Eimreiðin


Eimreiðin - 01.01.1908, Page 2

Eimreiðin - 01.01.1908, Page 2
2 og almennum veizluglaum. Og þegar helgihaldinu svo var lokib, sneru allar þessar samansöfnuðu þúsundir blótmanna heimleiðis með því örugga trausti, að eftir slík blót mundu goðin veita öllu kviku ár og frið og láta bæði menn og skepnur njóta í hvívetna heilsu og happa. En í lundinum héngu búkleifarnar frá blótunum; einn sjónarvotturinn taldi þar eitt sinn 72 lík í trjánum. Látum oss bregða upp annarri mynd frá sama tíma. Pað er um miðsvetrarskeið í í’rændalögum. Bændurnir þyrpast til jólaveizlu hjá hinum ríka Hlaðajarli. I hinum mikla veizlusal hans, sem jafnframt er goðahof, safnast menn hundruðum saman. Leir koma þangað á skíðum eða sleðum, hlöðnum ölverplum og barröskjum fyltum veizlukosti, og hafa með sér hross og smala. Að endi- löngu hallargólfi loga langeldar á skíðum og brátt verður fullskip- að á alla bekki. Kvikfénu er slátrað fyrir framan goðalíkneskin og blóðið látið renna í stóra hlautbolla, og þeir settir á stallana sem hin fyrsta fórn til goðmagnanna. Pá stígur jarlinn fram, tek- ur í hönd sér hlautteinana og rýður með vörmu blóðinu stallana, veggi hofsins utan og innan, og stökkvir því líka á mennina og alt, sem viðstatt er. Búkarnir eru brytjaðir í spað og látnir ofan í katla yfir eldunum. Jarl stígur fram með drykkjarhorn í hendi, signir það Óðni og heitir á hann til sigurs í orustum, því næst dreypir hann sjálfur á horninu og réttir það síðan tignasta gesti sínum, sem og drekkur af því og lætur það svo ganga boðleið áfram. Á sömu lund er drukkið full Njarðar og Freys til árs og friðar og þar næst Bragarfull (herrafull, fúll höfuðguðsins — Lórs). Pannig hafa þeir drukkið minni allra höfuðguðanna. Pá er og blótmaturinn borinn fram, soðið og hinir feitu kjötbitar; hver við- staddur á að fá sinn skerf, því þar eru allir gestir goðanna. Á svipaðan hátt hefir dýrkun hinna heiðnu goða farið fram um öll Norðurlönd, og að helgisiðirnir vóru svo blóðþrungnir og hrottalegir kemur dáindis vel heim við þann hörkubrag, er svo mjög einkennir alla framkomu Norðurlandabúa, þegar sögur fara fyrst af þeim. En að réttu lagi verður þetta alt saman ekki kall- að norrænt í þrengri merkingu; því hjá þjóðum, sem eru á frum- vaxtar- og herskaparskeiði, verður guðsdýrkunin hvarvetna með svipuðu móti. Hvarvetna kaupa menn sér vináttu guðanna með gjöfum; hvarvetna brytja menn fórnardýrin með blóðugum blóthnífum og hvarvetna birtist þessi kynlega helgi, sem menn álitu vera yfir öllu, sem vígt hafði verið guðunum, svo að menn

x

Eimreiðin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Eimreiðin
https://timarit.is/publication/229

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.