Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Blaðsíða 91
91
6449. 10/3
6450. 15/3
6451. —
6452. —
6453. »/*
6454. 22/4
6455. —
Jakob Arnason gæzlumaður, i Reykjavík: Peninga-
budda prjónuð með ýmsu móti úr marglitu ullarbandi.
Blýhringur er um opið. Lengd um 20 cm. Heflr til-
heyrt föður gef., Árna Árnasyni í Garðsauka. Gerð af
Elínu systur gef.
Altaristafla úr furu með vængjum, miðtaflan er 103,5
cm. að hæð og 59,5 cm. að breidd, samsett af 2 borðum
með strikuðum rimlum umhverfis að framan og útskor-
inni brún á að ofan; á hana er máluð kvöldmáltíðar-
mynd, ósköp óálitlega, og fyrir neðan myndina eru inn-
setningarorð altarissakramentisins rituð á dönsku með
gulu, gotnesku letri. Vængirnir eru 96 cm. að hæð og
30 cm. að breidd; þeir eru gulbrúnir að utan en innan
á þá eru málaðar með dökkleitum og ljósleitum lit á
gulan grunn myndir guðspjallamannanna, fremur vel.
— Frá Reynivalla-kirkju í Kjós. Virðist vera frá því
um 1700.
Landsskjalasafnið: Bókarkápa, stærð 21,5X17 cm.,
spjöldin úr eins konar pappa, mjög grófgerðum, kjölur
úr sútuðu skinni, sléttur; mógrár pappír utan á og blá-
grár innan á spjöldunum.
Sami: Bókarkápa, pappaspjöld, stærð 32X20 cm., í
ólituðu sauðskinni. Innan á spjöldin eru límd blöð með
myndum; á vinstra spjaldinu er litprentuð mynd af
»En Slavonisk Pandur« og dönsk visa um hann; mun
blaðið því vera frá 1741—53, líklega frá miðri öldinni,
þá voru þessir pandúrar Franz fríherra v. d. Trenck
alræmdir.
Guðni Þorbergsson, Leirá: Reiðgjarðarhringjur úr rauð-
leitum kopar, með gröfnu verki, sem nú er orðið mjög
máð. Á miðbandið er grafið ártalið 1658; 1. 7 cm., br.
6,7 cm.; mjög efnismiklar.
Þjónustukaleikur og patina úr tini í útskornu bækis-
hylki; hæð kal. 6,5 cm.; skálin 5,7 cm. að þvermáli,
1,3 cm. að dýpt; barmar brttir út; stéttin lítið hvelfd,
kringlótt, hæð 5,3 cm.; fótur sívalur, með 3 liðum.
Patinan 5,8 cm. að þverm.; botninn flatur og á honum
upphleypt »guðs lamb«. Lagið er rómanskt og áhöldin
all-gamalleg. Frá Glæsibæjar-kirkju.
Bakstursöskjur rendar úr birki(?), þverm. 12,5 cm., flat-
ar á loki og botni, hæð 5 cm. Á lokið eru skornar 2
bandrúnir, eða búmerki, samsett af rúnum, annað virð-
12*