Þjóðviljinn - 26.06.1951, Page 3
Þriðjudagur 26. júní 1951
ÞJÓÐVILJINN — (3
ÍÞRÓTTIR
RITSTJÓRI: FRlMANN HELGASON
Frjáls|róUamenn fara til Osló í nótt
Formaður FRÍ segir: „Við ættum að hafa sigur-
möguleika ef allt gengur að óskum og heppnin er
með, en keppnin verður jöfn og hörð.”
Erla skáldkona sextug
Prjálsíþróttamenn þeir sem
keppa eiga við Norðmenn og
Dani á fimmtudag og föstudag
í Osló, voru valdir fyrir helg-
ina af stjórn frjálsíþróttasam-
bandsins og hafa þessir menn
verið valdir:
100 m hlaup: Hörður Har-
aldsson, Haukur Clausen.
200 m hlaup:í Sömu menn og
í 100 m.
400 m hlaup: Guðmundur
Lárusson, Ásmundur Bjarna-
son.
800 m hlaup: Guðmundur
Lárusson og Sig. Guðnason.
1500 m hlaup: Sig. Guðnason
(óákveðið).
5000 m hlaup: Kristján Jó-
hannsson og Stefán Gunnars-
son.
10 000 m hl.: Victor Munch,
(óákveðið).
110 m grindahlaup: Ingi Þor-
steinsson og Örn Clausen.
400 m grindahlaup: Ingi Þor-
steinsson, Örn Clausen.
4x100 mi3 Hörður, Örn, Hauk-
ur, Ásmundur.
4x400 m: Ásmundur, Guð-
mundur, Örn, Haukur.
3000 m hindrunarhl.: Eirik-
Biíið að velja landslið og
varamenn iyrir lands-
leikinn viS Svía í Knatt-
spyrnu sem fram íer á
föstudag
Landsliðsnefnd KSl mun hafa
valið núna rétt fyrir helgina
þá menn sem koma til greina
að keppa við Svíana, en ekki
er með vissu vitað hverjir verði
hinir 11 „útvöldu". Hin 17 nöfn
eru þessi: Bergur Bergsson KR,
Helgi Daníelsson, Val, Karl
Guðmundsson Fram, Guðbjörn
Jónsson KR, Haukur Bjamason
Fram, Hafsteinn Guðmundsson
Val, Einar Halldórsson Val,
Sæmundur Gíslason Fram, Guð-
jón Finnbogason ÍA, Ölafur
Hannesson KR, Ríkharður Jóns
osn ÍA. Þórður Þórðarson ÍA,
Halldór Halldórsson Val, Gunn-
ar Guðmannsson KR, Gunn-
laugur Lárusson Víking, Bjarni
Guðnason Víking og Hörður
Óskarsson KR. — Þjálfari liðs-
ins er Óli B. Jónsson.
Sænska landsliðið kemur
annað kvöld. Á það að leika a.
m. k. 2 leiki auk landsleiksins.
Ekki mun ákveðið við hvaða
lið keppt verður en telja má
víst að Akranesi verði boði'ð að
keppa við þá og mælir allt með
því.
ur Haraldsson, Hörður Hafliða-
son .
Hástökk: Skúli Guðmunds-
son, Sigurður Friðfinnsson.
Langstökk: Torfi Bryngeirs-
son, Örn Clausen.
Stangarstökk: Torfi Bryn-
geirsson, Kolbeinn Kristinsson.
Þrístökk: Kári Sólmundarson,
Kristleifur Magnússon.
Kringlukast: Gunnar Huse-
by, Þorsteinn Löve.
Kúluvarp: Gunnar Huseby,
Ágúst Ásgrímsson.
Spjótkast: Jóel Sigurðsson,
Adolf Óskarsson.
Sleggjukast: Páll Jónsson.
