Þjóðviljinn - 22.12.1966, Blaðsíða 4

Þjóðviljinn - 22.12.1966, Blaðsíða 4
<g SlÐA — ÞJÓÐVTLJTNN — Pimmtudagur 22. desember 1966. Otgelandl: Samelnlngarflokioux alþýöu — Sósialistaflokk- urinn. Ritstjórar: Ivai H. Jónsson (áb). Magnús Kjartansson, Sigurður Guðmundsson Fréttaritstjóri: Sigurður V. Frióþjófss<. Auglýsingastj.: Þorvaldur Jóhannesson. Simi 17-500 (5 línur)- Askriftarverð kr. 105.00 á mánuði. Lausa- söluverð kr. 7.00. Skammtaður fríður j fjörutíu og átta klukkustundir á að vera friður í Víetnam. í heila tvo sólarhringa eiga íbúar þessa hrjáða lands að geta litið til himins án þess að sjá morðdreka stórveldisins sá dauða og tortím- ingu yfir jörðina, án þess að eiga það á hættu að brenna lifandi í bensínhlaupi, tætast sundur fyr- ir nálasprengjum, kafna í gasi og öðrum eitur- efnum. í tvo daga og tvær nætur eiga þeir að fá örlítinn smekk af friðsamlegu lífi hins rúmhelga dags, því lífi sem náttúran býður mannkyninu, en þau kynni eru aðeins veitt sem náð og miskunn, sem undantekning til hátíðabrigða, svo að þegn- um árásarríkisins bragðist jólamaturinn betur, svo að ekki verði keimur af brenndu holdi af steik- inni og blóðremma af ídýfunni. 0* svo þarf að gefa hræsnaranum í Hvíta húsinu tækifæri til að umhverfa jólabæninni um frið á jörðu í auglýsingaskrum og afskræmislegan loddaraskap, í þá tegund orða sem ekki eiga að skýra veruleikann heldur dylja hann. Bandaríkin hafa aldrei boðið Víetnömum frið, heldur aðeins uppgjöf. Sú stáðreynd er viðurkennd einkar greini- lega í forustugrein Morgunblaðsins í gær, en þar segir svo um svokölluð friðartilboð Bandaríkja- stjórnar: „Hitt er nauðsynlegt, að kommúnistar í Víetnam og annars staðar geri sér fulla grein fyrir að óhugsandi er að samningar verði gerðir, sem tryggi kommúnistum endanleg yfirráð í Suð- ur-Víetnam.“ Það er þannig ekki mál íbúanna í Víetnam hvert stjórnarfar . þeir velja sér; þeir eiga að afsala sér pólitískum sjálfsákvörðunarrétti, til þess að öðlast þann frið sem erlendir 'valds- menn skammta og Víetnamar hafa haft kynni af í heila öld. Um það liggja fyrir órækir vitnisburð- ir frá Eisenhower forseta og fjölmörgum öðrum bandarískum valdamönnum, að innrás var gerð í Víetnam vegna þess að yfirgnæfandi meirihluti íbúanna (80% sagði Eisenhower) aðhylltist það stjórnarfar sem Bandaríkin telja kommúnisma — en sú skilgreining nær raunar til hverra þeirra stjórnarhátta sem Bandaríkin hafa vanþóknun á. Þess vegna voru Genfarsamningamir sviknir; þess vegna var komið í veg fyrir frjálsar kosning- ar og kröfum um sjálfstæði og frið mætt með blóði, eldi og dauða, með því að beita allri tækni voldug- asta herveldis. heims gegn viljaþreki snauðra manna. Það sætir engum tíðindum þótt Bandaríkin segist bjóða frið uppgjafarinnar, lofi að hætta að myrða fólkið í Víetnam ef það sættir sig við er- lend yfirráð, leppstjórnir sem heimili bandarísk- um auðhringum að fara sínu fram að eigin geð- þótta. Um það einfalda