Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 26

Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 26
2Ó ar — eða samhliða hegningunni. Nú játa menn, að brennimark hegn- ingarinnar sé siðspillandi. í stað þess, sem áður. að láta eitthvað ægi- legt, söðrum lyndislíkum til skelfingar og viðvörunar«, eða sem í end- urgjaldsskyni, koma í stað glæpsins, er það nú meir og meir takmark löggjafarinnar á aðra hliðina, að reyna að siðbæta þegnfélagsástandið, sem leiðir beint til glæpsins eða freistar til hans, og hinsvegar með ýmsum hætti að hafa áhrif á viðreisn hins fallna, svo að hann gefist ættingjum og þjóðfélaginu sem betri maður. Af þessum nýju áhrifum vísindanna á löggjöf vora (o: Norð- manna) vil ég nefna hegningardóma með skildögum, lausn úr fangelsi til reynslu og lögráðalögin, sem neyða bæði til að frelsa börn frá vondum áhrifum siðspiltra foreldra, og láta fóstur koma í staðinn fyrir hegningu á barns- og æskualdrinum, sem og að forðast að brenni- merkja börn með lægjandi og siðspillandi hegningu. það er viður- kenning þess, að hið góða sé sterkara vald en hið vonda. sterkara en begning, háð og fyrirlitning, sem er andinn í dómsköpuin og löggjöf vorrar aldar. Takið eftir mismuninum á skilningi Kalvíns, er hann sagði: »Það er betra að mörgum saklausum verði hegnt, en að einn sekur sleppi við hegningu®, og á lagabót vorri, sem segir: sHver einn efi skal verða sakborningi í vil«, og af io atkvæðum dómenda þarf fleiri en 6 til að dæma mann sekan. En þeir menn, sem barist hafa fyrir, að þessi mannúð — mér liggur við að segja þessi uppeldisfræði í meðferð glæpamanna — bæri sigurinn úr býtum, hafa svo oft orðið fyrir hrakyrðum af íhalds- og rétttrúnaðar stefnunni, — hafa verið titlaðir vinir glæpamanna ásamt fleirum nafnbótum! Menn hafa gleymt því, að það var stofnandi kristin- dómsins, sem fyrstur varð að þola brigzl fyrir þess kyns vináttubrögð og var nefndur vinur tollheimtumanna og bersyndugra. Endurgjalds- lögmál Gyðinga: »Hver sem úthellir mannsblóði, hans blóði skal af mönnum úthelt verða«, skoðaði þessi stefna sem þann grundvöll, er kristnir menn ættu að byggja á. Umburðarlyndis og frelsisandanum er það að þakka, að alt, sem nefnist góðgerðarsemi og miskunarverk, — sem viðurkent hefir verið að væri sérskylda kristinna manna — hefir náð sér niðri eftir skiln- ingi Jesú, sem það verk, er öllum beri jafnt að sýna án undanfarandi réttarprófs um, hvort um Gyðing eða Samverja, trúarjátning eða ekki trúarjátning væri að ræða. »Eú átt að elska drottinn guð þinn«. Það er Krists fyrsta og stóra boðorð. Tilraun vil ég gera til að sanna, hvem stuðning hinar frjálsu sannleikselskandi rannsóknir hafa veitt, til að hreinsa og hefja guðshugmyndina, og með því gert mönnunum auðið að læra að elska guð, í stað þess að þrælka í hræðslunni og óttanum fyrir honum. Viðurkenningin um að náttúran sé niðurskipuð eftir ákveðnum lögum, sem tók að ryðja sér til rúms með stjörnufræðisuppgötvunum á ió. og 17, öldinni, kemst einlægt lengra og lengra, unz hún með tveimur vísindagreinum vorra tíma, jarðfræðinni og líffræðinni, nær til sjálfs lífsins. Nú vitum vér, að frá því fyrst að lífs varð vart á hnetti vorum, alt og til þess, að það hafði náð sínum æðsta þroska með manninum, þá er líf þetta háð ákveðnum. lögum. Já nú erum vér farnir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.