Eggert Sigurlásson hafði ver-
ið valinn til að keppa í
800 m hlaupi, en hann hefur
tilkynnt forföll og keppir Sig-
Þótt fyrir dyrum standi
tveir landsleikir, annar í Rvík
og hinn í Osló nú í vikunni, þá
hafa umræður um þá hálfkafn-
að fyrir umræðum um sigur
Akurnesinga í íslandsmótinu. -—
Þó er engan veginn hægt að
segja að hann hafi komið á ó-
vart. Undanfarin ár hafa þeir
sýnt stöðugar framfarir. — Á
sama tíma hafa Reykjavíkurfé-
lögin staðið í stáð. Margir hafa
spurt: „Hvernig má það ske
að knattspyrnumenn Reykja-
víkur standa í stað, en knatt-
spyrnumenn í fámennum út-
gerðarbæ taka svo örum fram-
förum?“ Og þeir bæta viðíí
„Eru ekki fengnir þjálfarar frá
ýmsum löndum til að kenna
þessum mönnum hér, og til þess
varið tugum iþúsunda. Hafa
ekki hundruð þúsunda verið
látin í nýja velli og félagsheim-
ili. Ekki vantar að þeir hafi
verið „að læra“ í erlendum
ferðalögum og í keppni við er-
lenda menn í Reykjavík. Hér
hlýtur eitthvað að vera í ólagi“.
Þetta eru ekki óeðlilegar
spurningar. Það væri nógu fróð
elgt að heyra hverju þeir svör-
uðu sem næst því stánda, en
bað eru knattspyrnumennirnir
sjálfir. Svar íþróttasíðunnar
hefur á undanförnum árum ver-
ið að birtast, og sigur Akur-
nesinga er sönnun þess, sem þar
hefur verið haldið fram.
Ný leiktækni?
Margir hafa spurt hvort þess-
ir menn hefðu komi’ð með nýja
leiktækni sem hinir hefðu ekki
varazt. — Það var engan veg-
inn tilfellið. Allt var þetta áður
þekkt. En það sem gerði gæfu-
muninn var, að þeir léku sam-
urður Guðnason í hans stað.
1500 m hlaup: Stefán Gunn-
arsson eða Kristján Jóhannsson
og sá þeirra sem ekki hleypur
1500 m á að hlaupa 10 000 m.
Ekki er öruggt að Sigurður
Friðfinnsson geti farið vegna
smámeiðsla á " fæti og mun
Kolbeinn Kristinsson þá keppa
í hástökki í hans stað.
Guðm. Lárusson hafði orðið
fyrir því óhappi að fá nagla
uppí fótinn en það hefur hafst
vel við og vonir standa til að
hann verði orðinn góður þeg-
ar til keppninnar kemur.
Dagskrá keppninnar verður
þessi: Fyrri dagur, fimmtud.;:
400 m grindahlaup, 200 m,
800 m, 3 km hindrunarhl., 5000
m 4x100 m, Kúluvarp, lang-
stökk, sleggjukast, hástökk.
Síðari dagur: föstudagur:
110 m grindahl., 100 m, 400
Framhald á 6. síðu.
an á einfaldan og leikandi hátt,
léku með allan tímann. Þeir
voru nákyæmari í spyrnum og
fljótari að hlaupa. Með öðr-
um orðum: þeir hafa lagt meiri
rækt við íþrótt sína og þar af
lei'ðandi fullkomnari knatt-
spyrna s6m þeir sýna.
Ekkert til að hryggjast yfir
Fyrir þá sem fylgzt hafa
með málum knattspyrnunnar
í Reykjavík og þieim dofa sem
hún er lostin nú í augablikinu,
eru úrslit íslandsmótsins á-
nægjuefni. Fátt eða ekkert ann-
að gat orðið til þess að hrista
af reykvískum knattspyrnu-
mönnum sjálfsánægjumókið.
Ég er þess fullviss, að afleið-
ingin af þessum sigri Akurnes-
inga á eftir að hafa mikil og
góð áhrif á þroska knattspyrn-
unnar, ekki aðeins í Reykjavík,
heldur einnig úti um landið
Akranes „átti“ áhorfendur
Þáð var athyglisvert og
ánægjulegt að Akurnesingar
virtust ,,eiga“ áhorfendur. Það
var líka athyglisvert hve fjöl-
mennt var á leikjum þeirra
mitt í því að áhorfendum held-
,ur fækkar á leikjum Reykja-
víkurfélaganna, frá því sem áð-
ur var. Er ekki þama enn ein
áminningin til reykvískra knatt
spyrnumanna og hún er þessi:
Áhorfendur eru óánægðir með
bá knattspyrnu sem þeim er
boðið upp á hér leik eftir leik.