meginatriði hefur verið barizt allan tímann. gá naumi friðarskammtur sem fólkinu í Víetnam hefur verið úthlutað á hátíðisdögum kristinna manna verður því miður ekkert fyrirheit um eðli- legt líf fyrr en Bandaríkin láta af yfirdrottnunar- stefnu sinni. Varanlegur friður tekst aldrei í Víet- nam fyrr en viðurkennd eru þau einföldu megin- atriði að hver bjóð heims á rétt til að lifa ein og | frjáls landi sínu og velja sér sjálf stjómarfar við hæfi. — m. Mikil þátttaka barna í auglýsinga- samkeppni Barnaverndarnefndar Farþegar í sirætisvögnum R- vikur veita athygli þessa dag- ana nokkuð sérken® ilegu m aug- lýsingaspjöldum aftan á vagn- stjórasætinu. En eins og kunn- ugt er efndi Barnaivemdamefnd Rvíkur til samkeppni, með- al skólabama í Reykjavík, um teikningar til stuðnings her- ferðinni gegn óleyrfilegri útivist bama á kvöldin. 60 beztu teikningamar skyldu síðar sýndar í Strætisvögnum Rvík- ur- Skilafrestur í samkeppninni rann út þ.' 15. des. og hafði þá borizt á skrifstofu Bama- verndamefn'dar fjöídi teikninga r>g hefur þátttakan verið til- tölulega góð- Sérstök dómnefnd, skipuð fulltrúum frá Barnaverndar- nefnd Reykjavíkur, Strætis-<s> vögnum Reykjavíkur, Auglýs- ingaþjónustunni og að auki Hjörleifi Sígurðssyni, listmál- ara, skar úr um hvaða 60 myridir skyldu sýndar í vögn- unum. Þær myndir, sem dæmdar voru beztar voru gerðar af: Bryndísi Sveinsdóttur 12 ára Landakotssk., Halldóru Magn- úsdóttur 12 ára, Landakots- skóla, Björk Þorleifsdóttur 12 ára 6-C Austurbæjarskóla. Hinar 57, sem valdar voru, eiga eftirtaJin börn: Landakotsskóli: Pétur Orri Jónss. 11 ára. Einar Guðjohn- sen 11 ára, Ásta Björg Björns- I dóttir 11 ára, Ingibjöng Hilm- arsdóttir 11 ára, Anna V- Gunn- arsdóttir 10 ára, Sigurbjörg Þorgrímsdóttir 12 ána og Mar- grét Gunnarsdóttir 12 ára. Austurbæjarskóli: Sigurbjörg Pétursdóttir 5-B, Jóna Fríður Jónsdóttir 5-A, Rakel Þórisdótt- ir 6-C. Laugarnessk.: Erla G. Einars- dóUir.- S^A, Auður Rafnsd. 5-B, Snorri Birgisson 6-A, Sverrir Ó- Hjartar 5-B, Jón Pálsson 6-B, Sævar Þ. Carlsson 5-A, Guð- finna Helgadóttir 6-B, Hlíf B. Sigurjónsdóttir 6-B, Eiður Steingrímsson 6-B, Inga Gúst- afsdóttir 6-B, Kristján Þ. Sig- urðsson 6-B- Æfingadeild Kennaraskólans: Kristján Kristinsson 11 ára B Sigriður Jónsdóttir 12 ára A, Steinunn Harðardóttir 10 ára B, Hildigerður Jakobsdóttir 12 ára B, Finnbogi Jakobsson 10 ára A. Mýrarhúsaskóli, Selt jarnarn. Ársæll' Þ- Ármannsson I-A, Ævar Halldór Kolbeinsson 12 ára A, Sverrir Jónsson 12 ára B, Sigríður Atladóttir 11 ára A, éJón Óskarsson 12 ara A, Bryn- dís H. Snæbjörnsdóttir 11 ára A, Guðrún Hafsteinsdóttir 11 ára A, Finnur Árnason 8 ára A, Sigríður Hrafnkelsdóttir 10 ára A, Sunneva Hafsteinsdótti'r 10 ára A, Guðrún Jónsdóttir 10 ára A, Sæmundur Auðunsson 12 ái-a A, Jóna Dóra Óskars- dóttir 10 ára A, Jón Ámason 12 ára A, Kolbrún Stefánsdótt- ir 8 ára A, Anna Ingadóttir 11 ái'a A, Björn Auðunsson 11 ára C, Herdís Hallvarðsdóttir 10 ára