Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 82
82
miðju: VERKIÐ LOFAR MEISTARANN. Þverm. 32,5 mm.
Hringur er á röndinni og annar í honum. 1 eintak af
hvorum. Hér fylgja með heiðursskjöl þau, er nefndin
veitti, skrautprentuð, eftir frumteikningu Ásgríms
Jónssonar málara, og hefir hann ritað nafn sitt á eitt
þeirra; af þeim eru 2 prentanir og hvor með þrenskonar
gerð; 2 eint. af hverju af þeim er útbýtt var, en 1 eint.
af hverju hinna ; öll með árituðum nöfnum þeirra, er sátu
í sýningarnefndinni. Myndmót skjalsins og stálstimplar
þeir tveir, er verðlaunapeningarnir voru slegnir með,
voru um leið afhentir safninu til geymslu.
5. 28/s Enskur silfurpeningur, one florin, með mynd Victoríu
drottningar og árt. 1887.
6. »*/, Enskur silfurpeningur, hálfkróna, með mynd Carls kon-
ungs II. og ártalinu 1669, gerður á 21. ríkisstjórnarári hans.
7. a/4 Rögnvaldur Magnusen, Tjaldanesi: Danskur silfurpen-
ingur, áttskildingur, með mynd Friðriks konungs IIII. og
ártalinu 1700. Jarðfundinn.
8. 27/4 Forstöðum. safnsins: Danskur silfurpeningur, ferskildingur,
með samandr. FV (þ. e. Friðrik V.) og ártalinu 1764.
9. — Sami: Enskur eirpeningur, half penny, með mynd Ed-
wards konungs VII. og árt. 1904.
10. — Sami: Frakkneskur nikkelpeningur, 25 centimes, með
konumynd, er táknar lýðveldið frakkneska, og ártalinu
1904; með 22 flötum á röndinni.
11. 20/4 Danskur bankaseðill, gildandi 1 ríkisdal, með ártalinu
1788 og nr. 187505; úr hvítum pappír.
12. — Danskur bankaseðill, gildandi fimm ríkisdali, með ártal-
inu 1791 og nr. 228053; blár.
13. — Danskur bankaseðill, gildandi fimm rikisdali, með ártal-
inu 1796 og nr. 38684; blár.
14. — Danskur peningaseðill (»Bevis«), gildandi 20 ríkisdali,
samkv. fyrirskipun 8. apr. 1808; með þvi ártali og nr.
45508; blár.
15. 18/5 Þýzkur silfurpeningur, dalur, með mynd Leopolds kon-
ungs I. og ártalinu 1703.
16. 2/8 Þórður Gunnarsson, Höfða við Eyjafjörð: Norskur silfur-
peningur, 2 mörk, með samandr. F3 (þ. e. Friðrik 3.) og
ártalinu 1669).
17. 12/9 Jón Sighvatsson kaupmaður i Vestmannaeyjum: Verðlauna-
peningur úr tini frá iðnaðar- og listasýningunni í Kaup-
mannahöfn 1872. Þverm. 54 cm.