Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 75
75
6407.
6408.
6409.
6410.
6411 a
grafin blóm. Umhverfis á öskjunni er grafin dýraveiði
í skógi. Dósirnar eru nú rifnar og beyglaðar.
20/n Forstöðumaður safnsins: Gjarðarhringja úr eirblendingi
rauðleitum með hófhringjulagi, grafin með snúningi að
ofan, einkar vel gerð. L. 7,5 cm., br. 6,5 cm.
— Sami: Gjarðarhringja úr rauðleitum kopar, hófhringja,
hefir verið grafin að ofan, en gröfturinn að mestu af-
máður. L. 7,8 cm., br. mest 6,4 cm. Göt eru á mið-
bandinu sitt hvoru megin þornsins.
— Sami: Gjarðarhringja úr rauðakopar, hófhringja, einkar
gild, laglega gerð. Lítt grafin. L. 7,8 cm., br. 6,9 cm.
Allar þessar hringjur (nr. 6407—09) eru mjöggaml-
ar, varla yngri en frá 16. öld.
— Jóhann Jóhannesson kaupmaður í Reykjavík. Slcráar-
lauf úr messing, kringlótt, þvermál 5,4 cm., þ. 0,1 cm.,
með laglega gegnskornum og gröfnum stöfunum i h s,
með gotneskri gerð.
b «/u Nœlur tvær úr bronzi, kúptar, sporbaugsmyndaðar, tvö-
faldar, með líkri gerð og nr. 96 a.-b., 290 (yfirskjöldur),
4872 (sbr. Árb. 1903, myndabl. II, 1—2) og 5960 (Árb.
1911, bls. 76, Aarb f. nord. Oldkh. 1910, bls. 82, 19.
mynd); fleiri nælur með sömu gerð hafa fundist hér
áður, og sömuleiðis í Svíþjóð (sbr. Montelius, Sv. forn-
saker nr. 551 og Rygh, Norske Oldsager nr. 652). Þær
eru frá 10. öld, virðast hafa verið fremur algengar. —
Þessar tvær eru mjög skemdar, gyllingin farin af nær
algerlega, málmurinn uppleyzt og ummyndast af spansk-
grænu, þornin eyðst algerlega af ryði, — hafa verið úr
járni; silfurböndin alveg af, hafi þau nokkru sinni verið
sett á. Millumdoppurnar 4, sem ætíð hafa verið festar
á með einum nagla á þessar nælur og hafa verið úr
einhverju efni úr dýra- eða jurtaríkinu (t. d. horni eða
rafi), — eru nú allar af eða gerbreyttar. Þar sem ein
þeirra hefir verið virðist votta fyrir leifum af skinni
eða þunnum dúk, er verið hefir næst undirskildinum,
undir doppunni sjálfri. Mætti tilgeta að þessi plata hafi
verið með einhverjum fögrum lit, er skinið hafi gegnum
doppuna, en hún verið gagnsæ. Þar sem vera ætti
annað hliðarhornið á annari nælunni virðist aldrei neitt
horn hafa verið. Má ætla að það hafi ekki verið haft
þar af því að þessi næla hafi verið ætluð til að halda
saman hálsmáli rétt undir hökunni, þar sem hornið
10*