Lesbók Morgunblaðsins - 28.01.1945, Side 10
50
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
föður Jarðþrfiðar, on synir þoirra
voru þoir biskuparnir: Gísli Þor-
láksson á Hólum og Þórður Þor-
láksson í Skálholti. Er Kristín sú
eina íslonska kona, som sjált’ er
biskupsekkja, on sjer tvo syni sína
skipa biskupsstólana báða. Þar að
auki var móðurbróðir Jarþrúðar,
Yísi-Gísli, á næstu grösum, í Skál-
holti. Einnig voru margir aðrir,
sem auðvitað hofðu komið í veg fyr
ir þennnn ráðahag, ef þeir hefðu
ekki verið fullkomlega ánægðir með
Magnús.
Ilákon, faðir Jarþrúðar dó aðoins
39 ára gamall, og þótti verið hafa
mikilmenni, spakur í lund og auð-
maður mikill. En gáfur þótti hann
ekki hafa til jafns við Vigfús bróð-
ir sinn, en var þó maður vel lærður.
Það er því gefið mál að þau Magnús
og Jarþrúður hafa okki byrjað neinn
hokurbúskap í Bræðratungu, þar
sem jaf'n mikil auðsöfnun hafði
verið á allar hliðar. Ilvorki varð
þó hjónaband þeirra Magnúsar
langvint nje hamingjusríkt. Fjög-
ur börn þeirra fæddust andvana og
sjálf dó Jarþrúður af barnsförum,
eftir 6 ára hjónaband. Svo ekki
áttu þau erfing.ja. Magnús tók sjer
þessa harma mjög nærri, og vafa
samt að hann hafi nokkurtíma náð
sjer að fullu eftir þetta áfall.
Þó að Magnús hafi harmað mjög
missi konu sinnar og barna, hefir
honum verið ljóst, að lífið heldur
áfram og gerir sínar kröfur, því
að þremur árum liðnum giftist
hann að nvju og vegur enn í sama
kn.jerunn, ef svo mætti segja. En
seinni kona hans var Þórdís, dóttir
Jóns Vigfússonar (Bauka .Tóns)
Ilólabiskups. Voru þau Jón biskup
og Jarþrúður fyrri kona Magnúsar,
bræðrabörn. Þórdís var þá að heita
má barn að aldri, aðeins 16 ára
gömul, en Magnús 20 árum eldri.
Ekki er vafi á því, að Magnús
hefir verið mikils metinn maður er
þetta brúðkaup fór fram. Því að
öðrum kosti hefði hunn ekki feng-
ið þennan ráðahag. Geta má þess,
að auk alls annars, voru niðjar
Gísla lögmanns Hákonarsonar, fríð-
leiksfólk, og mætti því ætla að Þór-
dís hafi einnig verið fríð kona.
Þetta brúðkaup hefir líka vakið
athygli, sem Ijóst má vera af því,
að það er hið eina brúðkaup sem
Fitjaannáll getnr um það ár 1689.
Brúðkaupið fór fram að Borg á
Mýrum. en þar var Þórdís hjá Sal-
vöru föðursystii' sihni, ekk.ju Sæ-
mundar prófasts Oddssonar, í Hítar-
dal móðurbróður Magnúsar. Enginn
vafi er á því að þetta brúðkaup,
hefir verið stofnsett með vitund og
vilja Jóns Ilólabiskups. Hann var
maður svo óvæginn og ráðríkur,
að áreiðanlegt er að þeir sem þektu
hann best, hefðu ekki dirfst að
ganga á móti vil.ja hans, í svo mik-
ilsvarðandí máli. Fullvíst verður og
að telja að Jón biskup hafi s.jálfur
setið brúðkaupið.því hanti tor ein-
mitt utan með Grundarfjarðar-
skipi þá um sumarið, vegna mála-
vasturs síns.
Um Jón biskup er ástæðulaust
að vera margorður. I lanv var yngsti
sonur Vigfúsar sýslumanns Gísla-
sonar lögmanns Ilákonarsonar. Jón
biskup var gáfumaðnr, sem Vig-
fús faðir hans. En samkvæmt heim-
ildum, var Vigfús talinn fljótskarp-
ur og mjög vel gáfaður; hann út-
skrifaðist úr SkálholtSskóla 16 ára
gamall og um tvítugt hafði hann
lokið háskólanámi í Danmörku og
Ilollandi, en þangað hefir hann tví-
mælalaust leitað til montunar, að'
áeggjan Vísa-Gísla, sem sjálfur
hafði hlotið hina bestu mentun þar
í landi. Móðir Jóns biskups var
einnig nafnfræg kona, Katrín Er-
lendsdóttir á Stórólfshvoli. Miklurn
ÖrðugleikUm átti hann í bæði sem
sýslumaður og biskup, og margs-
sonar málaþrasi, sem ekki verður
rakið hjer.
Itona .Tótis biskupS, en móðir
Þórdísar var Guðríður dóttir sjera
Þórðar Jónssoijar og konu hans,
llelgu dóttir Ama lögmanns Odds-
sonar. Sjera Þórður var einn hinna
lærðustu Islendinga á sinni tíð, með
þeim Vísa-Gísla og Brynjólfi bisk-
upi. En Brynjólfur vildi, að sjera
Þórður yrði Skálholtsbiskup, þeg-
ar honum var s.jálfum þröngvað í
það embætti.
Sennilegt er að Þórdís, hin korn-
unga biskupsdóttir, hafi ekki verið
vel undir það búin, að takast á
hendur stjórn inrian stokks á stóru
sveitaheimili, sem varð að standa
efnalega undir sjer sjálft, en hafði
engar embættistekjur til búdrýg-
inda. Líklegt er það einnig að
henni hafi.brugðið svo til ættevn-
is síns, að hún hafi verið lundstór.
Ennfremur er ekki ósennilegt, að
þegar fram í sótti hafi henni, sem
sjálf var af og nátengd göfugustu
valdaættum landsins, þótt háðung
að því, að giftast embættislausum
bóndamanni, ]ió á höfuðbóli væri.
Einkum gæti }iað hafa komið til
greina, eftir að Sigríður (yngri)
systir hennar, var orðin biskupsfrú
í Skálholti, og bróðir hennar skóla-
meistari þar. En Jón Vídalín varð
fekálholtsbiskup 1698, og giftist Sig-
ríoi ári seinna. En eftir það virðist
sem heimilisraunir Magnúsar byrji,
eða að minstakosti ágerist að mun.
Meira.
Smælki
— Jeg held þú drekkir of mikið,
Appollo.
— Það er ekki jeg, heldur annar
maður. Á hverjuni morgni, þegar
jeg vakna, þarf jeg endilega að
fá mjer einn lítinn, og strax og
það er búið, verð jeg allur annar
maður^ og það er hann, sem er f\
þessu fylliríi alla daga.