Þjóðviljinn - 07.07.1982, Side 9
8 SÍÐA — ÞJÓÐVILJINN Miðvikudagur 7. júli 1982
Miðvikudagur 7. júii 1982 ÞJÓÐVILJINN — StÐA 9
Sigurður Hlöðversson tæknifræðingur sýnir blm. verksmiðjuhúsnæði Húseininga hf.
myndir — FRI
Húseiningar h/f á Siglufirði
áttu tiu ára afmæli 2. júli s.l. og
afhentu samtimis þrjúhundrað-
asta einingarhúsið frá verksmiðj-
unni siðan hún var stofnuð. Af þvi
tiJefni var blaðamönnum boðið
ntfrður til að kynna sér starfsemi
og rekstur fyrirtækisins og eru
þessar linur afraksturinn af
þeirriför.
Hvatinn að stofnun Húseininga
h/f fyrir 10 árum var fyrst og
fremst sá afturkippur sem kom i
atvinnulif Siglufjarðar eftir hvarf
sildarinnar. Mönnum með hug-
myndir um ný atvinnufyrirtæki
var þvi vel tekið á Siglufirði. A
staðnum var fyrir hendi hentugt
atvinnuhúsnæði, byggðastefna
var að verða viðurkennt hugtak
meðal stjórnmálamanna og á
staðnum bjuggu verkefnalitlir
iðnaðarmenn. Þessar hagstæðu
aðstæður, ásamt frumkvæði Haf-
steins ólafssonar byggingar-
meistara úr Reykjavik og fleiri
góðra manna, gerðu stofnun Hús-
eininga h /f að veruleika.
Markmið fyrirtækisins i upp-
hafi var tviþætt:að skapa ný at-
vinnutækifæri og einnig að byggja
ódýr en vönduð timburhús úr ein-
ingum sem uppfylltu þarfir fé-
litilla kaupenda. 1 dag má segja
aö vel hafi tekist til við aö ná
fyrra markmiöinu, þvi fyrirtækið
veitir nú um 50 manns atvinnu.
Hins vegar kom fljótlega i ljós, að
hvort sem kaupendur voru félitlir
eöa ekki vildu þeir I flestum til-
fellum byggja stór og iburöamikil
hús. Þróun Húseininga h/f hefur
þvi veriö i þá átt á undanförnum
árum að framleiða 50 til 60 ,,lúx-
usvillur” á ári þar sem reynt er
aö taka tillit til séróska hvers
kaupanda.
Framsýni i
tækjakaupum
Allt frá fyrstu tið hafa Húsein-
ingar h/f, búið við fullkominn og
góöan vélakost. Strax i upphafi
voru keyptar vélar og tæki sem
nauðsynleg eru til fjölda-
framleiöslu, enda stefnt ðð þvi i
upphafi að framleiðslugetan væri
50 til 100 hús á ári. Fjárfesting i
vélum i upphafi jafngildir um
4.000.000 kr. á verðlagi i dag og
það er ekki fyrr en á þessu ári að
ráðist hefur verið i umtalsverða
aukningu fjárfestingar i vélum og
tækjabúnaði. Nemur sú upphæð
um 2.000.000 kr. þannig að fjár-
festing i vélum og tækjabúnaði nú
er um 6.000.000 kr. Fjárfesting i
húsnæði er um 14.000.000 kr. og
heildarfjáriesting fyrirtækisins
þvium 20.000.000 kr.
Fyrsta húsið fór ekki út úr
verksmiðju Húseininga h/f fyrr
en i október 1974 og á þvi ári voru
einungis reist tvö hús. Siðan hefur
framleiðslan aukist jafnt og þétt
og á siðasta ári voru húsin orðin
53 að tölu. Það hefur þvi tekið fyr-
irtækið tiu ára starf að ná þeim
afköstum sem stefnt var aö i
byrjun.
Björt framtíð
Undanfarið hafa staðið yfir
töluverðar breytingar á fyrirtæk-
inu sem ná bæði til framleiðsl-
unnar ogframleiðsluhátta.Vinnu-
hagræðing hefur verið aukin og
framleiðslurás skipulögð á sem
hagkvæmastan hátt. Heildargólf-
flötur fyrirtækisins er i dag um
3050 ferm. þar af verkstæðispláss
á um 700 ferm. en afgangur gólf-
flatarins nýtist sem lagerpláss
fyrir hráefni og fullunnar eining-
ar.
Framtiðarhorfurnar eru bjart-
ar á þessum timamótum i sögu
fyrirtækisins að sögn Þorsteins
Jóhannessonar framkvæmda-
stjóra þess. Timburhús njóta
stöðugt meiri vinsælda og hlutur
þeirra vex i byggingarstarfsemi
landsmanna. Telur hann öruggt
að markaðurinn fyrir timburhús
eigi eftir að aukast verulega og
allt að tvöfaldast á næstu 3 til 5
árum. Spáir hann þvi að Húsein-
ingar h/f eigi eftir að tvöfalda
framleiðslugetu sina á þessu
timabili og ná þvi marki
að framleiða 100 hús á ári.