Nú kemur lið sem sýnir hressi-
lega leiki og oft góða knatt-
spyrnu, þá er fjölmennt; þeim
verður lika ósárt um þó þetta
lið „þeirra“ verði til þess að
sýna reykvískum knattspymu-
Framhald á 6. síðu.
Guðfinna Þorsteinsdóttir ólst
upp í Krossavík í Vopnafirði frá
fimm ára aldri. Það voru glaðir
menn og gáfaðir, sem hún átti
samneyti við í æsku. Heimilis-
hættirnir stórbrotnir og fjöl-
breyttir hið ytra, en fíngerðir
hið innra. Skáldin heimilisguðir,
en dísir voru þar úr sagnlistar-
og verkmenntavéum íslendinga.
Guðfinna hefur alla ævi borið
þess mót að vera alin upp á þessu
heimili, bæði í ytri og innri hátt-
um lífsins. Hún hefur lifað stór-
brotnu og erfiðu lífi að ytri að-
stæðum, en óvenjumenntu innra
lífi, í eins konar skrúðgarði ís-
lenzkra linda og blóma, í lífs-
nautnarsólskini af sögu- og bók-
menntahimni þjóðar sinnar. Það
bar snemma á hagmælsku henn-
ar, enda var hún af því fólki
komin, sem veriðí hafði hlut-
gengt á þeim vettvangi um
marga ættliði. Sigfús afi henn-
ar hafði verið á ferð og „stelpan"
móðir hennar með honum. Sigfús
kvað í sólskininu: Snæfellstind-
inn háa, hreina / himinlindar
gylltir binda. Botnaðu nú, stelpa,
sagði hann. Hans er strindi, höld-
ar meina, / hversdags-yndi sum-
arvinda, sagði „stelpa“. Og þótti
það einkennandi fyrir margt fólk
af ættinni, að það notaði fornt
bókmál í tilsvörum og tali, og
sumt af því þegar á barnsaldri.
Guðfinna dvaldist fram yfir tví-
tugsaldur hjá fósturforeldrum
sínum í Krossavík, og á þeim ár-
um sótti hún vetrarlangt ung-
lingaskóla á Vopnafirði. Er það
öll hennar skólaganga, en kom
henni svo vel að liði að jafnan
síðan hefur hún lesið enska
tungu, og þýtt mikinn fjölda
kvæða úr því máli. Er dvöl henn-
ar sleppti í Krossavík, fór hún
norður í Þingeyjarsýslu, og
kynntist þá Þorgilsi Gjallanda, og
þó mest er bæði lágu þungt
haldin í sjúkrahúsi á Húsavík,
hvaðan Gjallandi ekki gekk til
leiks í landi sínu framar. Haustið
1915 kom hún aftur til Vopna-
fjarðar og var á Bustarfelli um
veturinn. Þar kynntist hún
mannsefni sínu, Valdemar Jó-
hannessyni frá Syðri-Vík. Hófu
þau búskap vorið 1917 að Bruna-
hvammi, heiðardalskoti innarlega
í Hofsárdal, og eru þar þó land-
kostir góðir. Efni voru lítil, og
urðu 24 pottar af olíu að sigra
allt vetrarmyrkrið, austan undir
Möðrudalsfjallgarði, hin fyrstu
ár. Frá Brunahvammi fluttust
þau hjónin að Hróaldsstöðum í
Vopnafirði, og þaðan að .Felli í
sömu sveit árið 1923. Þar bjuggu
þau til vors 1927, að þau fluttu
í Teig, og hafa dvalið þar síðan.
