Lesbók Morgunblaðsins - 27.01.1929, Qupperneq 8
32
LESBÓK MORGUNBLAÐSINS
Smælki.
Konur ætla að fljúga yfir At-
lantshaf. Tvær amerískar konur,
ungfrú Mildred Johnson (hún er
norsk að ætterni) og frú Estlxer
Warnier ætla að freista þess í fe-
brúar að fljúga frá Evrópu til
Ameríku. Ætla þær að leggja leið
sína um Azoreyjar. Hafa þær pant-
að þriggja hreyfla flugvjel í
Þýskalandi til fararinnar.
Nýtísku Maríumessa. 1 borginni
Grawfordsville í ríkinu Indiana í
Bandaríkjunum, er árlega haldin
einkennileg samkunda. Þar mega
ekki aðrir vera en konur, og þær
konur einar, sem Maríunafn bera.
Allar þessar Maríur koma saman
á fund úti í skógi, sem er rjett
hjá borginni, og er þar oft glatt
á hjalla. í sumar voru þar saman
komnar 1246 Maríur. Þar var val-
in sjerstök fegurðardrotning úr
hópnum, og einnig voru veitt heið-
ursverðlaun hinni feitustu Maríu,
mögrustu Maríu, stærstu Maríu og
minstu Maríu. Ennfremur fjekk
sú María verðlaun, er lengst liafði
ferðast um æfina og sjerstök verð-
laun fjekk ein María fyrir það, að
bæði mamma liennar og amma
liöfðu heitið sama nafni.
Miljónamæringurinn Thomas
Ryan í New York er nýlega lát-
inn. Hann ljet eftir sig 375 miljón-
ir dollara. Einkasonúr lians bjóst
við því að erfa öll þessi auðæfi,
en það var nú eitthvað annað, því
að þegar erfðaskráin var opnuð,
kom í ljós, að gamli maðurinn arf-
leiddi hann aðeins að tveimur
skyrtuhnöppum. Hann hefndi sín
þannig á syninum fyrir það, að
sonurinn hafði sett sig harðlega
upp á móti því, að faðir sinn gift-
ist aftur fáum dögum eftir að
hann hafði mist fyrri konu sína.
Húsfreyja: Þetta er sannarlega
lítið verð fyrir herbergið, þótt
ekkert annað sje tekið til greina
en útsýnið.
Tilvonandi leigjandi: Ef þjer
viljið láta mig fá það fyrir lielm-
iijgi minna, þá skal jeg skuldbinda
mig til þess að líta aldrei út llm
giuggann!
Útför Nikulásar stórfursta. í tilefni af útför Nikulásar stór-
fursta, sem var yfirhershöfðingi Rússa í stríðinu mikla, var hald-
in sorgarhátíð mikil í París. Er þessi mynd tekin þá, og sjest
fremst á henni Millerand, fyrverandi forseti.
Jón er allur hruflaður í framan
og með glóðarauga.
Vinur hans: Hvaða óskÖp eru að
sjá þig maður? Á jeg ekki að
hjálpa þjer að komast heim?
Jón: Nei, þakka þjer fyrir, jeg
kem að heiman!
— Hvers vegua ertu að grá.ta,
drengur minnf
—llhú, mamma hefir drekt ö!l-
um ketlingunum ....
— Það var illa gert af henni.
—- Já, hún liafði lofað ])ví að
jeg skyldi fá að drekkja þeim.
100 ára varð ensk kona, Har-
riette Bartee, fyrir skömmu, og
þykir það merkilegt, að hún veit
enn ekki um heimsstyrjöldina
miklu. Þegar stríðið skall á 1914
var hún hættulega veik, svo að
ættingjar hennar þorðu ékki að
segja henni frá stríðinu. Tókst'
þeim að halda því algerlega leyndu
fyrir henni, og Veit hún ekki enn
í dag um þennan ógurlegasta liild-
arleik, sem háður hefir verið í
heiminum.
Sonur Sarah Bernhards, leik-
konunnar frægu, er nýlega dáinn.
Hann hjet Maurice Bernhardt og
var forstjóri leikhúss þess í París,
sem kennir sig við móður hans.
Stór gistihús. f Berlín er nú
verið að reisa tvö stór gistihús,
annað í miðri borginni og hitt í
Berlín W. í þessum gistihúsum
verða 1000 og 1200 gestaherbergi
og í kjöllurunum verða gerðir
stórir' blómgarðar, eins og í May-
fair í Lundúnum.
Jlann: Láttu mig fá hringinn,
úr því að þú hefir slitið trúlofun
okkar.
ITún: Það dettur mjer ekki í
hug. Jeg hefi ekkert út á hringinn
að setja.
í»afold*rprentsmi9j» h.f.