Einnig verði komið á samstarfi
við önnur fyrirtæki sem geri það
að verkum að fyrirtækið selji
meira af algjörlega fullbyggðum
húsum, bæði eftir pöntun og á al-
mennan fasteignamarkað. Sagði
Þorsteinn að lokum að af þessari
spá mætti sja að hann liti framtíð
fyrirtækisins björtum augum, en
það stafaði af hinni sterku að-
stöðu sem Húseiningar h/f hefðu i
dag og eins óbilandi trú á hæfi-
leika og dugnaö starfsmanna.
—áþj.
Húseiningahús setja sinn svip á Sigluf jörð. Fremst á myndinni er bæjarstjórabú-
staðurinn sem var fyrsta húsið sem Húseiningar hf. reistu.
Nýtt hús frá Húseiningum, sem er sérhannaö á kjallara af Viöari A. Olsen
300.
Siglu-
fjarðar-
húsið
1 dag verður hafist
handa við að reisa þrjú-
hundruðasta einingahúsið
frá Húseiningum hf. á
Siglufirði en kaupandi
þess er Ilaraldur Jónas-
son, og hefur húsinu verið
valinn staður að Hraun-
hólum 14iGarðabæ.
Hér er um að ræða 160
ferm. vinkilhús með bil-
skúr og er verð þess frá
verksmiöjunni um 610
þúsund á svokölluðu
þriðja byggingarstigi þ.e.
með milliveggjum, inni-
hurðum og klæðningu i
lofti. Mjög stuttan tima
tekur að reisa hús af
þessu tagi þar sem
einingarnar koma tilbún-
ar með hurðum og glugg-
um tilbúnum i körmum
frá verksmiðjunni og á
það ekki að taka 5—6
manna vanan vinnuflokk
meira en viku til tiu daga
að reisa og gera fokhelt
slikthús.
-áþj
Hér er þrjúhundruðasta húsið frá Húseiningum hf. tilbúið til
flutnings mynd:FRI
Forsvarsmcnn Húseininga hf. fyrir framan nýreist hús frá fyrirtækinu. Fremst
BjarniMarteinsson arkitekt, þá Viðar A. ólsen, arkitekt, Guðmundur Óskarsson
verkfræðingur, Þorsteinn Jóhannesson framkvæmdastjóri og Siguröur
Hlöðversson tæknifræðingur. —mynd:FRI
„Vönduð hús
eru okkar
aðalsmerki”
—segja forsvarsmenn
Húseininga hf.
Hin svokölluðu einingahús eru
liltölulega ný á byggingamark-
aðnum hér á landi, en hafa náð
miklum vinsældum á stuttum
tima, eftir að fólk lét af allri tor-
tryggni I garð slikra húsa úr
timbri og sannfærðist um ágæti
þeirra. Innlendir aðilar hafa
staðið fyrir framleiðslu slikra
húsa um nokkurn tima og eins
hefur verið töluvert um innflutn-
ing slikra húsa, aðallega frá Dan-
mörku og Noregi.
Húseiningar hf. á Siglufiröi er
eitt hinna innlendu fyrirtækja
sem framleiða ciningahús og
héldu nýlega upp á tiuára afmæli
sitt. Við það tækifæri ræddi blm.
við framkvæmdastjóra og tækni-
fræðing fyrirtækisins, þá Þorstein
Jóhannesson og Sigurð Hlöðvers-
son, um samkeppnisaðstöðuna,
verðlag og sérstöðu Siglufjarðar-
húsanna.
Góð samkeppnisstaða
Það kom fram hjá þeim Sigurði
og Þorsteini, að samanburður
hefði leitt i ljós að innflutt ein-
ingahús væru að meöaltali 10%
dýrari en sambærileg hús frá
Húseiningum hf. Væri það laus-
lega ágiskað verðmunur uppá
80—100 þúsund kr., en gengið væri
út frá þvi að húsin væru á sama
byggingarstigi og allir útgjalda-
liðir reiknaðir með. Hins vegar
drógu þeir enga dul á það, að i
samanburði við aðra islenska
framleiðendur væru þeir með
dýrustu húsin. Hlypi sá verð-
munur á 3% uppi 12% miðað við
þriðja byggingarstig einingahús-
anna. Tóku þeir skýrt fram að
þessi verömunur lægi i efnis-
kostnaði, en Húseiningar hf. væri
eina fyrirtækið sem notaði gagn-
fúavariðefni i alla klæðningu og á
þeim stöðum þar sem hætta væri
á fúamyndun, svo sem undir
gluggum og dyrum. Sögðu þeir
þetta þrýstifúavarða timbur um
35% dýrara i innkaupum en
annað timbur. Einnig bentu þeir á
að allir gluggar og allar huröir
væru úr harðviði og að klæðning á
innveggjum, svokallaðar óeld-
nærandi plötur, væru 35% dýrari
en venjulegar spónarplötur. Þessi
efniskostnaður hleypti þvi upp
verði húsanna frá Siglufirði, en
það var að sama skapi bjargföst
skoðun þeirra Sigurðar og Þor-
steins, að þetta gerði eininga-
húsin frá þeim mun endingarbetri
og léttari i viðhaldi en önnur
timburhús og verðmunurinn væri
þvi fljótur að borga sig upp.
