Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 14

Eimreiðin - 01.01.1908, Qupperneq 14
14 Kenningin um helvíti og kvalirnar þar magnaðist óðum, og varð svo yfirtaks voðaleg, að svo mátti kalla, að andlegt líf Norðurálfunnar lægi öldum saman agndofa undir fargi hennar. Djúphygginn þýzkur guðfræðingur komst að þeirri niðurstöðu eftir nákvæma rannsókn, að samtala allra drýsildjöfla væra 2, 665, 866, 746, 664(1) Skrá var og samin (árið 1569) yfir nöfn 72 djöflahöfðingja með nákvæmri lýsingu á öllu fyrirkomulagi í helvíti. Vér hlæjum nú að þessu. Þó er það ekki lengra síðan en í fyrra (o: 1904), að bók kom út á Þýzkalandi um sama efni. Er vér nú gerum oss grein fyrir, hve hugfangnir menn hafa hlotið að verða af helvítisfræðunum, til þess að menn skyldu skrifa þetta og trúa því, þá er auðsætt, að helvíti varð sýnu áhrifa- sterkara ráð til að hræða menn inn í kirkjuna og inn undir andafarg hennar, en himininn var til að hæna menn að sér. Er menn voru vissir um, að sá, sem í einu eða öðru, hversu óverulegt sem það var, hafði aðra trú en kirkjan kendi, hefði ekkert undanfæri að lenda í klónum á þessum aragrúa vondra og máttugra anda, og yrðu í helvíti að þola kvalir, sem eigi að eins tóku langt fram öllum jarðneskum kvölum, en auk þess vöruðu án afláts um alla eilífð, þá skilst mönnum það, að það varð að skoðast kærleiksverk, að neyta allra hugsanlegra bragða til þess, að kúga menn til að aðhyllast það, sem eitt gat bjargað þeim: trú kirkjunnar. Þetta leiddi til þess, sem er versti skammarbletturinn í sögu kristilegrar kirkju — til trúarofsóknanna. Eftir öðru spurði ekki kirkj- an við upptöku og burtrekstur úr félagi sínu en trú og skoðunum. — Fyrir illverk hafði hún fyrirgefning í stórum mæli. En af því má þá líka ráða, hvernig fara hlaut persónulegu sannsögli ásamt kærleika og virðingu fyrir sannleiksandanum, er skyldi vera undirstaða fyrir til- beiðslu mannanna, og gera þá andlega frjálsa. Þar sem nú hinum hræðilegustu ógnunum um kvalir í helvítis eldi eftir dauðann var ósleitilega beitt, og til áréttingar og til þess að sjón yrði sögu ríkari, að hinar þrælslegustu pyndingar voru viðhafðar í lifanda lífi (og ást- vinirnir sluppu sennilega ekki betur), þá má nærri geta, að sannleik- urinn í trúarjátning alls þorrans hafi ekki verið á marga fiska. Ekk- ert líklegra en að þeir kysu heldur að afneita samvizku sinni og skyn- semi, er þau hófu sín mótmæli. Eða þeir hafi leitast við að kæfa sannleiksfýsnina jafnskjótt og hún tók að óspekjast. Vera má að kirkjan hafi ekki að því skapi knúð fram hræsnina sem hún gersam- lega drap sannleikshugmyndina og sannleiksástina hjá öllum þorra manna, með því hún beinlínis gerði alla persónulega viðleitni til að leita sannleikans syndsamlega(H) En hér var þó ekki staðar numið. Það var blátt áfram ágætt að viðhafa hin svonefndu »meinlausu svik«, til að vinna sálir fyrir kirkj- una — fyrir Krist! Menn bjuggu til spádóma og kraftaverk. Heilagir dórnar fundust, og þeir látnir gera kraftaverk. Hinn andstyggilegasti rógburður var borinn út um þá, er kirkjunni sýndu mótþróa. Orsakir, sem réttlættu þess háttar lygi, telja grískir kirkjufeður sjálfsvörn, misk- unsemi, kappsemi í þarfir guðsríkis og því líkt. Hægðarleikur varð þá að finna lyginni gilda afsökun. Vitaskuld kvað Ágústín áfellisdóm upp yfir öllu þess kyns atferli. Þó fór það meir og meir i vöxt. Og í
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72
Qupperneq 73
Qupperneq 74
Qupperneq 75
Qupperneq 76
Qupperneq 77
Qupperneq 78
Qupperneq 79
Qupperneq 80

x

Eimreiðin

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.