Fréttablaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 2
KJÖRKASSINN
2
FRETTABLAÐIÐ
17. júlí 2001 ÞRIÐJUPAGUR
RANNSÓKN FARI FRAM
Þrír af hverjum fjórum kjós-
endum telja að fara eigi
fram rannsókn á störfum
Árna Johnsen í byggingar-
nefnd Þjóðleikhússins. Rík-
isendurskoðandi hefur þeg-
ar hrint slíkri rannsókn af
stað.
Á að fara fram rannsókn
á störfum Áma Johnsen við
byggingamefnd Þjóðleikhússins?
Niðurstöður gærdagsins
á wvwv.vísir.is
Spurning dagsins í dag:
Á Árni Johnsen að segja af
sér þingmennsku?
Farðu inn á vísi.is og segðu |
þína skoðun
__________CQH3
TVÖ LÍK
Kona lést í sjálfsmorðsárás á lestarstöð i
borginni Binyamina i norðurhluta ísraels í
gær. Að minnsta kosti fimm særðust í
árásinni og var tvísýnt um líf sumra þeirra.
Sjálfsmorðsárás í Israel:
Sprengdi sig
á lestarstöð
ísrael ap Óljóst er hve margir fór-
ust í sjálfsmorðsárás Palestínu-
manns á lestarstöð í Norður-ísrael
í gær. í ísraelskum fjölmiðlum
kom fram að maðurinn var færð-
ur að lestarstöðinni í bíl sem stað-
næmdist snögglega, hleypti
manninum út og ók síðan í hend-
ingu í burtu. Lögreglan leitar bíls-
ins.
Sprengingin var sólarhring eft-
ir að ísraelski herinn réðst inn á
yfirráðasvæði Palestínumanna og
eyðilagði fjórar lögreglustöðvar
sem sérsveitir Yasser Arafat
stjórna. Sú árás var til að hefna
skotárás Palestínumanna á ísra-
elskar öryggissveitir og land-
nema. ■
| STUTT
Gísli Helgason, starfsmaður
Hljóðbókagerðarinnar, segist
hafa átt nótulaus viðskipti við
Árna Johnsen, að kröfu þing-
mannsins, þegar hann vann við
útgáfu á upptökum Stórhöfðasvít-
unnar, tónverks eftir Árna í
flutningi Sinfóníuhljómsveitar ís-
lands. Aö því er fram kom í frétt-
um RÚV lét Gísli undan eftir að
þingmaðurinn hélt kröfu um
nótulaus viðskipti til streitu.
Meðal flytjenda á plötunni var
Geir H. Haarde, fjármálaráð-
herra.
—*—
Embætti ríkissaksóknara fyl-
gist með máli Árna Johnsen,
að því er haft var eftir Boga Nils-
syni, ríkissaksóknara, í fréttum
Sjónvarps í gærkvöldi, og mun
taka málið til opinberrar rann-
sóknar ef tilefni þykir til, eða
samkvæmt tilvísun frá Ríkisend-
urskoðun. í Kastljósi sagðist Ei-
ríkur Tómasson, lagaprófessor,
telja að miðað við fram komnar
fréttir gæti mál Árna sætt opin-
berri rannsókn undir stjórn ríkis-
saksóknara, auk rannsóknar af
hálfu Ríkisendurskoðunar.
I erlent 1
Uppúr slitnaði í viðræðum á
milli Indlands og Pakistans
um framtíð Kamírs eftir að patt-
staða myndaðist í viðræðum leið-
toga landanna í gærkvöldi. Mus-
harraf, forseti Pakistans, yfirgaf
fundinn og hélt heim á leið .“Við
náðum engu samkomulagi" sagði
Musharraf við fréttamenn áður
hann yfirgaf Indland.
Samningur ÍE og Roche undirritaður:
Islendingar tekið
okkur vel
samnincur „Það er með ólíkindum
hve vel Islendingar hafa tekið
starfsemi íslenskrar erfðagrein-
ingar, með örfáum undantekning-
um þó,“ sagði Kári Stefánsson,
forstjóri íslenskrar erfðagrein-
ingar, þegar hann leit yfir farinn
veg við formlega undirritun
samnings við svissneska stórfyr-
irtækið Roche Diagnostics í gær.
