Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Side 28

Eimreiðin - 01.01.1908, Side 28
28 hefði ég nærri sagt — drottins vors, heldur á allri heimskipun guðs. Oll skoðun vor á sögu mannkynsins og framtíð verður fyrir gagn- gerðri breytingu af áhrifum þekkingarinnar á framþróuninni sem náttúrulögmáli. Áður var framtíðin í augum kristninnar sem hræðilegt skrimsli, sem magnaðist meir og meir og varð verra og verra viðureignar. Hins góða, hins eftirsóknarverða —■ þess var alla jafna að leita í fortíðinni. »Skelfilegir tímar eru það, sem vér lifum á!« — »og hvernig ætli þetta fari?« Þetta gekk mann frá manni. — Og það er enn viðkvæði margra kristinna manna. Menn urðu að líta aftur fyrir sig, til að finna almætti guðs, góða tíma og góða menn. í heimsþróuninni er falið göfugra traust til valds hins góða. Og þvi er það djúp kristileg hugsun hjá Herbert Spencer, að lyndiseinkunn mannsins muni taka slíkum framförum af áhrifum framþróunarinnar ■— útvalningarlögmálinu —, að hugsanlegt sé að almenn framlagsfýsi kom- ist svo langt, að hún likist hjálpfýsi foreldra við börn sín. Og við sama traustið til sigurs hins góða verðum við varir í þjóðmegunarfræðinni, sem aftur hefir gengið í skóla hjá líffræðinni. »Þannig mun baráttan fyrir tilverunni, þá er til lengdar lætur, gera þá menn lífseigasta, sem fúsastir eru til að fórnfæra sjálfum sér fyrir með- bræður sína« (prófessor Marshall). Þetta er viðurkenning og undir- skrift vísindanna undir orð Jesú: »Hver sem vill vera mestur meðal yðar, verður að vera þjónn allra.« Á meðan vöxtur hins vonda er aðalatriðið í framtíðarhugleiðing- um kristinna manna, á meðan getur sá áburður á kristindóminn, að hann leiði til eigingirni, sé fremur öllu að leitast við að frelsa sjálfan sig, hæglega komið mönnum svo fyrir sjónir, að hann sé alls ekki tilhæfulaus. Þegar nú vísindin hafa sýnt oss, að sigur hins góða sé skildagabundinn heimsreglunni, er fyrir oss kristna menn nýju ljósi varpað yfir líf Krists og verk hans. Líf Krists og veik verður kraftur, sem settur er inn í alla framþróun lifsins. Fyrir því verður gildi þessa verks hans ekki innan svo þröngra vébanda, að það nái aðeins til trúarlífsins, eða snerti að eins kristna með trúarjátning, heldur opin- berar það sig í allri komandi framþróun lífsins, og leiðir hana áfram sem útvalningarinnar-kraftur. Ekki þarf orðum að því að eyða, að með þessari víðsýnu öruggu vissu um ómótstæðilegan mátt framfaranna sem heimsreglu hlýtur að fylgja alt annað þrek og kraftur í baráttunni fyrir hinu góða og gegn hinu vonda, en orðið gat í þessari baráttu, meðan menn ráðþrota trúðu, að ekkert á jörðunni nema dómsdagur einn gæti leitt í ljós sig- ur hins góða. Með því að vísindin hafa uppgötvað, að framþróunin væri nátt- úrulögmál og sannað með líffræðinni, að alt lífið yfirleitt er háð ákveðnum lögum, er grundvelli siðferði vorrar lyft svo upp, að hún skoðast ekki lengur sem sérstök boðorð, sem þeir einir hlýddu, sem trúðu því, að guð hefði boðið oss það, heldur sem náttúrulögmál — guðs lögmál til fullkomnunar vorrar. Meðan boðorðin stóðu sem á stangli, litu þau út sem gerræðisboð, sem köstúðu skugga á guð sjálf- an. Fyrir því var það, að mönnum gat komið til hugar, að bæta

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.