Fréttablaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 4
4
FRÉTTABLAÐIÐ
17. júlí 2001 ÞRIÐJUPAGUR
SVONA ERUM VIÐ
UPPHÆÐ UPPCREIDDRA ÍBÚÐASJÓÐS-
LÁNA A FYRRI HELMINGI ÁRSINS
Heildarupphæð uppgreiddar lána á tyrri
helmingi ársins dróst verulega saman á
milli ára. Sigurður Geirsson hjá íbúðalána-'
sjóði segir þetta að mestu stafa af því að
fólk hafi þangað til fyrir um ári síðan talið
sér hag í að yfirtaka ekki eldri húsbréf við
húsakaup, heldur kaupa þau upp og taka
ný lán. Að sögn Sigurðar var fólk lengi að
átta sig á því að betra væri í flestum tilfell-
um að halda gömlu bréfunum.
Fyrsti vinningur
hækkar:
Dýrara
að spila
með í lottó
cetraunir Fyrsti vinningur í Laug-
ardagslottóinu mun ekki verða
lægri en um þrjár milljónir króna
samkvæmt upplýsingum frá ís-
lenskri getspá. Þar kemur einnig
fram að íslenski bónusvinningur í
Víkingalottóinu hækkar um helm-
ing. Samfara hækkun vinninga
mun verð hverrar raðar í Lottóinu
hækka í 75 krónur og í Víkinga-
lottóinu í 35 krónur.
Samkvæmt fréttatilkynningu
sem íslensk Getspá hefur sent frá
sér segir að verðhækkun þessi sé
til að fylgja eftir verðlagsþróun í
landinu og að verð lottóraðarinnar
hafi ekki hækkað í sex ár. ■
|lögreglufréttir[
Landsmóti UMFÍ lauk sl.
sunnudag og að sögn lögregl-
unnar á Seyðisfirði fór mótið
vel fram í alla staði og urðu
engin óhöpp á fólki. Að sögn
talsmanns varð töluverð umferð
þegar gestir lögðu í heimferð
seinniparts sunnudags en gekk
hún átakalaust fyrir sig.
—♦...
Umferðarátak er nú á leiðinni
frá Reykjavík til Selfoss og
að sögn lögreglunnar á Selfossi
er ætlunin að svo verði í allt
sumar. Sagði lögregla að sam-
starf yrði á milli lögreglunnar í
Kópavogi og lögreglunnar á Sel-
fossi þannig að nú mega öku-
fantar fara að vara sig.
Skemmdir voru unnar á trjám
og öðrum gróðri í einkagarði
í Vesturbænum. Að sögn lög-
reglunnar í Reykjavík leikur
grunur á að um nágrannadeilur
sé að ræða.
Loðna og kolmunni:
Mikil veiði og
ágætis búbót
sjávarútvecur Mikil veiði hefur
verið á loðnumiðunum fyrir vest-
an og einnig á kolmunnaveiðum
fyrir austan land. Þá hefur af-
urðaverð einnig verið að nokkuð
hátt auk þess sem gengisþróun
hefur verið hagstæð, þ.e. að fleiri
krónur fást fyrir hvert tonn af
mjöli og lýsi en var áður en krón-
an féll á gjaldeyrismörkuðum.
Um 500 dollarar fást fyrir tonn af
lýsi og 400-450 pund fyrir
mjöltonnið. Heildarafli í loðnu
nemur um 120 þúsund tonnum og
nokkru meira í frjálsum veiðum í
kolmuna.
Arnar Sigurmundsson formað-
ur Samtaka fiskvinnslustöðva
segir að veiðin í sumar sé ágætis
búbót fyrir vinnslur og útgerðir
loðnuskipa. Fyrir vikið séu menn
að fá eitthvað upp í þær fjárfest-
ingar sem ákveðið var að ráðast í
á góðæristímanum fyrir nokkru
LOÐNUSJÓMENN
Sjómenn loðnu- og kolmunnaskipa brosa
breiðar en oft áður vegna góðs gengis á
miðunum.
síðan. Hann segir ómögulegt að
spá fyrir um framhaldið að öðru
leyti en því að menn vonast til að
þessi góða veiði geti haldist eitt-
hvað áfram með tilheyrandi at-
vinnu- og gjaldeyristekjum fyrir
þjóðarbúið. ■
[lögreglufréttir[
Farþegaskipið Kólumbus kom
til Ólafsvíkur um kl. átta í
gærmorgun. Að sögn lögreglunn-
ar í Ólafsvík steig stór hluti far-
þega á landi en þeirra biðu rútur
og var farið með þá í útsýnisferð.
