Fréttablaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 19
PRIÐIUPACUR 17. júlí 2001
FRÉTTABLAÐIÐ
19
Bók frá Bjarti:
Ungur indver-
skur höfundur
BÆKUR
OLAFUR JÓHANN
OLAFSSON
SÖáÐ
list Bókin Túlkur tregans í þýðingu
Rúnar Helga Vignissonar er komin
út á vegum bókaútgáfunnar Bjarts.
Höfundurinn, Jhumpa Lahiri, er
ung kona af indversku bergi brotin
og er þetta fyrsta bók hennar.
Höfundurinn túlkar í bók sinni
trega þeirra sem gista tvo heima,
fólks sem býr fjarri heimalandi
sínu. Bókin hefur farið sigurför um
heiminn og sjaldgæft er að útgáfa
smásagnasafns hafi vakið jafn-
mikla athygli. Jhumpa Lahiri hlaut
meðal annars Pulitzerverðlaunin,
virtustu bókmenntaverðlaun
Bandaríkjanna, árið 2000 fyrir
þessa bók. Einnig var hún valin í
hóp fremstu rithöfunda Bandaríkj-
anna af tímaritinu The New Yor-
ker.
Jhumpa Lahiri er fædd í
Englandi árið 1967 og eru foreldrar
hennar indverskir innflytjendur.
Síðar flutti hún til Bandaríkjanna
þar sem hún býr nú. Rúnar Helgi
Vignisson þýddi bókina. ■
ÞÝÐANDINN
Rúnar Helgi Vignisson hefur þýtt bók hin-
nar liðlega þrítugu Jhumpa Lahiri.
Meira, meira
Slóð fiðrildanna er dramatísk
saga. Atburðarrásin er hæg,
mörgum sögurn fer fram í einu
eða öllu heldur fylgist lesandinn
með aðalpersónunni, Dísu, á
mörgum skeiðum ævi hennar.
Þannig er persónan dregin upp
og lesandinn kynnist henni
smám saman og sótt er að loka-
punktinum frá mörgum hliðum.
Slóð fiðrildanna er vel skrifuð
bók. Til dæmis var skemmtilegt
hvað höfundurinn virðist hafa til-
einkað sér vel bókmál þess tíma
sem sagan gerðist. Það var eigin-
lega eins og sagan væri skrifuð á
fæðingarári höfundarins.
Slóð fiðrildanna er ein þeirra
bóka sem ekki verður sleppt fyrr
1-lL^DANNA
SLÓÐ FIÐRILDANNA:____________________
Ólafur Jóhann Ólafsson: Slóð fiðrildanna
Vaka Helgafell, kiljuútgáfa 2001
(1. útgáfa 1999) 367 blaðslður
að lestri loknum þótt húm kre-
fjist ekki mikillar yfirlegu. Ólaf-
ur Jóhann hlýtur að hafa stækk-
að lesendahóp sinn með þessari
bók og nú viljum við meira.
Steinunn Stefánsdóttir
nýlokið námi frá Listaháskóla íslands og
tengist yfirskrift sýningarinnar þema sem
þær unnu að í lokaverkefnum sínum.
Sýndir eru leirskúlptúrar og grafísk verk.
Sýningin er opin virka daga kl. 10 til 18
og kl. 14 til 18 um helgar. Henni lýkur 3.
ágúst.
Eggert Pétursson sýnir blómamyndir
sínar gallerfi i8 Klapparstíg 33. Sýningin
stendur til 28. júlí.
Þóra Sigurþórsdóttir leirlistarkona sýnir í
Guilsmiðju Hansínu Jens að Laugavegi
20b.
I Listasafni Kópavogs, Gerðarsafni
stendur nú sýning á verkum Gerðar
Helgadóttur, Gleriist og höggmyndir. í
tilefni sýningarinnar er kynning á minja-
gripum sem hópur hönnuða hefur unnið
út frá verkum Gerðar. Minjagripirnir eru
silfurmunir, postulín, slæður, bolir og
minnisbækur og verða þeir til sölu í
safninu. Sýningin stendur til 12. ágúst.
Hún er opin alla daga nema mánudaga
frá 11-17.
íslenskar þjóðsögur og ævintýri er
þema sumarsýningar Safns Ásgríms
Jónssonar við Bergsstaðastræti 74 i
Reykjavík. Á sýningunni eru margar af
frægustu þjóðsagnamyndum listamanns-
ins og þar má sjá vinnustofu, heimili og
innbú hans. Sýningin stendur til 1. sept-
ember.
