hefir því engin bunga myndast þarna, enda eru skriðuföllin miklu fátíðari þar en á Sporhamarsleitinu. En þarna er líka miklu verra um varnir, m. a. vegna þess að vegurinn liggur þar svo hátt, að örstutt er upn að klettunum. Yrði miklu hægra að verjast þarna. ef veg- urinn væri færður alveg niður að sjó og lagður undir eða fyrir framan ófærurnar, sem eru takmörk þessa hættusvæðis, sín hvoru megin. Væri vegurinn þar við sióinn, sæist betur til hamranna, grjótið þvrfti lengri tíma til þess að ná til vegarins, hálkuhætta hyrfi, en hún mu.n vera mikil þarna, og þá þyrfti ekki að óttast þá hættuna, sem ef til vill er alvarlegust á þessum vegarkafla, að vegurinn eða hluti af honum hlaupi fram eða hrynji. Gæti það, ekki hvað síst, komið fyrir, er bílar, einkum stórir og þungir, væru á ferð, og væri þá stórslys óumflýjanlegt. Það gæti blátt áfram borgað sig fjárhagslega að færa veginn. og verður vikið að því betur síðar. Er bó kostnaðarhlið- in ekki umtalsverð þegar um líf- öryggi er að ræða. Hættu vegna steinkasts úr siálfum ófæruklettun- um mundi ekki þurfa að óttast bó að vegurínn væri undir beim. Ekki heldur brimið, nema frámunalegur glannaskapur eða gáleysi væri við haft. Það mun vera álit ma^gra kunn- u°ra, að veeurinn um Óshlíð hpfði allsstaðar átt að vera eins nærri sjón- um og unnt var. Undír þessa skoðun renna þær sömu stoðir, er nefndar voru um hættusvæðið undir Hvann- giánum o. m. fl. Þ. á. m. hefði veg- urinn verðið lengur akfær, ein^um á haustin. Bakkinn fyrir ofan veg- inn víða miklu læ«ri o» því minna hrun úr honum. Þá hefði og dreeið úr beirri hættu, sem oft hendir og alltaf vofir vfir, að ekið sie útaf veg- inum, en hvergi er sú hætta voða- leeri en hátt unni í fiöHum. Loks þarf ekki að eera litið úr því, að margir eru lofthræddir og iafnvel bílhræddir, þeir hafa bví litla ánægju af þvi að aka á glæfralegum veei. Nákunnugur maður, sem lika hefir þekkingu á mannvirkjagerð. telur að vegurinn hefði síst orðið dvrari bó að hann hefði verið lagður með sjón- um. MENN töldu áður, að skriðuföll á Óshlíð og Stigahlíð, og fleiri fjöllum þar vestra, væru tíðari þegar stór brim voru. Sje þetta rjett, þá virðist ekki til önnur skýring á því en sú að brimið hristi fjöllin. Talið hefur og verið, að koma megi af stað snjóflóði með því að hóa mikið í námunda við hengjuna. Vit.anlegt er einnig, að jarðskjálfti veldur grjóthruni úr fjöllum og að iörðin skelfur þar sem þung ökutæki fara um, svo að hús hristast. Það er því ekki ólíklegt, að þungir bílar á Óshlíðarvegi geti valdið losi á stein- utn í hömrunum fyrir ofan. Titring- urinn frá þeim nær vafalaust alla leið upp á fjallsbrún. Hann mun ber- ast með svinuðum hraða og hljóðið og ættu þá að líða um tvaer sekúndur

x

Lesbók Morgunblaðsins

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Lesbók Morgunblaðsins
https://timarit.is/publication/288

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.