Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 121
Skýrsla.
I. Ársfundur félagsins 1914.
Arsfundur félagsins var haldinn fimtudaginn 26. nóv. 1914. For-
maður minntist fyrst látinna félagsmanna: heiðursfélaga Brynjúlfs
Jónssonar frá Minna-Núpi, er um nálega 20 ár starfaði í þjónustu
félagsins, Þorsteins skálds Erlingssonar, fulltrúa félagsins og Björns
kaupmanns Guðmundssonar, er verið hafði í félaginu frá upphafi
þess.
Því næst lagði formaður fram endurskoðaðan ársreikning félags-
ins fyrir árið 1913 og höfðu engar athugasemdir verið við hann
gerðar. Sakir veikinda Jóns yfirdómara Jenssonar hafði reikningur-
inn verið endurskoðaður af landsbókaverði Jóni Jakobssyni einum
og hafði enginn fundarmanna neitt við það að athuga.
Þá skýrði formaður frá ritgjörðum, er prentaðar mundu verða
í Arbók félagsins, Ennfremur skýrði hann frá því, að félagsstjórnin
hefði ákveðið að kaupa af Leiðarvísi um Þjóðmenjasafn Islands
eftir Matthías Þórðarson svo mörg eintök, bundin, sem nægir til út-
býtingar meðal skuldlausra félagsmanna.
Formaður tók frarn að eftir ákvörðun félagsstjórnarinnar yrði
fulltrúakosningu í stað Þorsteins heitins Erlingssonar frestað til
næsta aðalfundar.
Að lokum var samþykt í einu hljóði eftir tillögu félagsstjórnar-
innar að kjósa prófessor, dr. Oscar Montelius, fyrv. fornmenjavörð í
Svíþjóð, til heiðursfélaga.
16