Skipið fór aftur um tvöleytið og
er næsti viðkomustaður Akur-
eyri. Farþegaskipið Kólumbus er
með innanborð um 377 farþega
og áhöfnin er 177 manns.
—♦—
Lögreglan í Reykjavík hafði í
nógu að snúast fyrir hádegi í
gærdag en þá þegar höfðu verið
bókuð 58 mál. Að sögn talsmanns
lögreglunnar var meirihluti af-
skipti lögreglu af ökumönnum
sem sinntu ekki stöðvunarskyldu
og höfðu ekki spennt öryggis-
belti.
Veðurfar í Grikklandi:
Hættuleg
hitabylgja
aþenu.ap Búist er við að hita-
bylgja gangi yfir Grikkland á
morgun. Innanríkisráðherra
landsins hefur áminnt landsmenn
um að gæta varúðar. „Veðurfarið
mun gera fólki erfitt fyrir, sér-
staklega börnum, gamalmennum
og fólki með heilsufarsvanda-
mál“, sagði innanríkisráðherr-
ann.
Búist er við að hitinn fari upp
í 40 gráður í miðhluta Grikklands
og öðrum hlutum landsins á
morgun. Til að bæta gráu ofan á
svart er búist við að vind lægi í
vikunni.
Heilbrigðisyfirvöld sendu frá
sér viðvaranir nokkru sinnum í
fyrra þegar hitabylgjan kom af
stað skógareldum víðsvegar um
landið. Reykmengunin í kjölfarið
varð þess valdandi að hundruðir
þurftu að leggjast inná sjúkra-
hús. ■
lögreglufréttir!
Lögreglunni í Reykjavík var til-
kynnt um innbrot í bifreið í
austurborginni á áttunda tíman-
um í gærmorgun. Við nánari
skoðun kom í ljós að geislaspilara
hafði verið stolið úr bifreiðinni.
r->—
Vinnuslys átti sér stað í fisk-
vinnslufyrirtæki á Patreks-
firði um tvöleytið í gær. Tildrög
slyssins voru þau að stúlka á tví-
tugsaldri var að vinna við stein-
bítskinnavél og missti höndina í
vélina með þeim afleiðingum að
missa framan af fingrum. Að
sögn lögreglunnar á staðnum var
stúlkan flutt til Reykjavíkur.
—4—
Lögreglumaður á reiðhjólaeftir-
liti á Fiskitanga á Akureyri
kom að tveimur stúlkum um fjög-
urleytið í fyrrinótt þar sem þær
voru að næla sér í múrsteina af
bretti sem stóð á athafnasvæði
Flutningamiðstöðvar Norður-
lands. Stúlkurnar voru ekki kærð-
ar fyrir athæfið en atvikið er
geymt í bókunum lögreglunnar að
sögn talsmanns lögrelgunnar.
ÞJÓFAR SPILLA FRÍI
Ferðaskrifstofan hefur séð til þess að íslensku ferðalangarnir í Portúgal hafa fengið tjón sitt bætt og krafist hertrar öryggisgæslu
á hótelinu.
íslendingar rændir í Portúgal:
• •
Oryggishólf brotin upp
þjófnaður Brotist hefur verið inn í
sex íbúðir íslendinga sem dvelj-
ast á íbúðahótelinu Paraiso de Al-
bufeira. Brotist var inn í fjórar
íbúðir íslendinga fyrir um tíu
dögum og tvær síðastliðinn föstu-
dag. Hótelið er nýtt og hið besta i
alla staði en svo virðist sem
þjófarnir hafi lykla því þeir kom-
ast inn í íbúðirnar án þess að
nokkur vegsummerki sjáist og
spenna þar upp öryggishólfin eða
bora út lásana.
