Alþýðublaðið - 04.09.1964, Blaðsíða 12
rwwvw wwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwwww'
ÍSLENZKAR NJÓSN-
IR í MERKRI BÓK
Reykjavík, 3. sept. - HP
í BÓK sinni „The Craft of Iu>
telligencc” sem út kom í fyrra,
skýrir Allen Dulles, fyrrverandi
yfirmaður bandarísku leyni-
þjónustunnar, frá því, þegar so
vézkir sendiráðsstarfsmenn í
Reykjavík reyndu að fá Ragnar
Gunnarsson til aó njósna fyrir
á Keflavíkurfluffvelli
snemma árs 1963, en hann
skýrði íslenzku lögregrlunni frá
Alian Dulles
málinu, og hún stóð sendiráðs-
mennina að verki, eins og mörg
um mun enn í fersku minni.
Alþýðublaðið bar þann kafla,
sem um mál Ragnars fjallar,
undir hann I dag, og kvað hann
þar rétt frá skýrt að öðru leyti
en því, að hann gæti ekki tal-
izt flokksbundinn kommúnisti
eftir atburðinn í fyrra. Hann
hefði þá enn átt sitt gamla
flokksskírteini, en ekki notlð
fullra flokksréttinda vegna
skuldar. Hefði þá fyrir skömmu
verið búinn að koma tU hans
starfsmaður frá Sósialistafélagi
Reykjavíkur og biðja hann að
borga, 'en hann ekki sinnt því.
Þegar skýrt var frá málinu i
blöðunum, lýsti Þjóðviljinn því
yfir, að Ragnar væri ekki í
flokknum, og síðan kvaðst hann
ekki hafa haft neinn hug á að
endurnýja flokksréttindi sín og
kommúnistar hér ekkert sklpt
sér af honum. Fer hér á eftir
sá kafli úr bók Dulles, er fjali-
ar um Ragnar:
„Tvö atvik, sem nýlega gerð*
ust sitt á hvoru heimshorni,
bera að minu áliti mjög greini-
lega vott um þau vandræði, sem
leyniþjónusta Sovétríkjanna á
nú í. Fyrir skömmu voru tveir
sovézkir sendiráðsstarfsmenn
reknir frá íslandi, þar eð þeir
reyndu að fá ungan, íslcnzkan
vörubílstjóra til að njósna fyrir
Framhald á 3. síðu.
Ragnar Gunnarsson
Hárgreiðslusýn-
ðng í Klúbbnum
Reykjavík 3. sept., GG,
FIMM fegurðardísir og fjöldi
greiðslukvenna og manna munu
sýna helztu nýjungar í hágreiðslu,
Uárlitun og öðru er lýtur að fegr
tín hársins í Klúbbnum n.k. sunnu
dagskvöld kl. 9 e. h. Meðal þeirra,
sem greitt verður, verða la.m.k.
tvær af þeim yngismeyjum, sem
tóku þátt í siðustu fegurðarsam-
feeppni. Ennfremur má geta þess,.
að þarna sýnir Óskar Friðþjófs-
son, sem verið hefur undanfarið
ár í París við nám í hárgreiðslu.
Á sýningunni verða sýndar
helztu nýjungar í hárlitun og mun
Minna Breiðfjörð á Hárgreiðslu-
stofunni Perlu aðallega sjá um það
atriði. Ennfremur verður sýnd
þarna notkun alls konar hárkolla,
svo og notkun flétta og hárbúta
til að breyta í skyndi hárgreiðsl-
unni, t. d. ef farið er út að kvöldi.
Bob Kennedy
segir af sér
WASHINGTON, 3. sept.
(NTB-Reuter).
Robert Kennedy dómsmálaráð-
herra, bróðir John heitins Kenne
dys forseta, sagði í dag af sér em
bætti sínu í stjórninni til að geta
boðið sig fram í kosningunum til
öldungadeildarinnar í New York-
ríki. Kennedy var tilncfndur fram
Frh. á 3. síðu.
Óskar Friðþjófsson að
starfi í gær.
HÆSTI MEÐAL-
AFLI Á BÁT
Reykjavík, 3. sept. - GO
SÍÐASTLIÐINN sólarhringur var
sá gjöfulasti á allri vertíðinni í
sumar, sé miðað við ineðalafla á
skip. 66 skip fengu 71.400 mál og
tunnur á miðunum út af Langa-
nesi, þar af mörg mjög góðan afla.
