Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Page 7

Eimreiðin - 01.01.1908, Page 7
7 Tacítusar og þá var og farið að dýrka hann með mannblótum. Á Norðurlöndum hlýtur hann að hafa orðið viðurkendur sem höf- uðguð ekki síðar enn á hinum herskáu þjóðaflakksöldum. — Inn í þetta vefast svo aðrar hugmyndir; víðast hvar í suðurhéruðum Norðurlanda álitu menn, að sá guðinn, sem þeytist ríðandi yfir akrana, gæfi og korninu vöxt og þroska. En annarstaðar átti Pór þátt í því. Meiru skiftir þó það, að Óðinn var guð galdra og fjölkyngi. Af því hann var á sífeldu flakki á næturnar og þeyst- ist áfram með ótrúlegum hraða, hugsuðu menn sér mjög snemma, að hann væri fjölkunnugur. En út af því sprettur svo hugmyndin um guð, sem þekkir alla leyndardóma náttúrnnnar, stýri henni og stjórni með orðum sínum einum, og kenni lærisveinum sínum meira eða minna af þessari speki sinni. Petta er einmitt eitt af því, sem hvað mest einkennir Óðin í trúarlífinu; menn geta staðið í sérstöku sambandi við hann. Hver einstaklingur á að leita hans á laun á krossgötum, þar sem hann er á ferðinni á næturnar, gera sáttmála við hann og fá það, sem menn óska sér: Gefr sigr sumum, mælsku mörgum en sumum aura, ok mannvit firum. Menn álíta, að hann þekki alla hulda fjársjóði í jörðu, en framar öllu á hann þó sérstaklegt vald á öllum andans gáfum. Hann veitir hug og hreysti í orustum og skáldunum skáldskapargáfuna. 1 »Sonatorreki« þakkar Egill Skallagrímsson Óðni fyrir að hann hafi gefið sér »þat geð, es gerðak mér vísa fjándr af vélöndum«, Sumt virðist benda á, að þessi Óðinsdýrkun hafi jafnvel myndað sérstakt trúarlíf innan vébanda heiðninnar. Menn eru »signaðir« Óðni og þannig gerðir að þjónum hans; aðrir fæðast af barnlaus- um foreldrum fyrir áheit á Óðinn, og eru því hans eiginleg eign. Galdrasöngvar Óðins, sem hljómað hafa »Háva höllu í«, eru end- urteknir af mönnum sem heljar launung, er þeim hefir verið trúað fyrir. Og því er skotið fram, að það séu þessar dularrúnir, sem í hvívetna beri gang tilverunnar og veiti manninum afl sitt og styrk; þær séu fyrir órofi alda ritaðar af »þul hinum mikla«, og síðan endurteknar af Óðni með Ásum, eins og af hinum jarðneska þul meðal mannanna; það liggur við, að menn séu farnir að hugsa sér Óðin eingöngu sem rúnameistara eða rúnadróttin. I almennu trúarlífi leiðir þetta til þess, að vald annarra guða minkar; hví

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.