Þjófarnir hafa haft hundruð
þúsunda íslenskra króna upp úr
krafsinu en þeir hafa einnig tekið
kreditkort og skartgripi. „Þetta
hefur haft mikil áhrif á okkur og
það má segja að heil vika hafi far-
ið í þetta. Fólk er óöruggt og
krakkarnir voru hræddir fyrstu
dagana eftir innbrotið," sagði fjöl-
skyldumaður sem á Paraiso de Al-
bufeira. Hann segist þó vilja
hrósa ferðaskrifstofunni fyrir
hvernig brugðist var við. Að sögn
Ómars Kristjánssonar, fram-
kvæmdastjóra ferðaskrifstofunn-
ar Sólar, hafa farþegarnir þegar
fengið bætta þá peninga sem þeir
misstu í hendur þjófanna en ekki
er vitað til að misyndismennirnir
hafi getað fénýtt þau kreditkort
sem voru tekin. Starfsmenn
ferðaskrifstofunnar hafa einnig
verið hinu óheppna fólki til að-
stoðar eftir því sem þörf hefur
verið á. „Við höfum séð til þess að
þessum farþegum hefur verið
bætt sitt tjón eftir því sem kostur
er og óskað eftir því við hótel-
stjórnina að öryggisgæsla á hótel-
inu verði efld og er okkur kunnugt
um að það hafi verið gert. Jafn-
framt hefur verið sett í gang lög-
reglurannsókn á því með hvaða
hætti innbrotsþjófarnir komust
inn í þessar íbúðir,“ sagði Ómar
Kristjánsson og vildi brýna fyrir
fólki af þessu tilefni að loka alltaf
gluggum og svalarhurðum á íbúð-
um og taka vel í hurðarhúninn eft-
ir að það hefur læst íbúðum á leið
frá íbúðinni. Hann sagði þekkt
vandamál í ferðaþjónustu að þjóf-
ar létu greipar sópa á hótelum á
sólarströnd, jafnvel á hótelum
eins og Paraiso þar sem eftirlit
væri með því mesta sem þekkist í
Portúgal; svæðið girt af og eftirlit
mikið með óviðkomandi manna-
ferðum. ■
Reykjavík:
Braut rúðu í íbúð
nágranna með hamri
Kjarasamningur lögreglumanna:
Urslit um miðjan
næsta mánuð
lögreclumál Maður, sem var ölv-
aður og á við geðræn vandamál
að stríða, braut rúðu í íbúð ná-
granna síns með hamri í gær-
morgun.
íbúðareigandinn sagði í sam-
tali við Fréttablaðið að unnusta
hans hefði verið ein í íbúðinni
þegar maðurinn, sem býr í næsta
húsi, kom inn í garð þeirra með
hamar á lofti, ógnaði konunni í
gegnum rúðuna og lét hamars-
höggin dynja á rúðunni svo gler-
brot þeyttust um íbúðina. Konan
gat leitað á náðir nágranna, sem
kölluðu til lögreglu.
Lögreglan í Reykjavík sagði að
maðurinn ætti við geðræn vanda-
mál að stríða og vildi sem minnst
tjá sig um málið.
íbúðareigandinn sagðist telja
að vegna ófremdarástands í geð-
heilbrigðisþjónustu fengi maður-
inn ekki viðeigandi meðferð og
stuðning og sagðist hann sjálfur og
fleiri nágrannar hafa þungar
áhyggjur af málinu enda fyndi fólk
ekki til öryggis á heimilum sínum
meðan von væri á uppákomum af
þessu tagi. Hann hafði fengið upp-
lýsingar um að maðurinn yrði lát-
inn laus síðdegis í gær. ■
JÓNAS MAGNÚSSON
FORMAÐUR LANDSSAMBANDS
LÖGREGLUMANNA
Um átta mánuðir liðu á milli gamla og
nýja samningsins.
kjaramál Gert er ráð fyrir að
byrjað verði að kynna nýjan
kjarasamning á milíi Landsam-
bands lögreglumanna og ríkisins
fyrir lögreglumönnum í næstu
viku. Jónas Magnússon formaður
sambandsins býst við að niður-
staða í atkvæðagreiðslu um samn-
inginn muni liggja fyrir um miðj-
an næsta mánuð. Hann segir að
verið sé að fara yfir samninginn
og hvað hann hefur í för með sér
fyrir þá fjölmörgu einstaklinga
sem í hlut eiga með nýja launa-
kerfinu sem samið var um. Það sé
m.a. vegna þess að ýmis ákvæði
samningsins lúta að persónuleg-
um kjörum hvers og eins með til-
liti til starfsaldurs og líftíma.
Kjarasamningurinn er að öðru
leyti á svipuðum nótum og aðrir
gerðir samningar með 6,9% upp-
hafshækkun og síðan 3% árlega
og 1,5% á síðasta ári, en samning-
urinn gildir frá 1. júlí sl. til 30.
apríl 2005. Með samningunum
fylgir einnig yfirlýsing ríkis-
stjórnar um breytingar á lögum
um starfsaldur lögreglumanna úr
70 árum í 65 ár. ■