Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Page 34

Eimreiðin - 01.01.1908, Page 34
34 minnast landsins, hlýtur, ósjálfrátt, um leið að verða mitining mannsins. Jónas kemst svo að orði um ástand fósturjarðarinnar, að hún væri ♦ viðjum reyrð og meiðslum marin, marglega þjáð«, og á þeim tímum var þetta ekki sagt um skör fram. Pað virtist svo, sem þá lægi flest í kaldakoli, er til frama mátti verða landi og lýð. Athugasnauð þjóð — og þeir menn, er eitthvað vildu og þorðu, vildu hefjast handa, vóru einstæðingar; en það vóru góðir drengir, er eigi létu hugfallast, en vóru þess búnir að vinna fyrir ættjörðina. Peir sáu, hversu alt gekk á tréfótum, »öllu snúið öfugt þó« segir Jónas, en þeir létu það ekki fæla sig frá aðfinningum, þótt þeim væri illa tekið; þeir vildu rísa öndverðir gegn ástandi því, er landinu var haldið í. Jónas gekk skjótt í fylkingu þeirra manna, er sett höfðu sér það markmið, að hefja hina íslenzku þjóð, hefja hana upp úr andlegu og efnalegu volæði, gera hana mentaða og frjálsa, sem hún fyrrum var, láta hana öðlast hugmynd um það, að það var hún, ísl. þjóðin, sem átti landið, og þessvegna yrði hún að notfæra sér gæði þess, neyta réttar síns, ef hún vildi »lifa lengi í landinu«. Með öðrum orðum: Pessir frumherjar okkar og beztu menn ætluðu hinni íslenzku þjóð að brjótast aftur til ríkis á íslandi! Og Jónasi og félögum hans tókst að gera mikið að — þeim tókst að hefja þjóðina nær ótrúlega mikið, eftir því sem á horfð- ist, þar sem við ramman var reip að draga: útlent vald og innlenda deyfð. — Það sem við erum nú á veg komnir, eigum við að ekki litlu leyti að þakka Jónasi. I gegnum öll verk Jónasar skín eins og skær stjarna hin heita ættjarðarást hans; hún var hans leiðar- stjarna, það fyrsta og síðasta í athöfnum hans. Hvar sem komið er að í ljóðum hans, verða menn hins sama varir: Frá því flögrar hann, að því hverfur hann. Hann heyrði raddir, raddir, sem hon- um fanst að mundu Hiræra klakabundinn stein«, raddir, sem kváðu um • horfinn þjóðaranda«. En þó er hann svo bjartsýnn, að hann sér

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.