Þá þakkaði hann Davíði Oddssyni,
forsætisráðherra, sérstaklega
fyrir veittan stuðning í gegnum
tíðina og tók fram að fyrirtækið
ætti honum margt að þakka.
í ræðu sinni sagði Davíð samn-
inginn, sem tryggði viðgang ÍE,
mikilvægari fyrir land og þjóð en
margir landsmenn gerðu sér
grein fyrir. Spáði hann því að í
framtíðinni muni verða litið á
samninginn sem eitt af stærstu
skrefum sem tekið hafi verið ís-
landi til heilla. Hann gæti orðið til
þess að „fylla upp í þá mynd sem
Islendingar hafa gert sér um
þetta mikla fyrirtæki."
Roche er fyrsta fyrirtækið sem
samningur roche og íe undir-
ritaður
Heino von Prodzinski, frá Roche Diagnost-
ics, minntist á það i ræðu sinni að mikil
ábyrgð hvíldi á fyrirtækjunum vegna per-
sónuupplýsinga sem þau hyggjast nota.
tekur í notkun svokallað lífupp-
lýsingakerfi íslenskrar erfða-
greiningar, en það mun gera fyrir-
tækjunum enn frekar kleift að
rannsaka erfðaþætti sjúkdóma. ■
Flugleiðir:
Selja
eignir
samgöncur Flugleiðir hafa selt
hlutabréf sín i fjarskiptafyrirtæk-
inu France Telecom fyrir 285
milljónir króna og flugvélavara-
hluti fyrir 230 milljónir króna.
í frétt frá Flugleiðum segir að
seldur hafi verið hreyfill af
Boeing 737-400 flugvél, en flug-
vélar af þeirri tegund verða
horfnar úr flugflota félagsins eft-
ir tvö ár. Þangað til verður unnið
að því að selja hluta af vara-
hlutalager þessarar flugvélagerð-
ar. ■
Ohjákvæmilegt að fara
ofan í alla þætti starfa Ama
Þingseta veltur á trausti kjósenda, segir Davíð Oddsson. Myndi sjálfur segja af sér ef slíkt traust
vantaði. Best fyrir Arna að umsýslustörf hans verði rannsökuð. Nefndarformaður hafði ekki
heimild til að valsa um með prókúru.
stjórnmál „Samband þingmanns
og kjósenda snýst bara um
traust, hann verður að hugleiða
sína stöðu út frá því. Ef hann get-
ur ekki áunnið sér traust kjós-
enda sinna þá á hann engan
grundvöll," sagði Davíð Oddsson,
forsætisráðherra, þegar hann
var spurður áð"því hvorr Árni
Johnsen ætti að segja af sér þing-
mennsku. Hann sagði Árna enn
njóta síns trausts: „Hann sem
persóna nýtur míns traust og ég
finn afskaplega mikið til með
honum.“ Þó væri hegðun Árna í
„Það er ekki
upphæðin
sem fer í
taugarnar á
mér, það er
verkið sjálft
og hvernig
um það hef-
ur verið fjall-
að af Árna."
sínum huga „gjörsamlega óskil-
janleg."
Þannig má segja að Davíð hafi
ekki tekið beina afstöðu til þess
—»— hvort Árni ætti að
segja þingsæti
sínu lausu, sú
ákvörðun lægi hjá
kjósendum. „Það
er nú þannig að
það getur enginn
mannlegur máttur
látið þingmann
segja af sér, vilji
hann það ekki
___^ sjálfur, nema kjós-
endur hans,“ sagði
Davíð. Hann tók þó fram að ef
hann sjálfur risi ekki undir
trausti kjósenda þá myndi hann
segja af sér. „Með framgöngu
sinni hefur Árni gert það að verk-
um að óhjákvæmilegt er að fara
ofan í alla þá þætti sem snúa um-
sýslustörfum Árna,“ sagði Davíð
og tók fram að þrátt fyrir að ekki
væri rétt að trúa ýmsum sögum
sem um málið ganga að óreyndu
þá væri best fyrir Árna að um-
sýslustörf hans yrðu rannsökuð.
