Þjóðviljinn - 07.07.1982, Síða 14
14 SIÐA — ÞJ6ÐV1LJINN Miðyilfudagur 7. .júli 1982
S.A.T.T. samband alþýðutón-
skálda og tónlistarmanna, er að
fara af stað á nýjan leik með svo-
nefnd SATT-kvöld og veröa fyrstu
tónleikarnir í Klúbbnum i kvöld
kl. 10.00 og koma þar fram ýmsar
þekktar rokk-hljómsveitir og pop-
tónlistarmcnn
Baraflokkurinn frá Akureyri
verður meðal þeirra, en þeir eru
nýbúnir að gefa út hljómplötu og
þykja frábærir tónlistamenn.
Þrumuvagninn verður með
þrumu rokk sem svikur engan,
ásamt Tappa Tikarrass sem
skjóta öllum ref fyrir rass.
Allir sem hafa áhuga fyrir lif-
andi tónlist og tónlistarflutningi
eru velkomnir, og ættu ekki að
láta þessa tónleika fram hjá sér
fara.
Y f irlýsiitg
frá’78
Samtökin ’78 félag lesbia og
homma á Islandi, hafa beðið
blaðið fyrir yfirlýsingu vegna
myndbirtinga og frásagnar i sið-
asta tölublaði Samúels, en þar er
sagt frá mannfagnaði samtak-
anna i Manhattan i des. sl. Yfir-
lýsingin er eftirfarandi:
Þaö skal upplýst, að þeir Guð-
mundur Sveinbjörnsson, Efsta-
sundi 75, og Veturliði Guðnason,
Blönduhlið 25, sem hafa með
óheimilli, opinberri myndbirtingu
vegið á svivirðilegan hátt að
starfsgrundvelli félagsins, hafa
ekki tekið annan þátt i störfum
þess, en að sækja dansleik i
desember 1981, og annar þeirra
aðalfund i janúar 1982.
Félagsmenn, aðrir sem sækja
fundi og samkomur hjá félaginu,
og þeir sem hafa samband við það
i simatima eða á annan hátt,
mega treysta þvi, að trúnaður við
þá verður ekki rofinn af hálfu
neins, sem er virkur i starfi
félagsins.
Undir rita: Guðni Baldursson og
Lára Martin f.h. stjórnar sam-
takanna, og Helgi Magnússon,
umsjónarmaður simatima.
Námskeið í
skyndihjálp
M
Itauða-krossdcild Kópavogs
gefur bæjarbdum og öðrum sem
hafa áhuga kost á námskeiði f al-
mennri skyndihjálp.
Námskeiðið verður i Vfghóla-
skóla og hefst miðvikudaginn 7,
júlí kl. 20.00 Þaö verður 5 kvöld
samtals 12 timar. Þátttaka til-
kynnist I sima 41382 kl. 19—21
.þann 6. júli.
A námskeiöinu verður reynt að
veita sem mesta verklega þjálfun
með raunhæfum verkefnum.
Einnig verða sýndar kvikmyndir
um blástursaðferðina og áhrif
kulda á mannslikamann.
Þess má geta, að námskeiðinu
lýkur meö verkefni, sem hægt er
aðfá metiö i fjölbrautaskólum og
iðnskólum.
— mhg
S.A.T.T.,hefurþaðmarkmið að
efla lifandi tónlistarflutning og
hefur f þvi sambandi farið af stað
með byggingarhappdrætti til öfl-
unar fjár til þess að koma upp
stað i höfuðborginni fyrir lifandi
tónlist. Happdrættismiðar verða
þvi boðnir áhugafólki sem sækja
tónleikana i kvöld. en kynnir
kvöldsins verður Þorgeir Ast-
valdsson.
Kaupf élagsstj óri
Starf kaupfélagsstjóra við Kaupfélag Ár-
nesinga er laust til umsóknar. Umsóknar-
frestur er til 31. þessa mánaðar.
Starfið veitist frá hausti komanda eða
siðar eftir nánara samkomulagi við stjórn
félagsins.
Skriflegar umsóknir með upplýsingum
um menntun og fyrri störf, sendist for-
manni félagsins Þórarni Sigurjónssyni,
Laugardældum eða Baldvini Einarssyni,
starfsmannastjóra Sambandsins, er veita
nánari upplýsingar.
@ Kaupfélag Árnesinga
Selfossi
Blikkiðjan
Asgaröi 7, Garðabæ
Önnumst þakrennusmiði og
uppsetningu — ennfremur
hverskonar biikksmíði.
