Fréttablaðið - 17.07.2001, Blaðsíða 8
8
FRETTABLAÐIÐ
17. júlí 2001 ÞRIÐHJDAGUR
Alþjóðaólympíunefndin kaus nýjan formann í stað
Samaranch:
Belgískur skurðlæknir
leiðir Olympíuhreyfinguna
Eftirför:
Keyrði á tvo
lögreglubíla
löcreclumál Lögreglan í Reykja-
vík veitti ökumanni á fólksbifreið
eftirför um áttaleytið á laugar-
dagskvöldinu þar sem hann sinnti
ekki stöðvunarmerkjum á Miklu-
braut við Skeiðarvog. Þegar lög-
reglan gerði tilraun til að stöðva
bifreiðina keyrði ökumaður utan í
tvær lögreglubifreiðar. Eltingar-
leikurinn endaði á Sæbrautinni en
þar hafði bifreiðin affelgast
vegna aksturslags ökumanns og
lenti við það á steyptum kanti.
Ökumaður var handtekinn og
fluttur á lögreglustöð og er hann
grunaður um ölvun við akstur.
Hann var sviptur ökuréttindum til
bráðabirgða. ■
moskvu.ap Jacques Rogge,
belgískur skurðlæknir, verður
eftirmaður Juan Antonio Samar-
anch, sem forseti Alþjóða ólymp-
íunefndarinnar. Rogge naut stuðn-
ings Samaranch í kjörinu. Nafnið
Samaranch verður þó áfram á
meðlimaskrá nefndarinnar því
sonur og nafni hins fráfarandi
formanns er meðal nýkjörinna
nefndarmanna og sá gamli verður
sjálfur heiðursforseti svo lengi
sem hann lifir.
Rogge hlaut tilskilinn meiri-
hluta í annarri umferð atkvæða-
greiðslu. Hann þurfti 56 atkvæði
til að hljóta kosningu en hlaut 59.
Aðrir frambjóðendur voru Kim
Un-young frá Suður-Kóreu, Dick
Pound frá Kanada, Pal Schmitt frá
Ungverjalandi og Anita DeFranz
frá Bandaríkjunum.
Rogge, sem keppti þrívegis í
siglingum á Ólympíuleikunum,
hefur heitið því að herða barátt-
una gegn lyfjanotkun í íþróttum
og vill draga úr umsvifum í
tengslum við Ólympíuleikana en
NÝI OC HINN GAMLI
Belginn Jacques Rogge, nýkjörinn formað-
ur Alþjóðaólympíunefndarinnar, ásamt fyr-
irrennara sínum, Juan Antonio Samaranch.
hann segir komna of mikla pen-
ingalykt af leikunum. Framundan
eru erfið málaferli vegna meintr-
ar mútuþægni nefndarmanna í
tengslum við Vetrarólympíuleik-
ana í Salt Lake City. ■
Dauðaslys í Slóvakíu:
Eldingu
laust niður
ámæðgin
BRATISLAVA. SLÓVAKÍA. AP. Ung móðir
og þriggja ára sonur hennar létust
af sárum sínum eftir að eldingu
laust niður á þau í bænum Detva í
Slóvakíu. Atvikið átti sér stað þeg-
ar mæðginin voru stödd á hátíð í
miðbænum þegar mikill stormur
gekk yfir í skamma stund. Móðir
konunnar slasaðist einnig eftir
eldinguna og var flutt á sjúkrahús
ásamt öðrum manni. ■
Álvershugmyndir
í Reyðarfirði:
Methagnað-
ur hjá Hydro
osló.ap Methagnaður varð á fyrri-
hluta ársins af rekstri Norsk
Hydro, fyrirtækisins sem horft er
til í samningaviðræðum um álver
í Reyðarfirði.
Hagnaðurinn nam 582 milljón-
um dollara, eða um það bil 58
milljörðum íslenskra króna og
jókst um 31 milljón dollara frá
sama tíma í fyrra. Tekjur fyrir-
tækisins á tímabilinu námu um
880 milljörðum íslenskra króna.
Eivind Reiten, forstjóri og
stjórnarformaður, segir að þrátt
fyrir methagnaðinn hafi aðstæður
í efnahagslífi Bandaríkjanna haft
neikvæð áhrif á markaði fyrir-
tækisins á öðrum fjórðungi ársins
en á því tímabili jukust tekjur
þess aðeins lítillega.
