Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Síða 113
113
með hinu algenga, gamla, kornsetta víravirki: smá-
hringar úr vírsnúru og smákorn, kveikt á gagnstungnar
hálfkúlur, sem hvolfast saman og mynda hnúðinn, og
er útstandandi brún í milli; þverm. 5,3 cm., þykt 2,1
cm. Stéttin er lág, slær sér strax mjög út, kringlótt
og 10,3 cm. að þverm. A rönd hennar að neðan eru
2 stimplar, annar með 3 turnum og virðist vera stimp-
ill Hamborgar, en hinn, sem mun vera stimpill smiðs-
ins, er sem skjöldur eða hjarta með þverbandi og eru
2 kringlóttir deplar (kúlur) fyrir ofan en 1 fyrir neðan
bandið. Patinan er slétt og mjög flöt, þverm. 10,8 cm.,
barmar 1,4 cm. að br.; strik umhverfis fyrir innan brún-
ina. Stimplar hinir sömu og eru á kaleiknum. Varla
yngri en frá því um aldamót 16. og 17. aldar.
6556. 6/ia Korpóralsklútur úr brúnu silki, þunngerðu, með Ijósleit-
um röndum fram með jöðrunum, ferhyrndur, ca. 54 X
51 cm. að stærð. Saumaður saman í miðju. Sennilega
frá 17. öld. Frá Selárdal. Notaður þar sem saurdúkur
(purificatorium), til að þurka með honum kaleikinn, en
er ekki eiginlega korpórall eða korpóral(i)s-dúkur
(-klútur, palla corporalis), þótt hann og aðrir slíkir
klútar í kirkjum hafi verið nefndir því nafni alt fram
á síðustu öld, né heldur patinudúkur eða kaleiksklútur
(sbr. nr. 6288, palla calicis), og því sizt hefir hann verið
vígsludúkur (eða velum calicis, er mun hafa verið hið
sama). Sbr. ennfr. næsta nr.
6557. — Korpórcilsklútur ( dúkur) úr hvítu lérefti, 61 X 58 cm.
að stærð, með 2,5 cm. breiðum kniplingum meðfram
jöðrunum og litlum, bleikum silkiskúfum i hornunum.
Mun vera sá hinn sami, sem sagður er nýr í byskups-
visitatiu 1725. Frá Hrauni í Keldudal. Notaður sem
saurdúkur (linteolum, purificatorium) og virðiat hafa
verið gerður til þess; nafnið korpóralsklútur (-dúkur) á
þessum og þess konar dúkum er því ekki réttnefni
samkvæmt hinni fornu nafngreiningu, en því er haldið
hér þar eð það er stöðugt notað um þessa klúta í visi-
tatiubókunum frá síðari öldum. Hið forna heiti á þess-
um þurkum (purificatoriis) er líklega saurdúkur. Sbr.
ennfr. nr. 6556 og 6558 o. fl.
6558. — Korpóralsklútur úr bleiku silki, gisofinn og einkar-
fíngerður, um 55 X 52 cm. að stærð, bekkir við jaðra
og aðrir nokkru innar, tiglar í hornum. Slitinn mjög
15