Gerum föst verðtilboð
SÍMI 53468
Bifvélavlrkjar
öskum eftir að ráða nú þegar bifvélavirkja á vörubila- og
tækjaverkstæði vort að Höfðabakka 9.
Upplýsingar hjá verkstjóra á staðnum.
@ VÉLADEILD
SAMBANDSINS
Starf ráðunauts
í fóðurverkun og fóðrun
Búnaðarfélag íslands óskar að ráða til sin
raáðunaut i fóðurverkun og fóðrun.
Umsóknir um starfið sendist til búnaðar-
málastjóra, sem veitir nánari upplýsingar
varðandi starfið ef óskaðer.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst 1982.
Swiiarferö
Alþýðubandalagsins á Austurlandi 24. og 25.
júli 1982
að Eyjabökkum
og SnæfeUi
Ferðaáætiun:
Farið verður frá Neskaupstað á laugardagsmorgun 24.
júli kl.8.30. Viðkoma á Eskifiröi og Reyöarfiröi. Þar slást
þátttakendur af Suðurfjörðunum I hópinn. Brottför frá
Egilsstöðum um kl.10.30. Hádegisnesti snætt á Hallorms-
Gist I Snæfellsskála (i svefnpokum). Gengið á fjalliö.
Skoðunarferð um Eyjabakka og umhverfis Snæfell.
Heimkoma seinnipart sunnudags.
Nauðsynlegur útbúnaður:
Nesti og nýir skór, hlýr göngufatnaður, svefnpoki og
fGröðskflp
Þátttökugjald áætlað 300 kr. fyrir fullorna en 100 kr.
fyrir börn.
Þátttaka tilkynnist til:
Einars Más .Sigurðarsonar, Neskaupstað s. 7625
Sveins Jónssonar, Egilsstöðum s.1622
Kjördæmisráö AB
Austurlandi
Af Biskupstungnaafrétti.
Sumarferð Alþýðubandalagsins i Kópavogi
Sumarferð Alþýðubandalagsins I Kópavogi verður farin dagana 17.
og 18. júlí nk. Farin verður ný leið, svokallaöur „linuvegur”. Liggur
hann að Kjalvegi, sunnan Sandvatns og Langjökuls, en norðan Hlöðu-
fells, niöur i Borgarfjarðardali.
Nánar auglýst siðar.
Upplýsingar veita Lovisa i sima 41279 og Þórunn i sima 41962.
Ráðstefna um skólamál, Hallormsstað 6.-8. ágúst.
Tilefni ráðstefnunnar: Þörfin fyrir mótun skólastefnu AB i kjördæm-
um, sveitarstjórnum og á landsmælikvarða.
Markmiö ráðstefnunnar: ,,að taka eittlitið skref fram á viö”.
I. Upplýsingamiðlun til félaga um skólakerfið og stöðu skólamála.
II. Umræður: hver/hvað mótar skólastarfið?
III. Undirbúningur að frekara starfi að stefnumótun i skólamálum.
Framsöguerindi: „Valdsvið skólastjóra, fræöslustjóra og ráðuneyt-
is”, „Kjaramál kennara”, „Skipan framhaldsskólans”, „Sálfræðideild
skóla”, „Starfssvið og valdssvið kennarans, nemenda, foreldra”, „Hin
dulda námsskrá”, „Tengsl menntunar og atvinnuuppbyggingar”.
Höpstarf, umræöur, kvöldvaka fyrir alla fjöiskylduna.
Þáttaka tilkynnist til:
Gerðar óskarsdóttur, Neskaupstað, s. 7616/7285,
Berit Johnsen, Hallormsstað, s. um Hallormsstað.
Kjördæmisráð Alþýðubandalagsins
á Austurlandi.
Keflvikingar — Suðurnesjamenn
Fimmtudagskvöldið 8. júli verður haldinn fundur i Tjarnarlundi um
baráttuna gegn gereyðingárvopnum og um utanrikismál. Framsögu-
maður Dr. Ólafur Ragnar Grimsson. '
Fundurinn hefst stundvislega kl. 20.30 Alþýðubandalagsmenn eru ein-
dregið kvattir til að mæta og taka með sér gesti.
Aiþýöubandalagsfélag
Keflavikur.
Þrumuvagninn á fullri ferð
SATT tekur upp þráðinn að nýju
AL^VÐUBANDALAGIÐ