Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Síða 112
112
Kristsmyndin er luraieg og illa skorin, mjög fornleg og
að mestu leyti í rómönskum stíl. Klæði mikið um
lendar og niður á mið læri. Fætur vantar nú niður frá
mjóalegg, en fótleggir eru samhliða og ekki lagður
annar yfir hinn. Andlit horfir beint fram og augu
virðast vera opin. Þyrnisveigur er um höfuð. Hár í
reglulegum fellingum. Naglar eru skornir i höndum,
en yfir úlnliði og mjóaleggi eru sem (útskorin) bönd,
er festi hendur og fætur á krossinn. I brjóstið er skor-
inn kross (3,1 og 2,5 cm.). Róðukross þessi er frá
Álftamýrar-kirkju og er eflaust íslenzkt verk, varla
yngri en frá miðri 14. öld.
6553. 3/i2 Sami: Mynd, prentuð með eirstungu, sem gert hefir
hinn danski listamaður prófessor Georg Haas (1756—
1817); stendur fyrir neðan myndina (einnig útlagt á
frönsku): Den sunamitiske Qvindes Ankomst til Eli-
sæum paa Carmels Bjerget. 2. d: Kong: Bog: 4. Cap.:
27. v. Opfunden og Stucken af Ioh: Iac: Georg Haas
for den förste Præmie paa det Kongelige Maler Bild-
hugger og Býgnings Academie d:, 31, Martii, 1776. —
Myndin er sjálf 46,8 cm. að hæð og 36 cm. að breidd,
blaðið er 57 X 40,3 cm. Það er í upprunalegu um-
gjörðinni og er hún gylt og rauð, 69,5 X 52 cm. að
stærð. — Georg Haas og bræður hans 2 og faðir hans,
sem var þýzkur, voru allir listamenn, stungu myndir í
eir1). — Mynd þessi var fyrrum í Álftamýrar-kirkju.
6554. 5/12 Gleraugu i silfurumgjörð og með silfurspöngum; glerin
eru kringlótt, þverm. 3,3 cm. með umgjörð; spangirnar
eru flatar, breikka til beggja enda, 1. 10,5 cm.; spaðana
vantar á þær. Gleraugun eru alimjög stækkandi. Þau
eru í húsum úr bæki, 1. 13,3 cm., br. 4,4 cm., þ. 1,8
cm.; með löm og læsingu úr látúni, og eru húsin víst
íslenzk. — Att hefir fyrrum frú Steinunn Melsteð í
Klausturhólum, dóttir Bjarna amtmanns Thórarensen.
6555 a-b — Kaleíkur og patina úr silfri og ógylt; kal. er 18,2 cm.
að hæð, lögun skálarinnar rómönsk, nær því sem
hálfkúla, þverm. um barma 9,3 cm., dýpt 4,4 cm.; bætt
í botni. Leggir á meðalkafla sivalir, þverm. 1,9 cm.,
og er lengd meðalkaflans alls 5,7 cm. Hnúðurinn er
‘) Sjá um þá alla í Weilbach, Nyt dansk Kuntnerlexikon, 1896, og Bricka,
Dansk biografisk Lexikon, 1892, og í þeim ritnm, sem þar er bent til.