Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 63

Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 63
63 því einu, þó ekki væri annað. Ef ekki væri sérvizku-stafsetning Bjarna á bókinni, mundi margur, sem gripi niður í hana, halda að hann væri að lesa íslenzka fornsögu. V. G, FRIÐRIK J. BERGMANN: VAFURLOGAR. Winnipeg 1906. Svo nefnir höf. fyrirlestra nokkra eður erindi, er hann hefir flutt við ýms tækifæri vestan hafs. Efnið í erindum þessum er margskonar. og að flestu mjög hugðnæmt. Talsvert er þó af mærð og endurtekn- ingum í bókinni, sem gerir hana óskemtilegri aflestrar en ella ; en rétt sjálfsagt er, að fyrirlestrarnir muni þykja áheyrilegir, er þeir eru fluttir, alþýðu manna. Það gerir, að yfir þeim er þægilegur blær, er getur gert efnið hrífandi, er það er flutt af mælsku. En auk þess sem málið á þessum »lestrum« er dálítið einfeldnis- legt með köflum, og sumstaðar naumast rétt íslenzkt mál, þá verður heldur ekki alls kostar felt sig við, hvernig höf. fer með efnið að mörgu leyti. Hér er þó ekki rúm til að rekja það, enda ekki afar- nauðsynlegt, því að bæði virðist höf. tala mest til Vestur-íslendinga, og í annan stað getur enginn haft ilt af því að lesa bókina, þótt at- huganir hans séu ekki alstaðar réttar. Höf. verður skrafdrjúgt um illindisdeilur, óþarfa þras og ríg, er ríki meðal íslendinga. þeirra er opinberlega koma fram, einkum blaða- mannanna. Ætli það hafi verið sakir þessa, að sum blöðin heima keptust við að flylja ádrepur úr þessari bók og hrósa henni — þá gátu menn séð, að þau tóku það ekki til sín?! — Hann er og æst- ur út af því, hve Islendingar séu »siðlaus« þjóð; hann segir vera »leitun á jafnsiðlítilli þjóð og vér erum«, og kveður það vera siðleys- ingjana er »myndi sögu hennar« (0: ísl. þjóðarinnar). Sem sönnun þessa telur hann, að »fimti hluti allra barna, sem fæðast á fósturjörð vorri, er óskilgetin« ! Dágóð röksemdafærsla, eða hitt þó heldur. Ann- ars ætti hugsandi mönnum nú á tímum ekki að verða það á, að miða eiginlegt »siðleysi« við fæðingu »óskilgetinná« barna, sem alt aðrar or- sakir geta legið að. En þó ýmislegt megi að bók þessari finna, þá nær þó berserks- gangur ritdómarans í »Heimskringlu« gegn henni engri átt; því í henni er margt gott og vel athugað. G. Sv. ARAMÓT hins ev. lút. kirkjufél. íslendinga í Vesturheimi 1907. III. ár. Þetta rit er í ár með þeim betri ritum um andleg efni, sem ég hefi séð þaðan að vestan um hríð. í því eru eigi allfáar ýtarlegar ritgerðir, um mikilsverð mál, auk skýrslna um kirkjumálaþingin o. fl. Ég vil t. d. benda á 2 greinar. Sú fyrri er eftir ritstjórann séra Björn B. Jónsson og kallast »Framtiðarhorfur«; hún er um framtíðar- horfur hins ísl. þjóðernis og ísl. tungu með íslendingum vestan hafs. Þótt greinin sé mest skrifuð frá kirkjulegu sjónarmiði, þá hefir hún —- eða efnið — þó almennari þýðingu, því að hér er um að ræða, hvort íslendingar muni til lengdar geta haldið sér sem sérstök þjóð innan um aðrar þjóðir. Og höf. kemst að þeirri niðurstöðu, er ég álít alveg rétta, að engin tök séu á því. íslendingar, eins og flestir aðrir þjóð-
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.