Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Side 17

Eimreiðin - 01.01.1908, Side 17
17 hræsni. Innócentíus VIII. gerði alla borgaralega embættismenn ræka úr kirkjufélaginu, sem ekki höfðu fullnægt dómum trúvillurannsóknar- innar innan 6 daga, enda þótt umsóknir þessar væru enn viðhafðar. f>að var þó fyrst á 13. öld, að kúgunarreglur kirkjunnar náðu fullum þroska og hinar miklu ofsóknir brutust út. Ný tímamót ’nefjast um þessar mundir í framþróun kaþólsku kirkjunnar. Afturhaldsstefnan heldur nú fyrir alvöru innreið sína í kristnina. Ég skal aftur taka það fram, að tilgangur minn er að eins að sýna, hve hörmulega kirkjunni tókst að skilja og tileinka sér kenningar Krists og að lifa samkvæmt boðum hans, meðan öll frjáls rannsókn og frjáls notkun skynseminnar og mannvitsins var bönnuð. Hinsvegar veit ég vel, að sé einhliða á þetta litið, fær maður ranga hugmynd um áhrif kirkjunnar á menningarþroskann. Vil ég láta þess getið, að þrátt fyrir sínar stóru og miklu syndir hafði kaþólska kirkjan stórvægi- leg mentandi áhrif á 12 fyrstu aldirnar. Hún safnaði hinum ósam- kynja siðlausu þjóðflokkum í eitt trúfélag með háleitu markmiði, kendi þeim að kannast við vald, sem voldugra er en hervald og hnefaréttur. Hún dró úr og afnumdi að lokum þrælahaldið, og tók að sér þá, sem ójöfnuði sættu í mannfélaginu. Hún kendi þeim friðsamleg störf og margt annað í menningaráttina. Sem fyr er sagt, hafði kirkjan kúgunarkerfi sitt frá byrjun 13. aldar. Innócentíus VIII. setti rannsóknardóminn á laggirnar árið 1 208. Og 1209 hófst niðurbrytjun Albígensanna. 12x5 lagði 4. Lateran- sýnódan fyrir alla valdsmenn, að »ef þeir vildu teljast rétttrúaðir, skyldu þeir opinberlega sverja, að þeir vildu vinna að því af öllum mætti, at útrýma úr löndum sínum öllum, er kirkjan hefði brenni- merkt sem villutrúarmenn. Hið sterkasta ímyndunarafl vorra tíma getur varla gert sér grein fyrir hinu ískalda og grimmúðlega tilfinningarleysi fyrir þjáningum ann- arra, sem smátt og smátt óx fram úr þessu ofsóknarofstæki, og setti sig 1 þann sess, sem kærleikanum til bræðranna var ætlaður. Pað var ekki þessi æðislega grimd, sem samfara er hernaðarlífinu. Það var blátt áfram þrælmenska, gagnhugsuð grimd, framin með köldu blóði, og fyrirskipuð af jarli Krists hér á jörðunni. Og þótti hún góðra gjalda verð. Þriggja ára syndalausn var þeim heitin, sem án þess að vera rannsóknardómari hjálpaði til að draga villutrúarmenn fyrir dómstólinn. Alt var þetta samfeld afneitun kærleiksboðorðsins. Andstygð ofsóknanna þekkja menn svo vel og þeirra gersamlega andstæði við boð Krists er svo deginum ljósara, að hér þarf engrar frekari útlistunar við. Að eins vil ég tilfæra tvent frá seinni tíð of- sóknanna. Og má af því marka á hve ógurlega hátt stig affærslan náði frá því sem Kristur hafði boðið. Næn'i þykir láta, að á ríkisstjórnarárum Karls V. hafi 50,000 manna verið slátrað í Niðurlöndunum (Grótíus segir 100,000) og á dögum Filips II. að minsta kosti 25,000. Ekkert það ódæma afskræmi var til, að kirkjunni ofbyði. 16. febr. 1568 dæmdi rannsóknarrétturinn alla íbúa Niðurlandanna til dauða fyrir villutrú. Að eins fáir nafngreindir menn voru undanskildir. Filip II. staðfestir dóminn 10 dögum seinna, og bauð að framkvæma hann. xÞrjár miljónir

x

Eimreiðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.