Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 173

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 173
ÁRSSKÝRSLA 1992 177 Grenjaðarstaður. Á Grenjaðarstað er stór torfbær frá lokum 19. aldar. í honum er byggða- safn sem dregur að sér mikinn fjölda ferðamanna. Viðhaldi bæjarins hefur verið mjög ábóta- vant í mörg ár. Sumarið 1990 var hafið átak til úrbóta. Lokið var viðgerð á baðstofuhúsinu vestast í húsaþyrpingunni. Sumarið 1991 hafði verið gert við vesturhluta húsagrindarinnar. Nú var verkinu fram haldið, gert við aðra hluta grindarinnar og gólfbita. Mest allar veggja- klæðningar þurfti að taka niður og setja upp að nýju. Þrjú herbergi af sjö sem í húsinu eru voru máluð að innan. Gert var við kvistglugga á austurþekjunni og ný torfþekja var sett á húsið. Jafnframt voru endurhlaðnir veggir í norðurhluta húsasundsins vestan við framhúsa- röðina. Sauðanes á Langanesi. Gamli prestsbústaðurinn á Sauðanesi er glæsilegt íbúðarhús frá því um 1897. Það er byggt úr höggnu grjóti og var óvenjulegt hús að mörgu leyti. Húsið hefur staðið autt í nokkra áratugi. Þjóðminjasafnið tók við húsinu af kirkjumálaráðuneytinu árið 1989 til að bjarga því frá frekari eyðileggingu. Sumarið 1991 var húsið skoðað ítarlega, mælt og teiknað og drög lögð að fyrstu viðgerð. Sumarið 1992 hófst mikil viðgerð á húsinu. Við upphaf viðgerðarinnar kom í ljós að húsið var enn verr farið en áður var talið. Nauðsynlegt reyndist að skipta um hluta þakviða og mjög mikil vinna var við að endurbæta útveggi húss- ins sem voru að hruni komnir. Að mestu leyti var skipt um bindiefni í vegghleðslunni og að nokkru leyti voru hleðslur teknar niður og endurhlaðnar. Bustarfcll í Vopnafirði. Stór torfbær frá miðri 19. öld, en að hluta til bæði eldri og yngri. Búið var í bænum til 1963 og sér þess meðal annars merki í steinsteypu og rafmagnslögnum. í bænum er Minjasafnið á Bustarfelli, stofnað árið 1982, í eigu Vopnfirðinga. Ríkissjóður keypti bæinn árið 1943. Á undanförnum árum hafa verið gerðar allmiklar endurbætur á bænum. Sumarið 1992 var nokkuð unnið við lagfæringar á framþiljum bæjarins og nokkur húsanna voru máluð að innan. Gert var einnig við burðarvirki í fjósi. Sómastaðir við Reyðarfjörð. Hlaðið steinhús, byggt árið 1875 sem viðauki við gamlan torf- bæ. Utveggir hússins eru úr ótilhöggnu blágrýti, tvíhlaðnir og bundnir með smiðjumó. Veggjagerð þessi er líklega einstök hér á landi. Ríkissjóður keypti Sómastaði þegar ráðgerð var bygging málmbræðslu við Reyðarfjörð. Þjóðminjasafnið tók við garnla húsinu til varð- veislu árið 1989. Byrjað var að dytta að því árið 1990 og viðgerð hófst sumarið 1991. Nýir gluggar voru þá smíðaðir og steinsteyptur skúr við vesturgafl hússins var rifinn. Sumarið 1992 var gert við báða gafla hússins, bæði steinhleðslu og timburþil. Þakið var endurbætt og klætt rennisúð að nýju. Teigarhorn við Berufjörð. íbúðarhús kaupmannsfjölskyldu frá 1880, sumardvalarstaður. Fjórir af útveggjum hússins voru endurbættir sumarið 1992, rifið utan af þeim, húsgrindin endurnýjuð, gluggar endursmíðair og veggir klæddir að utan. Bænhús á Núpsstað. Lítil torfkirkja í umsjá Þjóðminjasafns. Hér er líklega um einhverja minnstu kirkju landsins að ræða og er hún af gamalli gerð með langbekkjum í framkirkju og háu rimlaþili milli kórs og kirkju. Bænhúsið er jafnframt hluti af merkilegri heild sem allur Núpsstaðarbærinn er. Sumarið 1992 fór fram mikil viðgerð á bænhúsinu. Mold hafði í tímans rás runnið úr torfveggjunum og valdið miklum fúa á timburverki hússins. Innra byrði torf- veggjanna, sem er reyndar að mestu leyti úr grjóti, var endurhlaðið og gert var við mikinn fúa í húsgrindinni og klæðningum. Keldur á Rangárvöllum. Torfbær með fornu lagi og íbúðarhús úr timbri frá 1937 í eigu Þjóðminjasafnsins. Torfbærinn, sem er tvímælalaust einhver sá merkasti, þarfnast mikilla endurbóta. Sumarið 1992 var unnið að endurbótum á timburhúsinu. Bárujárn á þaki og veggj- um var allt endurnýjað, kvistir rifnir af þakinu og gluggar endurnýjaðir. Tungufellskirkja. Járnklædd timburkirkja reist árið 1856. Kirkjan var bændakirkja allt til ársins 1987 er eigendurnir afhentu hana Þjóðminjasafni Islands til varðveislu með gjafabréfi. Tungufellskirkja er smíðuð upp úr eldri kirkju og er að ýmsu leyti fornfáleg. Prédikunarstóll,
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.