Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 73
73
henni er útskorin blómmynd; framan á efra hólflnu er
skorið Annó 1846 og hinu neðra upphafsstafirnir L J D
(þ. e. Lilja Jónsdóttir). Skápurinn heflr verið litaður
blásvartur. Frá Möðrufelli í Eyjafirði. Sbr. nr. 5457.
6399. 3/u Hnakksessa ferhyrnd, stærð 44 X 30 cm., með flosuðu
yfirborði og eru á því hjartarmyndir í hornunum og
rós á miðju; upphafstafirnir IH S A (þ. e. á) eru á milli.
Uppdrátturinn að mestu með grænum og rauðum lit á
svörtum grunni, Frá s. st. og nr. 6398. Sbr. nr. 4288.
6400. — Sessuborð flosað úr togþræði með blómum og stöfunum
ST; uppdrátturinn er með grænum, rauðum og gulum
lit, en grunnurinn er svartur. Stærð 33 X 24 cm.
Úr Borgarfirði. Sbr. nr. 3649.
6401. — Þjónustukaleikur og tilheyrandi patina, bæði úr silfri,
saman í hylki úr birki með furuloki. Kaleikurinn er
8 cm. að hæð, skálin nær hálfkúlumynduð og 6,4 cm.
að þverm. og 2,4 að dýpt í miðju. Miðkaflinn hefir
verið algyltur, hnúðurinn flatur, þ. 1. cm., með 6 bung-
um, þverm. 2,9 cm. Stéttin fremur flöt og lág, gylt og
grafin umhverfis neðst, þverm. um 6,2 cm. Lagið að
miklu leyti rómanskt og þó að sumu leyti gotneskt.
Patinan er 7,8 cm. að þverm. með fjögra blaða-krossi
á botni miðjum. Hylkið er heill og ósamsettur hólkur
með eyrum upp úr og göt á þeim, sem smeygt er í
teini til að halda lokinu. Botn er negldur í. Hæð
11,5 cm. (með eyrunum), þverm. 9,3—9,8 cm., vídd 6,2
cm. Hylkið hefir þrengst er það þornaði og hefir það
valdið miklum skemdum á kaleiknum og patinunni,
sem nú er rifin, beygluð og bætt. Utan á hylkið er
skorin bandrún eða búmerki samsett af rúnunum
(og |) að líkindum og mun eiga að lesa úr því Arni\
þverstrik er yfir legginn ofan til er myndar kross, og kann
þetta að vera búmerki prests með þessu nafni. Lokið
hefir skorist mjög að neðan með hringmyndaðri egg,
sýnilega litlu bakstursskurðarjárni, sem hefir verið að
eins 2,5 cm. að þverm.; hafa obláturnar haft sömu
stærð og krónupeningar. — Frá Grenivíkur-sókn.
6402. 19/u Legill úr furu (rekaviði), um 30 cm. að þverm. og 18
cm. að hæð. Eyru hafa verið á tvo vegu, en eru nú
brotin af; 2 göt á efra botni og stafirnir SE skornir á
hann, upphafsstafir Stefáns Eiríkssonar frá Ási í Holt-
um. Ein trégjörð á hvorum enda.
10