í Listasafni Reykjavíkur - Kjarvalsstöð-
um er sýning sem ber nafnið Flogið yfir
Heklu. Sýningarstjóri er Einar Garibaldi
Eiríksson myndlistarmaður og prófessor
við Listaháskóla íslands. Á sýningunni
getur að líta mismunandi myndir Heklu
sem sýndar eru hlið við hlið. Sýningin
stendur til 2. september.
í miðrými Kjarvalsstaða er sýning sem
ber yfirskriftina 1461 dagur. Þar sýnir
Grétar Reynisson vaxtarverkefni af þeir-
ri tegund sem á ensku væri kallað „work
in progress." Sýningin stendurtil 19.
ágúst.
Hafliði Sævarsson sýnir í Gallerí Geysi !
Hinu húsinu. Sýninguna nefnir hann
Kinakrakka og sýnir hann aðallega mál-
verk en einnig skúlptúra og teiknaðar
skissur.
Yfirlitssýning Errósafnsins stendur f
Listasafni Reykjavíkur, Hafnarhúsi.
Fjórir listamenn sýna nú í Nýlistasafn-
inu. Þeir eru Daniel Þorkell Magnússon
í Gryfju, Ómar Smári Kristinsson á
palli, Karen Kirstein í forsal ogPhilip
von Knorring i SÚM-sal.
Málverkasýning Lárusar H. List, Vitund-
arástand stendur i Veislugallery og
Listacafé í Listhúsinu í Laugardal. Sýn-
ingin er opin alla daga frá kl. 9.00 til
19.00 og stendur til 31. júlí.
Sýningin List frá liðinni öld stendur yfir í
Listasafni ASf. Á sýningunni eru önd-
vegisverk úr eigu safnsins. Sýningin
stendur til 12. ágúst
Sumarsýning Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar ber yfirskriftina Hefð og ný-
sköpun. Þar má sjá úrval verka eftir Sig-
urjón frá þrjátíu ára tímabili, 1930-1960.
Safnið er opið alla daga milli klukkan 14
og 17, nema mánudaga.
Sumarsýning Listasafns fslands nefnist
Andspænis náttúrunni. Á henni eru
verk eftir íslendinga i eigu safnsins og
fjallar hún um náttúruna sem viðfangs-
efni íslenskra listamanna á 20. öld. Opið
er frá kl. 11 til 17 alla daga nema mánu-
daga og er aðgangur er ókeypis á mið-
vikudögum. Sýningin stendur til 2. sept-
ember.
Svipir lands og sagna er yfirskrift sýn-
ingar á verkum Ásmundar Sveinssonar
i Listasafni Reykjavikur, Ásmundar-
safni. Á sýningunni eru verk sem spanna
allan feril listamannsins. Safnið er opið
daglega 10-16 og stendur sýningin til 10.
febrúar á næsta ári.
Tölvugrunnur fer. 16.900
Helstu hugtök einkatölvu. Uppbygging og hlutverk stýrikerfa.
Notkun iykiaborös, músar, diskadrifs, prentara, skanna.
20 kennslustundir
Word I kr. 16.900
Grundvallaratriði ritvinnsluforrita. Innsláttur texta og
leiðréttingar. Útlitsmótun stafa, efnisgreina, blaðsíðna.
Prentun. 20 kennslustundir
Word II kr. 17.900
Staðsetning og notkun mynda í ritvinnsluskjali. Stöðluð stílsnið
texta og málsgreina. Notkun og uppsetning flýtihnappa. Töflur og
dálkar. Haus- og fótlína. 15 kennslustundir
I kr. 16.900
Grundvallaratriði töHureikna. Innsláttur gagna og tilfærsla.
Gerð formúla og myndrita. Útlitsmótun.
Prentun. 20 kennslustundir
II kr. 17.900
Framsetning tölulegra upplýsinga á myndrænan hátt. Flóknari
formúlugerð og föll. Síun og röðun. Tengingar á milli skjala.
15 kennslustundir
Powcr Point fer. 16.900
Gerð vandaðra glæra, litskyggna, námsgagna fyrir skjásýningar.
Notkun bakgrunna og mynda. Hreyfing og hljóð.
20 kennslustundir
Excel
Excel
KENNSLA FER FRAM í TÖLVUVERI
BoJtaa/UuUiufáUa
Námsbeiö hefjast þriðjudaginn 7. ágúst, 2001
Námskeiðin eru haldin mánudaga til fimmtudaga,
Eftirmiðdaga fel. 13:00-16:00 eða fel. 13:00-17:00
Kvöld fel 18:00-21.00 eða fel. 18:00-22:00
Skráning og upplýsi
i