Á þessum árum fæddust flest
börn þeirra, niu að tölu, og þarf
ekki alla þá erfiðissögu að rekja,
svo skýrt sem hún blasir við af
þessum staðreyndum. En sú hin
erfiða saga er enn ekki að öllu
sögð, því þessi kona er löngu
landskunn af skáldskap sínum.
Og enn er þar óhermd saga, því
ekki minna en fjögur bindi, og
öll stór, mundu liggja eftir þessa
konu, af kvæðum, þýðingum og
sagnaþáttum. En aðeins tvær
meðalstórar ljóðabækur hafá
komið út, og er enn erfiðissögu
að rekja því ekkert af verkum
hennar hefur birzt í bók nema
það sem misvitrir bókaútgefendr
ur hafa talið líklegt að græddist
fé á að gefa út. Slík er hin „aka-
demíska heiðríkja“ á íslandi þeg-
ar alþýðumaður á í hlut, enda er
það öfugganga í allri sögu, þeg-
ar týra hans fer að skyggja á
„heiðríkjuna“. Utgefendur hafa
ekki fengizt til að koma verkum
hennar hinum meiri á framfæri,
nema hún vildi vera svo lítillát að
gefa þeim verkin, en Guðfinna
hefur erfiðað sig fram úr þeim
kosti að lítillækka sig fyrir þeim
heiðríku, og það erfiðið mun.
henni endast til loka. Hin miklu
verk hennar, eins og kvæðið um
Helgu Bárðardóttur Snæfellsáss,
og söguljóðið mikla Farmanns-
kona, 27 kvæði og mesta sagn-
ljóðaverk í nýjum tíma á íslandi,
þau liggja enn í skúffunni í Teigi.
Sömuleiðis því nær 200 kvæði
þýdd úr ensku og norðurlanda-
málum, og öll með ágætum. Hér
er komið að máli, sem nokkur
þörf væri að taka til athugunar,
því ef til vill nær sanngirni í
launagreiðslum til kvenna alla
leið til þess, að ódýrara sé að
yrkja kvæði með kvenheila en
karlmanns. Sýnt er það að kven-
rithöfundar standa verr að vígi
með verk sín en aðrir rithöfund-
ar. KOenrithöfundar eru flestir
í alþýðustétt, og í alþýðusporum
að lífsaðstöðu, einkum menntun,
og síðan Látra-Björgu leið hafa
þær ekki einu sinni getað flakkað
um landið sitt fagra.
Þetta er enginn þjóðarhagur í
menntamálum, því án þess þátt-
ar í alþýðubókmenntunum, sem
liggur eftir konur, væri menn-
ingarsaga íslands fátækari, eink-
um varðandi frásagnir af lífi og
þjóðmenningu er stundir líða. Það
eru ætíð bókmenntirnar, er al-
þýðan skapar, sem fá þetta þjóð-
fræðahlutverk, þegar heimspek-
ingar tímans, þjóðskáldin skulum'
við segja, gufa upp með gömlu
spekinni, og hinum úreltu tökt-
um tímans, sem þeir kappkosta
jafnan að fylgja og verða fræg-
astir fyrir — um stundarbið.
Hinn tæri slcáldskapur er lind
alþýðulífsins í tilfinningum og
lífsreynslu, og hann fylgir síðan
þjóðarsálinni í þjóðlífssögunni,
sem ætíð er alþýðulífssaga. Þetta
sanna þjóðkvæðin íslenzku, ó-
dauðleg lisfaverk af því þau
geyma svo ríkulega tilfinningar
alþýðulífsins, og svo vill til, að
einkum konur hafa ó síðustu tím-
um tekið í þennan strenginn í
bókmenntum íslendinga. Guð-
finna Þorsteinsdóttir ó í kvæðum
sínum vítt svið af alþýðulífi, í öll-
um þrótti þess og þjáningum, en.
einkum ást þess og varma, og er
þetta bezt og gleggst samanofið
í söguljóðinu mikla, Farmanns-
kona. Þó mætti svo fara, að þessi
Framhald á 6. síðu. ;. tlJ
Eftirþcmkaf fslandsmótsins