Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 97
97
merki Ulriks Friðriks Gyldenleve, jarls í Noregi (d.
1704), sonar Friðriks III, 2 ljón á skildi og er kross á
skildinum (dannebrogs-krossinn), kóróna er uppi yfir
skildinum og situr ljón á henni með 3 dannebrogsfána
í hvorum hrammi; beggja vegna skjaldmerksins eru
hjálmar, brynjur, fánar og vopn. Uppi yfir er letur-
band og eru á því nöfnin Ulrich Friderich Guldenlew,
en sjást mjög ógreiuilega, þar eð platan er mjög ryð-
étin. Uppi yfir nöfnunum stendur AN-NO, og hefir ár-
talið að líkindum verið neðst á plötunni, en verður nú
ekki greint þar. Vafalaust steypt í Fritzoe járnsteypu
í Noregi, sem Gyldenlove átti frá 1671 til æviloka. —
Frá sama húsi og nr. 6483.
6485. 22/6 Legsteinn lítill, 1. 77 cm., br. 17—19 cm., næfurþunnur
í vinstri röndina, en 6 cm. að þykt í hina, sjálfgerð,
ótilhöggvin blágrýtishella, einkar-vel slétt á annari
hliðinni og er áletrunin á henni, í 14 línum alls, með
latínuleturs upphafsstöfum, 2,5 cm. að hæð í 1. 1. og
nðri línunum 2—3, en í sumum hinna um 4 cm. Skraut-
greinar upphleyptar eru fyrir ofan áletrunina og grafin
sigurlykkju fyrir neðan hana. Áletrunin er svona:
EPITAPHIVM | SALVD I GVDE | HEIDVRS HION1) |
ION : MAGN | VS : SON : 1 ... (óglögt ártal ?) |
WALGIERD | VR ! GVDMV | NDS •! DOTTVR |
ANNO : 17572) | SAP i 3 i CAP | SALER i RI | ETT-
LATRA | ERV I HENDE | DROTTENS. Einfalt strik
er umhverfis úti við brúnirnar. Letrið er mjög máð af
sandroki. Frá hinum uppblásna kirkjugarði í Stóra-
Klofa á Landi. Fluttur til safnsins samkvæmt fyrir-
mælum fornmenjavarðar.
6486. 22/6 Legsteinn, þunn blágrýtishella, ótilhöggvin, en sérstaklega
falleg að lögun; lengd 1 m., efri endi 29 cm. og hinn
neðri 17 cm. að breidd, randirnar beinar og sléttar,
sömuleiðis báðar hliðar; þykt 3—5,7 cm. Efri endinn
er burstmyndaðar; á hann er höggvíð blaðaskraut með
mannsandliti í miðju, upphleypt verk. Áletrunin er
með mjög smáu, gröfnu og slitnu letri; hún er í 2 aðal-
flokkum, 12 línur í hvorum. Leturhæðin er víðast 2,5
cm. Áletrunin er þannig: Hvilldar : Stadu(r) | Þess :'
‘) N-in ern öll öfug. 2) Ártalið er mjög óglögt, eD Hannes Þorsteinsson skjala-
vörður hefir skýrt svo frá, að Valgerður þessi hafi dáið þetta ár.
13