Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 70
70
6381. 2l/9
6382 Vio
6383. »/io
6384. —
6385. —
6386. —
6387. —
6388. —
6389. —
6390. —
6391. —
inn að ofan, með grein; þverm. 4,2 cm., þ. um miðju
1.5 cm., vídd gatsins 1 cm.
Söðuláklœði úr svartri ullareinskeftu, tvídúkað, saumað
saman eftir miðju, glitsaumað með margvíslega litu »zep-
hyr«-garni, sami uppdráttur á báðum helmingunum, blóm-
ker með stóru blómi í; við annan enda er og letrað:
INGIBI0RG MARTEINS D.R. (þ. e. dóttir), og árt. 1870.
Stærð 156X102 cm. — Mjög upplitað og slitið.
Dúkur úr hvítu lérefti, ferhyrndur, 44X47 cm. að stærð,
með útsaumuðum bekkjum við jaðra, blómum í hornum,
lífsins(?) tré á miðju og dýramyndir hjá; ennfremur er
saumuð í hann svofeld áletrun á hollenzku í 3 línum
með gotnesku smáletri: »daer nae goot hi water in een
becken en begonst de voeten siner disc\ipulen te wasschen
en te drooghen met den liinen doc\ck daer hi mede om-
gort was so quam hi dan tot Simon Petrus eni«, ritning-
argrein úr Jóh. guðspj., 13. kap. 5. v.; hjá trénu eru
stafirnir t og f. Dúkur þessi var fyrrum í eigu Hann-
esar byskups Finnssonar; síðar átti hann sonardóttir
hans, frú Valgerður á Hofi. Líklega handlína.
Innsigli úr kopar, lítil átthyrnd plata, er leikur í ístaðs-
myndaðri höldu; á það eru grafnir stafirnir H S R og
ýms áhöld, klippur, tengur o. fl. Hæð 2,5 cm.
Innsigli úr kopar með sporbaugsmyndaðri stétt, sem á
er B Th og blómsveigur um; lítil töpp upp af og B á
enda hennar. Hæð 2,2 cm.
Innsigli úr kopar með kringlóttri stétt, þverm. 1,5 cm.
og krýndu S á; sverð og fuglsfótur fyrir neðan. Hæð
2.6 cm.
Innsigli úr nýsilfri með sporbaugsmyndaðri stétt, og er
1. Kristiansson á; halda grafin og gagnskorin. Hæð
3,5 cm.
Innsigli úr kopar með silfurplötu á stétt og eru staf-
irnir B I grafnir á. Halda gagnskorin. Hæð 3,4 cm.
Innsigli með sporbaugsmyndaðri koparstétt og B E M á,
og svörtu tréskafti, rendu. Hæð 7,1 cm.
Innsigli með koparstétt og rendu »mahogný«-skafti;
stéttin sorfin upp að nýju og grafið N H á. Hæð 8,6 cm.
lnnsigli með silfurstétt og rendu tréskafti, svörtu;
C C G ö grafið á stéttina. Hæð 8,7 cm.
Innsigli úr silfri, lítil, kringlótt plata (þverm. 1,8 cm.) í
ístaðsmyndaðri höldu og er henni fest í sporbaugs-