Alþýðublaðið - 04.09.1964, Síða 4
Stanzið heiminn!
^ ALLIR amerískir bílaframleiðendur greina frá metsölu í ár,
— en samt sem áður ganga viðskiptin ekki nógu vel.
Það eru ennþá 1.250,000 ,seldir bilar þar vestra, og nýju ár-
gerðimar koma á markaðinn í september.
FORSTJÓRI ríkisfyrirtækis í Belgrad neitar að hlýða skipun
stjórnarinnar um að ráða kvenfólk til starfa við fyrirtækið.
— Karlmenn vilja ekki vinna með ljótum konum, — og þeim
verður ekkert úr verki eigi þeira að vinna með fallegum konum,
segir hann.
HAGUR allra versnar, — hagur engra batnar, sagði Johnson
Bandaríkjaforseti, nýlega í ræðu, — ef ábyrgir borgarar sitja
og halda að sér höndum, á meðan stjórnarvöldin berjast fyrir
betri lífskjörum — eins og þeir væru að horfa á íþróttakeppni!
^ ÞAíi er ekki ofsögum sagt af klúbbalífinu í London. Nú hefur
Jcvennal lúbbur verið stofnaður, — sem þegar hefur vakið mikla at-
hygli. Klúbburinn hefur aðsetur skammt frá hinu stóra Wadsworth-
fangelsi-.
Þa'<‘ skilyrði er sett fyrir inntöku í klúbbinn, að konumar séu
giftar n.önnum, sem eru að afplána sekt sina í fangelsi. Þótt aðeins
sé vika liðin frá stofnun klúbbsins, — eru meðlimimir þegar komnir
yfir 10C.
Á íundunum fara fram umræður um ýmis konar vandamál þess-
ara kvcnna, — fyrst og fremst fjárhagsleg, — tedrykkjan er auð-
vitað nikilvægur liður í samkomuhaldinu og móttaka manna, sem
eitthvaC eiga undir sér, — og geta því útvegað mönnum kvennanna
vinnu, þegar þeir losna úr fangelsinu.
GATIAN væri að vita, hvort Salote drottning hafi haft einhvern
fulltrúa sinn á uppboðinu, sem nýlega var haldið á Suva á Fiji-
eyjúnum.
Þar var nefnilega selt mikið af hinum svonefndu: „Mannætugöffl-
um“, — sem íbúar eyjarinnar notuðu eitt sinn í veizlur, því að lögin
mæltu ;vo fyrir, að ólöglegt væri, að snerta mannakjöt með berum
höndurr. við veizluborð.
FRÚ Jóreiður vildi endilega komast í sumarfrí eitthvað út í lönd,
svo að íún sagði við manninn sinn:
— Ástin mín, — ég get ekki hugsað mér neitt yndislegra en að
liggja á hvítum, hlýjum sandi, horfa upp í bláan himininn og hugsa
uni þig.
— Ástin mín, sagði hann. Ég hef ekki ráð á því í ár. Þú verður
að láta þér nægja að vera hjá mér og hugsa um hvítan sand og
bláan himin.
LYf DON B. Johnson, Bandaríkjaforseti, hefur ákaflega gaman af
að dan a. Nýlega sat hann veizlu í London ásamt með McNamara,
varnarr lálaróðherra og öðru stórmenni. Varnarmálaráðherrann og for-
setinn átu löngum á tali og ræddu hin margvíslegu vandamál, sem
steðja ið Bandaríkjunum þessa dagana. Svo kom þó, að forsetinn
stóð á ætur, gerði afsökun sína og sagði:
— Kæri, McNamara. Viljið þér gera mér þann greiða að íhuga
vandanálið með Vietnam einn um stund. — Mig langar til að fá að
daúsa riæsta dans við konuna yðar.
w. BRI TT Eklund, hin sænska eiginkona Peter Sellers, leikara, sagði
nýlega í Madrid, að hún vildi óska þess, að barnið, sem hún á von
á | jan íar, verði stúlka.
) — Vegna Peters, bætir hún við brosandi. — Því að karlmenn
vijja a Itaf hafa sem mest af kvenfólki í kringum sig, — er það
ekki sa ;t?
t
MAitGT gerist merkilegt í sambandi við kosningabaráttuna vestan
haífs. E/erett MeKinley Dirken, leiðtogi republikanska minnihlutans
1 öldun gadeildinni og sem átti ekki svo lítinn þátt í því, að Barry
G^ldwaær var útnefndur frambjóðandi flokksins til forsetakosning-
anna, — hefur mikið dálæti á blómarækt og þá fyrst og fremst sér-
stðku b ,ómi, sem ber gul blóm.
Ný ega fékk hann skeyti frá blómaræktarmanni í Minneapolis,
Sem er republikani eins og Dirksen:
— Þegar ég frétti, að þér stydduð Goldwater, fór ég út í garð
•g reíf upp öll gulú blómín mín.