Fyrirtækið vinnur olíu og olíu-
vörur, léttmálma og býr til áburð.
Það hefur 37.000 starfsmenn og er
hið næststærsta í Noregi. Norska
ríkið á 44% hlut í því. ■
|lögreglufréttir|
I^búar í Stakkholti urðu fyrir
ónæði þegar ölvaður maður
ruddist inn í hús þeirra og gerði
sig þar heimakominn. Kallað var
á aðstoð lögreglunnar í Reykja-
vík sem handtók manninn og
fékk hann að dúsa í fangageymsl-
unni.
..♦—
Kalla þurfti á lögregluaðstoð á
veitingastað í Hafnarstræti á
sunnudagsmorgun þegar einn
gesta hússins tók upp á því að
kasta flösku í gesti staðarins.
Hafði honum verið vísað út
vegna framkomu sinnar en hóf
þá að grýta flöskum. Maðurinn
var handtekinn og fluttur í fanga-
geymslu. Ein kona leitaði sér að-
stoðar á slysadeild í kjölfar at-
burðanna.
—♦—
Dyraverðir veitingastaða við
Tryggvagötuna áttu fótum
sínum fjör að launa um helgina
en margir voru um hituna að
vilja lumbra á þeim. Til dæmis
sást í eftirlitsmyndavélum lög-
reglu hvar maður sló til dyra-
varðar og var sá handtekinn og
fær málið frekari rannsókn.
Einnig var annar árásarmaður
handtekinn en honum var sleppt
eftir tiltal lögreglu. Lögreglan
þurfti einnig að sinna fleiri út-
köllum um helgina þar sem veit-
ingahús á TVyggvagötunni komu
við sögu. Slagsmál brutust út á
einum staðanna og þurfti einn
gestanna að leita sér aðstoðar á
slysadeild vegna áverka á andliti.
—♦—
Brotist var inn í sumarbústað í
Brynjudal um helgina og það-
an stolið borðbúnaði og einnig
hafði verið rótað í persónulegum
hlutum. Höfðu þeir sem voru að
verki brotið rúðu til að komast
inn í bústaðinn. Þá var brotist inn
í veitingastað á Amtmannsstíg
aðfaranótt laugardagsins og farið
í sjóðsvél hússins.. Rúða var brot-
in við verknaðinn.
SKIPULAGÐIR PJOFNAÐIR
Innbrot i bíla á höfuðborgarsvæðinu og reyndar víða annars staðar eru fjölmörg. Dæmi eru um að þjófar hafi kerfisbundið skráð niður
bílnúmer, fundið heimilisföng eigenda og látið greipar sópa um bílana nóttina eftir.
Þjófar leita ýmissa leiða:
Hugsa eins og við
löggurnar, nema með
öðrum formerkjum
LÖCREGLUMÁL „Ef menn sem stun-
da innbrot eru sæmilega greindir
þá leita þeir þeirra leiða sem
vænlegastar eru til að ná árangri
í starfi,“ sagði Gunnleifur Kjart-
ansson, lögreglufulltrúi, þegar
hann var inntur eftir þeim orðró-
mi sem gengur nú fjöllunum
hærra, að óprúttnir menn séu
farnir að taka upp á því að fylgj-
ast með jarðafaratilkynningum
og láta síðan greipar sópa þegar
fólk fer að heiman til að kveðja
sína nánustu. Gunnleifur sagðist
þó ekki geta nefnt nein sérstök
tilfelli þar sem þetta hefur komið
upp á. „Annars fer maður varlega
í fjalla um mál af þessu tagi því
ekki viljum við gefa þjófunum
einhverjar hugmyndir sem þeir
hafa ekki þegar fengið.“
Gunnleifur sagði þjófana leita
ýmissa leiða til að ná árangri í
starfi. Því til stuðnings sagði
hann frá tilfelli sem upp kom fyr-
ir 6-8 árum þar sem þjófar fóru
kerfisbundið út á kvöldin í þeim
tilgangi að skrá niður bílnúmer á
bifreiðum af dýrari kantinum.
„Þetta var undirbúningsvinnan.
