Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 99
99
6492. 27/6
6493. 4/7
6494. «/7
6495. 12/7
6496. 12/7
Lokið með rendum hringum og rendu typpi, 3 cm. að
hæð. Tarínan er í fyrstu af Hornstöndum. Átt hefir
fyrrum Anna Ebenezersdóttir sýslumanns.
SJcál úr rauðleitu bronzi, hálf hnöttótt, en með stétt
undir, hæð 5,5 cm., þverm. um barma 9 cm., dýpt 4,2
cm. Þverm. stéttar 4 cm. Beygluð og skörðótt. Svört,
þykk grútarskán er utan og innan á skálinni og hefir
hún því að líkindum verið höfð að kolu (lampa) í fyrnd-
inni. Hún fanst í jörðu á Stokkalæk i Rangárvalla-
sýslu vorið 1912.
Sveinn Ingvarsson, Reykjavík í Rúmfjöl úr furu, 1. 106
cm., br. 21 cm., þ. 1,07 cm. Strikuð við randir, slétt
að aftan, en að framan eru skornir upphafsstafir hjónanna
Einars Sæmundssonar og Ráðhildar Jónsdóttur á Kal-
manstjörn. Hjá hans stöfum er og skorið Giptist 50
Ara, en hennar Gipt j Octob. 21 Ars — 1841. Lítið T
er skorið innan í R-ið, og mun upphafsstafur þess er
skar. Letrið er vel dregið skrifletur. — Falin til geymslu
í safninu.
Sigríður Þorsteinsdóttir, Seyði3firði: Göngustafur úr
grönnum viði með berkinum á; brotnað hefir neðan af og
er skeytt 32 cm. löngum járnhólk neðan við, og eru 3
látúnshólkar á. Húnninn er af, hefir verið festur við
stafinn með nýsilfurhólk. Stafurinn er holur og er
korðastafur; efsti hluti hans er handfang korðans, 14,5
cm. langt og er nýsilfurhólkur fremst á því. Blaðið er
65 cm. að lengd, 0,6—1,2 cm. að breidd. Stafurinn er
2,1—2,3 cm. að gildleika (þverm.), og lengdin er nú
alls um 80 cm. Hann hefir tilheyrt dr. med. Jóni
Hjaltalín landlækni, séra Matthíasi Jochumssyni og
Skafta ritstjóra Jósefssyni.
Salvör Sigurðardóttir, Reykjavík: Skauttreyja úr svörtu
klæði með fluéls-kraga og -uppslögum, silfurbaldýruð-
um. Svartir fluélsborðar á öxlum, baki og um hand-
vegi. Baldýruð af Eydísi Halldórsdóttur í ölfusinu;
liklega ekki löngu eftir að nýja lagið á skautbúningn-
um tókst upp.
Gunnar Hinriksson vefari, Reykjavík: Vefnaðar-synis-
horn, 193 cm. langur og 86,5 cm. breiður bútur, ofinn
af gef. úr útlendu baðmullargarni með ýmsum tegund-
um vefnaðar. Einskepta (köflótt), klæðisvefnaður (rönd-
óttur) tvívefnaður (röndóttur, tvenns konar), hálf-þri-
13*