Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Volume

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 163

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1992, Page 163
ÁRSSKÝRSLA 1992 167 stofnunar Austurlands óskaði leyfis að smíðaður yrði pallur hjá minjunum í Hvannalindum til að létta álagi á þær, nefndin heimilaði það og samþykkti þjóðminjaráð í framhaldi af því að veita nokkra fjárhæð til smíðinnar. Hinn 6. ágúst fóru allir nefndarmenn austur að Stöng í Þjórsárdal og skoðuðu fornleifarannsóknir Vilhjálms Arnar Vilhjálmssonar sem varpa nýju ljósi á þennan minjastað og gera hann jafnvel enn merkari en áður. En nefndarmönnum var mikið áhyggjuefni hve rústirnar sem rannsakaðar voru þarna árið 1939 hafa látið á sjá og hve yfirbygging rústanna er illa farin. Nefndin hefur því falið þjóðminjaverði að leita leiða til að bæta úr þessu. Önnur mál Fjölmörg önnur mál varðandi einstaka minjastaði og fornleifar komu að sjálfsögðu inn á borð nefndarinnar en hér verður staðar numið og vísað um það að nokkru í starfsskýrslu fornleifadeildar. Fornleifadeild Fornleifarannsóknir Þrátt fyrir víðtækt lúutverk hafði fornleifadeild Þjóðminjasafns aðeins einum föstum starfsmanni á að skipa á árinu: Guðmundi Ólafssyni, deildarstjóra eða fornminjaverði eins og staðan nefnist nú. Aðeins ein stór fornleifarannsókn fór fram á vegum fornleifadeildar. Bessastaðanefnd kostaöi rannsóknina. Verkstjóri var Sigurður Bergsteinsson, fornleifafræðingur. Grafið var á þremur svæðum við Bessastaði, syðst í húsagarði, innundir hjáleigu og austan við hjáleigu alls um 95 fermetrar. Fáir munir fundust á þessu svæði, einkum venjulegir brúkshlutir. Merkasti gripurinn er brot af reykelsiskeri frá miðöldum. Miklar tafir urðu á rannsókninni vegna óhagstæðs vetrarveðurs. Grafið var gegnum hluta af mannvirkjum frá 10.-19. öld. Elsta byggingin sem fannst virð- ist vera með skálalagi með sveigðum langveggjum. Einnig var rannsakaður hluti af lítilli fornri tóft sem er grafin inn í aflíðandi brekku. í júní var deildarstjóra boðið sem gestafornleifafræðingi að taka þátt í rannsókn á nor- rænni bæjarrúst í Vestribyggð á Grænlandi. Bæjarstæðið er enn í mikilli hættu vegna eyðing- arafla jökulár sem er að brjóta framan af bænum. Ef nægilegt fjármagn fæst verður framhald á þessari rannsókn, sem hefur mikla þýðingu fyrir norræna miðaldafornleifafræði. Aðrar rannsóknir Allmargar rannsóknar- og eftirlitsferðir voru farnar á vegum fornleifadeildar. Má þar nefna eftirfarandi: Beinafundur á Skansinum í Vcstmannaeyjum. Er verið var að vinna við lagfæringar með vél- gröfu á Skansinum, Vestmannaeyjum fundust mannabein. Hægt var að rannsaka hluta graf- arinnar sem reyndist vera á um 120-180 cm dýpi og liggja í austur-vestur, með höfuð í vest- urenda. Hjá gröfinni fundust sjö gripir, m.a. armband úr bronsi og brot úr kambi. Með hlið- sjón af þessum gripum og afstöðu grafar við gjóskulög má ætla að hún sé frá síðarj hluta 10. aldar eða fyrri hluta 11. aldar. Grafreitur á Laugalnndi í Þelamörk. Er verið var að bora eftir vatni við gamla kirkjugarðinn að Laugalandi þurfti að jafna undir framkvæmdasvæðið. Við það var að hluta til farið inn á svæði þar sem ætla mátti að kirkjugarðurinn hafi verið. Athugun jarðfræðings og forstöðu- manns Minjasafnsins á Akureyri benti til að veggjahleðslu hefði verið spillt, en engar grafir komu í ljós. Kirkjugarður Hraungcrðiskirkju í Hrnungerðishreppi. Er verið var að grafa holur vegna styrk- ingar á undirstöðum Hraungerðiskirkju komu í ljós mannabein. Þar reyndist vera um fornar kristnar grafir að ræða. Einnig fannst hleðsla sem hugsanlega er úr eldri kirkjubyggingu.
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144
Page 145
Page 146
Page 147
Page 148
Page 149
Page 150
Page 151
Page 152
Page 153
Page 154
Page 155
Page 156
Page 157
Page 158
Page 159
Page 160
Page 161
Page 162
Page 163
Page 164
Page 165
Page 166
Page 167
Page 168
Page 169
Page 170
Page 171
Page 172
Page 173
Page 174
Page 175
Page 176
Page 177
Page 178
Page 179
Page 180
Page 181
Page 182
Page 183
Page 184
Page 185
Page 186

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.