Kostnaðaiiiðir
Húseiningar hf. eru með þrjú
byggingarstig á sinum húsum og
er verðið nokkuð mismunandi
eftir þvi á hvaða stigi húsin eru
afhent. Á fyrsta stigi eru húsin
fokheld, fullfrágengin að utan og
með útihurðum og gleri i glugg-
um. Á öðru stigi hefur einnig
verið gengið frá einangrun á út-
veggjum og klæðningu. Þriðja
stig samanstendur svo af bæði
fyrsta og öðru stigi, en við bætast
milliveggir, innihurðir og klæðn-
ing i loft.
Verð á tveggja hæða 150 fer-
metra húsi á þriðja stigi var 1.
april um 480 þúsund. kr. miðað
við byggingarvisitölu 1015 stig, en
þá er ekki reiknaður með sölu-
skattur sem er 14,57%. Einlyft
hús af svipaðri fermetrastærð
kostaði þá um 440 þús. kr. út úr
verksmiðju. Það kom fram hjá
þeim Sigurðiog Þorsteini að upp-
setningarkostnaður húsanna er
ekki reiknaður með i þessu verði,
en hann væri að meðaltali
15—20% á tviiyft hús og um 12% á
einlyft. Hins vegar kváðu þeir
Húseiningar hf. leggja til vana
uppsetningarmenn sem hús-
byggjandinn greiddi kaup eftir
taxta. Varðandi heildarkostnað
við byggingu húsanna, þ.e. miðað
við að hús væri fullklárað, sagði
Þorsteinn að nota mætti þá
þumalfingursaðíerð að tvöfalda
kaupverð einingahússins frá
verksmiðju.
Varðandi flutningskostnað frá
Siglufirði til annarra landshluta
upplýstu þeir, að hann væri mun
minni en flestir héldu. Þannig
væri flutningsverð húss til
Reykjavikur ekki nema um 1,5%
af kaupverði þess og yrði hús-
kaupandinn að standa straum af
þeim kostnaði, þvi hann væri ekki
innifalinn i verði frá verksmiðj-
unni. Astæðuna fyrir þessum lága
flutningskostnaði sögðu þeir vera
þá, að flutningabilar væru yfir-
leitt tómir suður og þvi hefðu
náðst m jög hagstæðir samningar.
Hins vegar væri nokkru dýrara að
flytja húsin vestur og austur á
firði, þvi það yrði að gera með
skipum. Upplýstu þeir ennfremur
að af þeim 300 húsum sem fram-
leidd hefðu verið hjá verksmiðj-
unni hefði um helmingur verið
seldur til Reykjavikur og ná-
grennis.
Flest húsanna frá fyrirtækinu
hafa verið ibúðarhús, en einnig
hefur það framleitt húsnæði sem
notað hefur verið sem dagheimili
og leikskólar, svo ekki sé gleymt
stóra húsinu við Kröflu, sem gekk
undir nafninu „Hótel Sólsetur”,
þvi Jón Sólnes hafði þar aðstöðu.
Það kom fram I lokin hjá þeim
Sigurði og Þorsteini, að öll tækni-
leg hönnun húsanna hefur frá
fyrstu tið verið i höndum inn-
lendra aðila. Hafsteinn Ólafsson
vann að hönnun fyrstu húsanna
en siðan hafa arkitektarnir Helgi
Hafliðason, Bjarni Marteinsson
og Viðar A. ólsen séð um húsa-
teikningar fyirtækisins. Verk-
fræðingur Húseininga hf. hefur
verið frá upphafi Guðmundur
Ölafsson i Reykjavik og hefur
hann jafnframt skipulagt sölu-
starfsemi fyrirtækisins syðra i
núverandi mynd. Aðalsmerki
Húseininga hí., sögðu þeir Sig-
urður og Þorsteinn vera, að þeir
væru að bjóða vandaðri og betri
einingahús en önnur fyrirtæki,
og með þvi sláum við botn i
þennan pistil.
— ^þj