Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Page 53

Eimreiðin - 01.01.1908, Page 53
53 hvernig hann fer aö komast að slíkri niðurstöðu, þar sem þessi tillög aðeins ber að skoða sém vexti af höfuðstól, sem ekkert heíir verið afborgað af. Auðvitað geta vextir á löngum tíma numið að samtöldu eins miklu eða margfalt meiru en sjálfur höf- uðstóllinn; en engum heilvita manni dettur þó í hug að halda því fram, að búið sé að greíða höfuðstólinn, þó menn hafi staðið í skilum með vextina. I fljótu bragði getur svo virzt, sem herra Orluf hafi rétt fyrir sér, er hann kallar það ranghermi í riti Einars Hjörleifssonar »Frjálst sambandsland«, að þar sé um nákvæmlega sömu stefnu að ræða eins og 1851, með því að framar í því riti er minst á hærri fjárkröfur og sérstakan fána og sérstaka konsúla, sem ekki var farið fram á 1851. En hér er þó í raun og veru ekki um neitt ranghermi að ræða. Orðin »þetta er nákvæmlega sama stefnan, sem haldið var 1851« verða sem sé eingöngu að miðast við þá ákveðnu stefnuskrá, sem sett er fram rétt á undan þess- um orðum (bls. 85—86, í dönsku útgáfunni bls. 76—78), og þar er hvorki tiltekin nein fjárupphæð, né minst á sérstakan fána né sérstaka konsúla. Þar er það tekið fram, að það sé samnings- atriði, hver mál vér felum Dönum, og sama var líka tekið fram 1851, þótt þá væri um leið gengið út frá því, að fáninn yrði sam- eiginlegur. Par er það líka tekið skýrt fram, »að sjálfsagt sé, að Danir fái endurgoldinn þann kostnað, sem þeir hafa við það að reka erindi vor, hvort þau eru nú utanríkismál, strandvarnir eða annað«, og er því einnig í þessu efni fult samræmi við þá stefnu þjóðfundarins 1851, að Island skyldi greiða tillag til þeirra al- mennu ríkisþarfa, er það ætti þátt í. Allar hnútur og ónot í grein herra Orlufs skulum vér láta eiga sig, þótt vandalaust væri að gjalda honum í líkri mynt. En í slíku alvörumáli sem þessu álítum vér að bláberar röksemdir eigi betur við en hnippingar eða hnútukast, er lítt miða til að greiða fyrir góðu samkomulagi milli Dana og Islendinga, sem þó væri ekki vanþörf á um þessar mundir. V. G.

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.