„Um er að ræða 160 þús. krón-
DAVfÐ ODDSSON
Árni Johnsen var í Eyjum að hugsa málið þegar Davíð ræddi við blaðamenn síðdegis í gær. Hann segir Árna aðeins geta kennt sjálfum
sér um stöðu mála.
ur í þessu tilviki," sagði Davíð og
vísar þar til óðalssteins sem
keyptur var fyrir almannafé og
Árni hefur viðurkennt að hafa
notað í eigin þágu. „Það er ekki
upphæðin sem fer í taugarnar á
mér, það er verkið sjálft og
hvernig um það hefur verið fjall-
að af Árna.“
Að sögn Davíðs er málið ein-
nig undarlegt í ljósi þess að mjög
var dregið úr umboði byggingar-
nefndar Þjóðleikhússins árið
1996 þegar hún var endurskipuð.
„Nefndin hefur ekki umboð til að
starfa með þessum hætti,“ sagði
hann. Efnislega hafi hlutverk
nefndarinnar eftir breytingu ver-
ið takmarkað við áætlanagerð.
„Ég tel ekki að nefndin hafi haft
heimild til þess að láta nokkurn
mann valsa um með prókúru eða
umboð,“ sagði Davíð.
matti@frettabladíd.ís
Páll Sigurjónsson forstjóri ístaks:
Borgarráð:
Viðvik fyrir Arna Johnsen
ekki greidd af Istaki
verktaka „Nei, ekki það ég veit“,
sagði Páll Sigurjónsson forstjóri
verktakafyrirtækisins ístaks,
þegar Fréttablaðið bar undir
hann frásagnir undirverktaka af
því að ýmis viðvik fyrir Árna
Johnsen hefðu verið skráð á
önnur verk hjá fyrirtækinu.
„Hér er um að ræða einyrkja
sem unnið hafa verk á okkar
vegum, m.a. sjálfsagt fyrir Árna
eins og fjölmarga aðra, og þá
eru reikningar færðir hjá okkur
á liðinn „ýmis verk“, sem við að
F
VERKTAKAFYRIRTÆKIÐ
Við borgum einyrkjum en rukkum hjá
verkbeiðanda, segir Páll Sigurjónsson
forstjóri
sjálfsögðu innheimtum hjá
verkbeiðanda en einyrkjarnir fá
eðlilega greitt frá okkur.
„Mér vitanlega höfum við ekki
verið að borga Árna fyrir mein-
ta greiða með vinnuframlagi frá
ístaki," sagði Páll.
í Fréttablaðinu í gær var mis-
sagt að Stafkirkja Norðmanna í
Vestmanneyjum hefði verið
reist af ístaki, en það gerðu
norskir sérfræðingar. ístak
endurgerði húsið Landlist á
Skansinum í Vestmanneyjum og
byggði Þjóðhildarkirkju á
Grænlandi. ■
Clinton fær
ekkileyfi
NEKTARDANS Borgarráð Reykja-
víkur synjaði á síðasta fundi sín-
um umsókn nektardansstaðar-
ins Club Clinton um endurnýjun
leyfis til áfengisveitinga. I bók-
un bæjarráðs segir að lögreglu-
stjóri mæli gegn veitingu leyfis-
ins en þann 19. júní sl. hafi lög-
reglustjóri veitt staðnum
áminningu vegna margítrekaðra
brota á reglum um heimilaðan
veitingatíma áfengis og slit
skemmtunar. „Er ljóst af mála-
vaxtalýsingu að um sterkan
brotavilja umsækjanda er að
ræða,“ segir ennfremur og að í
ljósi þessa hafni borgarráð um-
sókninni. ■