Dii ksen öldungadeildarþirigmaður svaraði um hæl:
— Veslings; blómin.
Innan tíðaf verður frumsýning
á söngleiknum Stanzið heiminn,
ég ætla að sjtökkva af! — í gler-
salnum í TivQli í Kaupmannahöfn.
Söngleikurinri hefur hvarvetna
vakið athygli, þar sem hann hefur
vérið sýndur. Leikstjóri í Kaup-
mannahöfn er Niels-Jörgen Kais-
er, og hann ér að sjálfsögðu önn-
um kafinn við æfingar svo og all-
ir þeir, sem taka þátt í leiknum.
Söngleikurinn gerist á hringsviði,
sem er umhverfis áhorfendasvæð-
ið. Aldrei er skipt um svið og
leikararnir breyta næsta lítið um
gervi, þótt þeir leiki í 50 ára
lífsstríði, — frá æsku til elli. —
Lily Broberg er Evie og Buster
Larsen (litla náungann) Þumal.
Þau verða ástfangin á unga aldri.
Áhorfendur fylgjast svo með lífi
þeirra, lijónabandi, barneignum,
ævina til elli. Sonja Bjarne og An
ett Blichmann leika dætur þeirra
tvær, ungu stúlkurnar sjö í kórn-
uiri hafa nóg á sinni könnu, þvi
að. þær leika strætisvagnafarþega,
verksmiðjustúlkur, skrifstofu-
stýlkur, borgarráð og enska þing-
menn. Lily Broberg hefur einnig
mörg hlutverk á hendi. Hún leik-
ur ensku stúlkuna Evie, Ilse þá
þýzku, Anyu þú rússnesku og
amerísku næturklúbbsdansmeyna
Ginnie, — en hún leikur öll.þessi
hlutverk í sömu fötunum. Busten
Larsen leikur Þumal í gervi
trúðs. Hann er streberinn, er ekki
telur tillit til neins, — en þegar
viðburðirnir verða honum ofviða,
hrópar hann, — Stanzið heim-
inn, ég ætla að stökkva af; — en
gleymir því 10 sekúndum seinna.
Því að þá er hann með allan hug-
ann við að koma sér áfram upp Myndin ér af Buster Larsen í
á tindinn. hlutverki Þumals,
Hundgá hrellir
alla nágrannana
DÓMSTÓLL í Ascot í Englandi I ekki á móti lögum né rétti að eiga
hefur úrskurðað, að það stríði 160 hunda, sem gelta nótt sem
. __________nýtan dag, svo að nágrannarnir
hafa ekki svefnfrið né geta talað
saman í eðlilegri tónhæð. Ná-
grannarnir hófu mál á heridur
hundaeigandanum og lýstu því
yfir, að hundgáin væri orðin plága
í nágrenninu. Fólk er hætt að
koma í heimsókn, og liúseigend-
urnir verða að halda að heiman
með fjölskyldur sínar á helgum
til þess að fá stundarró. Margir
verða að taka taugaróandi töflur
til þess að geta þolað þetta án
þess að missa vitið. Ein húsmóðir
lýsti því yfir, að hún fengi aldrei
frið fyrir hundgánni nema á mánu
dagsmorgnum, en þá lætur svo
hátt í þvottavélinni hennar, að
það yfirgnæfir allt annað.
Hvað um það. Rétturinn úr-
skurðaði, að ekkert í énskum lög-
um bannaði liundahald, — svo
að hundarnir geta gelt svo hátt
og lengi sem þeim sýnist.
☆
ÖLLU getur nú fólkið fimdið upp á til þess að græða peninga.
Herra Kenrierh Lessons, sem hefur stundað nám við Listahá-
skóla bæði í Sheffield og London, hefur nú snúið sér að því
að framleiða skartgripi, sem eru óneitanlega talsvert óvenju-
legir. Hann gyllir ýmis konar grænmeti, svo sem gulrætur og
lauka.
Stúlkan hérna á myndinni, — sem ku vera vinsæl fyrir ein-
hvers konar dægurlagasöng í Englandi, virðist vera á báðum
áttum um það, hvort hún eigi að smakka á stássinu!
—r Átta marins, sem komið er
yfir 100 ára aldur, og hvorki reyk-
ir • eða drekkur, lifir einangruðu
lífi í 670 metra liæð í 'Hsunhua
Sala-héraðinu í Chinghai-liéraðinu
í norð-vestur Kíná, að því er
fréttastofan Nýja Kína segir.
Þarna eru fjórir karlmeftn og
fjórar konur, — ein þeirrá er 106
ára. Öll vihna þau meira eða
riiinna létt störf. Þau eru öll við
góða heilsu og stálmirinug, þrátt
fyrir háan aldur.
4 4. sept. 1964 - ALÞÝÐUBLAÐIÐ