Lesbók Morgunblaðsins - 14.01.1934, Blaðsíða 1
2. tölublað. Sunnudaginn 14. janúar 1934. IX. árgangur.
i« h f
1 ■ 1 1 ■ - ----- - r. 11 .=s» ■ - 1 ■1 ■■■■'■'' ■ "" ■
Alfred Nobel
Friðarvinurinn
§em framleiddi drápstoekin.
Bernskuár í Svíþjóð —
æskuár í Rússlandi og Ameríku.
Stofnandi Nobelssjóðsins, sem
helstu vísindamönnum, skáldum og
friðarvinum, eru árlega veitt verð-
laun úr, skapari dynamitsins,
reyklausa púðursins og ótal
margra síður kunnra efna, Alfred
Nobel, var fæddur í Stokkhólmi 21.
október 1H33. Emanuel Nobel, fað-
ir hans, var húsameistari, en sökti
sjer þegar leið á æfina, niður í
efnafræði, einkum þá grein henn-
ar, sem sonur hans varð síðar
heimsfrægur maður fyrir og milj-
ónamæringur, sem sje sprengiefna-
fræðina. Hafði Emanuel Nobel far-
ið víða og aflað sjer reynslu, sem
honum tókst að gera sjer arðbæra.
Þegar Alfred var fjögra ára flutt-
ist faðir hans til Petrograd, en
þaðan hafði hann fengið tilhoð
um stöðu hjá stjórninni, sem
gjarna vildi nota sjer kunnáttu
hans í hergagnasmíði. í Petrograd
gerði Nobel eldri fyrirmynd að
tundurkeyti, sem stjórnin keypti
af honum fyrir 25.000 rúblur og
fyrir þetta fje kom hann sjer upp
vjelsmiðju í borginni og fluttist
fjölskylda hans þá til hans. Var
Álfred þá níu ára gamall og er
talið, að þessi vistaskifti hafi mót-
að skap drengsins og alið í hon-
um heimsborgaraeðli það, sem
jafnan loddi við hann síðan. En
annars segir fátt af bernsku No-
bels annað en það, að hann fylgd-
ist meið áhuga með starfi föður
síns og atvinnu, sem þandist út á
næstu árum, svo að úr vjelsmiðj-
unni varð stór verksmiðja er fram
leiddi tundurskeyti og tundurdufl.
Alfred Nobel hætti skólanámi
16 ára og fór þá að vinna hjá
föður sínum. En hann sendi hann
von bráðar til Ameríku, til »hins
fræga sænska hugvitsmanns John
Ericsson og þar fullnumaðist hann
í vjelaverkfræði. Kunnátta hans
kom í góðar þarfir er hann kom
aftur til Petrograd rúmlega tví-
tugur, því að þá unnu um þúsund
manns í verksmiðju föður hans,
og eingöngu að hergagnagerð. —
Áttu Rússar þá í styrjöld við
Tyrki og nokkru síðar við Frakka
og Bre.ta.
Þegar Nobel bjargaði
Petrograd.
A.uk þess að framleiða hergögn
hafði Emanuel Nobel verið falið
að verja Petrograd gegn enska