Veður er gott, en þoka og sfldin er
mjög blönduð og slæm í salt. —
Reynt er þó að salta eftir föngum.
Bræðslurými á Raufarhöfn var
þrotlð um 6 leytið í kvöld.
Þessi skip fengu 1500 mál og
þar yfir gær: Bjarmi II 1800, Súl-
an 1700, Helga RE 1800, Náttfari
1500, Elliði 1600, Hugrún 1600,
Arnfirðingur 1500, Hafrún ÍS 1700,
Hannes Hafstein 1500, Jörundur
III, 2600 tunnur, Þórður Jónasson
2000 og Héðinn 1500.
Veður er nú að batna á svæð-
inu austur af Dalatanga og vilað
var um a. m. k. eitt skip, sem fékk
veiði þar í dag, Huginn II VE, sem
fékk 1500 mál í einu kasti.
Eftirtalin skip liafa tilkynnt um
afla sinn síðan kl. 7 í morgun:
Skipaskagi 400, Guðrún KG 1800
mál, Árni Magnússon 1800 tn.,
Sigurður Bjarnason 1500 mál, Ólaf
ur bekkur 1200 og Ólafur Frið-
bertsson 1100 mál.
SÍÐUSTU FRÉTTIR:
Eftirtalin skip tilkynntu veiði yfir
1000 mál og tunnur til Dalatanga
í dag og kvöld: Heimir 100 tú, Guð
rún Jónsdóttir 1050 mál, Ásbjörg
100, Sigurpáll 1600, Víðir 11.1200
Óskar Halldórsson 1600 Huginn
II 1500 Gullfaxi 1600, Hamravík
1000 Guðrún 1800. Ólafur Tryggva
son 1200 Hafþór NK 1400, GÚð-
björg GK 1600, Þorgeir 1050 Björg
vin 1350, Sæúlfur 100 Ingiber Ól-
afsson II 1200, Seley 1400 og Berg
ur 1900 tunnur.
Til Raufarhafnar melduðu sig
Ólafur Friðbertssan 1100, Sæþór
ÓF, 900, Siglfirðingur 2000 og Gjaf
ar 1600.
KLUKKAN 12.17 í gær var slökkvi
liðið kallað að Austurbar í Austur-
bæjarbíói. Var þar eldur í feiti á
góifi og bak við eldavél. Var allt
fulit af reyk, en fljótlega tókst að
slökkva eldinn. Skemmdirnar urðu
talsverðar af reyk.
MmmWMMMHMtHWMMMmUMUUmwmitMMUMMM
Magnús Kjartans-
son fór til Kína
RITSTJÓRI Þjóðviljans -
Magnús Kjartansson - er far-
inn í heimsókn til Kína
samkvæmt boði þarlendra að-
ila. Hefur þessi heimsókn vak-
ið mikla atliygli meðal komm-
únista, sem hafa þungar áhyggj
ur af átökunum milli Kínverja
og Rússa.
Þessi átök eiga sér einnig
stað meðal kommúnista hér á
landi. Brynjólfur Bjarnason og
hópur áhrifamanna, sem venju-
lega eru kallaðir einangrunar-
sinnar innan flokksins, liafa
samúð með Kínverjum. Á móti
þeim eru svonefndir Centristar
undir foruslu Einars Olgeirs-
sonar,, sem ekki þora að slíta
tengslin við Rússa vegna hins
margvíslega stuðnings,sem þeir
hafa af þeim.
Fréttabréf rússneska sendi-
ráðsins í Reykjavík hafa und-
anfarið borið með sér, að hér
færi fram barátta á bak við
tjöldin milli Rússa og Kínverja.
Hyert bréfið á fætur öðru hef-
ur verið helgað þessum átök-
um og hefur scndiráðið dreift
<)
liörðum árásum á afstöðu Kin-
verja.
Af þessuin sökum er það at-
hyglisvert, að stjórnmálarit-
stjóri Þjóðviljans, máigagns ís-
lenzkra kommúnista, skuli
þiggja boð um heimsókn til
Kina. Verður varla betur séð
en þetta sé spark í Rússa og
Centrista innan flokksins. Má
búast við, að þessi mál komi
við sögu, ef kommúnistar haida
flokksþing í haust eins og þeini
ber samkvæmt flokkslögum.
VMMMMMMMMMMHHHMMMMMtMMMMHMMMMMMMM