A, Pétur G- Gunnarsson 10 ára A, Þór Sigvarðsson 12 ára B, María L. Ragnarsdóttir^ 11 ára B, JBjarni Ómar Ragriars- son 12 ára A, Karolína Stefáns- dóttir 12 ára A, Valgarður Hafsteinsson 11 ára B, Oddný Hallgeirsdóttir 12 ára A. • Handíða- og Myndlistaskólinn Stella Kluck, Guðmundur Gíslason, Ásdís Sigurþórsdóttir, María I. Martin, Gísli Bald- ursson. öllum þeim 60 bömum, sem eiga sfraar teikningar uppi í vögnunum verða veitt verð- laun- Leitaði Bamavemdar- nefnd fanga um verðlaunagripi hjá ýmsum fyrirtækjum í bæn- um, sem bnxgðust yfirleitt mjög vel við og kann nefndin þeim beztu þakkir fyrir. Þar að auki fá verðlaunahafamir og einnig öH hin bömin, sem skiluðu myndum, ókeypis kvikmynda- sýningu sem viðurkenningu og laun fyrir fyrirhöfn sína og áhuga á þessum málefnum- Hefur ftorstjóri Háskólabíóa góðfúslega lofað nefndinni • sýn- ingu endurgjaldslaust þriðj»!d. 3: ja<núar 1966, kl. 1.30 og verða þá verðlaunin afhent um leið, — áður en sýningin hefst- Verður þetta auglýst riánar, þegar að því kemur. Bamavemdamefnd flytur öll- Framhald á. 6. síðu. Ritdómar um „Æskufjör og ferðagaman" „Það getur nærri að maður, sem svo langa sögu hefur lifað sem Björgúlfur læknir hafi frá ýmsu að segja, ekki sízt höfundur með jafn ótvíræða ritgáfu og ritgleði og hann“.Gamansemi af þessu tagi er annað stíleinkenni Björgúlfs sem hvarvetna yljar frásögn hans, og gerir þætti hans skemmtilegri en hliðstæð efni yrðu í höndum ólagnari höfunda". Ó. J. Alþ.bl. 23. 11. 1966. „ . . . . Þessar ævimipningar hans eru mjög frábrugðnar öðrum þeim aragrúa slíkra bóka, sem út hafa komið á íslenzku og rekja oft og tíðum ýmis smáatvik, sem fáa skipti nema höf- undinn sjálfan". „Það sem gefur henni þó mest gildi er það, að hún er ekki aðeins skemmtilestur heldur skil- merkileg þjóðlífslýsing frá þeim tíma sem nú er að verða jafnfjarlægur og niiðaldirnar. Mun því oft á komandi árum og öldum verða til hennar vitnað, sem merkilegrar heimildar um aldamótaskeiðið". P.V.G. Kolka, Mbl. 25. ll 1966. Fjórtán þœttir íslenzkra sjómahna, hraknings þeirra og svaSilfara. SögusviS bókarinnar er að mestu sjávarplóss: Seyðisfjörður, Mjóifjörður og Norðfjörður, Land- eyjar og Vestmannaeyjar, Stokkseyri og Þorláks- höfn, Grindavík og Suðurnes, — allt vestur til Breiðafjarðar nœr saga þessara sœvíkinga. Hér er sagt frá Sigurði Ingimundarsyni, sem varð allt að því landskunnur undir nafninu Siggi Munda, sjó- ferðum hans og sjóhrakningum. Einnig er hér sagt frá sjósókn við Landeyjarsand, sjóslysunum miklu, fimm daga ferð tveggja manna frá Þorlákshöfn til Reykja- víkur til að sœkja tvœr vœttir af síld, sjóferðum á gamla Gideon með Hannesi lóðs, sögulegum mannflutningum milli Vesfmannaeyja og Reykjavíkur, ofviðrinu í Grinda- vík árið 1916 og hinu frœkilega björgunarafreki Guð- • bjarts Ólafssonar. Þessir sœvíkingar voru umvafSir sœroki og þaS er seltubragS af þessum þátfum. SHÖCGSJA

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.