Daginn eftir hringdu þeir í gamla
bifreiðaeftirlitið, gáfu upp bíl-
númerin og fengu uppgefið heim-
ilisfólk eigenda bifreiðanna.
Nóttina eftir létu þeir síðan
greipar sópa um bílana. Menn
sem stunda þjófnaði velta vöng-
um yfir hlutum af þessu tagi eins
og við löggurnar, en auðvitað
með öðrum formerkjum," sagði
Gunnleifur að lokum. ■
Rússar og Kínverjar:
Vináttusamningur undirritadur
MOSKVA, AP. Vladimir Putin, forseti
Rússlands og Jiang Zemin, forseti
Kína, undirrituðu í gær sérstakan
vináttusamning sem styrkja á
samstöðu þjóðanna. Samningur-
inn er talinn hafa verið gerður
vegna vaxandi áhrifa Bandaríkj-
anna í heiminum og vegna eld-
flaugavarnaráætlunar Bandaríkj-
anna sem valdið hefur þjóðunum
miklum áhyggjum undanfarið. Er
þetta fyrsti samningurinn sem
Rússland og Kína gera sín á milli
frá því að gömlu Sovétríkin liðu
undir lok. í sameiginlegri yfirlýs-
ingu eftir að samningurinn var
undirritaður í Kreml í Rússlandi,
sögðust Putin og Zemin vonast
eftir „réttlátu og skynsömu nýju
skipulagi í alþjóðamálum." Þeir
lögðu þó áherslu á að þjóðirnar
tvær höfðu ekki í hyggju að fara í
náið samstarf á næstunni. „Þessi
INNILEGT FAÐMLAG
Putin og Zemin innsigla nýundirritaðan samning með innilegu faðmlagi. Rússar og
Kínverjar hafa lagt áherslu á að samkomulagi þeirra sé ekki beint gegn Bandaríkjunum
einu og sér.
vináttusamningur á milli þjóð- ríkjasamkomulags," sagði í yfir-
anna tveggja er ný tegund milli- lýsingunni. ■
Bandarískir geimfarar:
Hleri festur
á alþjóðlega
geimstöð
HOUSTON. ap. Bandarískir geimfar-
ar vinna nú hörðum höndum við
að festa nýjan 164 milljón króna
lofthlera á alþjóðlegu geimstöðina
Alpha, en reiknað er með því að
hlerinn komist í gagnið síðar í vik-
unni. Lofthlerinn, sem vegur 6,5
tonn, er smíðaður í Bandaríkjun-
um, en með tilkomu hans mun
möguleikum geimfara á geim-
göngum fjölga. Munu þeir geta
farið í geimgöngur frá stöðinni í
bandarískum geimbúningum, en
hingað til hafa þeir farið í göngur
frá rússneskum hluta geimstöðv-
arinnar í rússneskum búningum,
en bandarískir geimbúningar eru
ósamrýmanlegir því rússneska
kerfi sem er að finna í geimstöð-
inni. Geimfararnir fóru út í geim
á geimskutlunni Atlantis fyrir
helgi og er reiknað með að það
taki þá viku að festa hurðina
kyrfilega á geimstöðina. ■
ÚTI ( GEIMNUM
Bandarfski geimfarinn Michael Gemhardt
vinnur við að festa lofthlerann, sem fengið
hefur nafnið Quest, fyrir utan alþjóðlegu
geimstöðina Alpha I fyrradag.
—♦—
Tillitslausir ökumenn:
Hægja
áferð
lögreglu
lögreglumál Ökumenn sýna ekki
nægilega tillitssemi við lögreglu í
útkalli að mati lögreglunnar á
Blönduósi. Brögð eru að því að
menn víki ekki úr vegi fyrir lög-
reglubílum, jafnvel þótt sírenur
séu á. Sömuleiðis vantar mikið
upp á að bílar sem koma úr gagn-
stæðri átt víki nægilega til að lög-
reglubílar komist framúr.
Sem betur fer á þetta ekki við
þegar sjúkrabílar eru á ferð en ef
lögreglubíll er með sírenurnar á
þýðir það að miklu skiptir að lög-
regla komist sem fyrst á vettvang
og alvarlegt er ef ökumenn hindra
eða hægja för hennar. ■