Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 64
64
kirkjunni; munu því hafa verið frá »hústrúarsæti« í
Hólakirkju.
6344a-k.14/8 Sami: i>Pilárar« 10 að tölu og brot af einum að auk,
allir úr furu og mjög eins gerðir, laglega útsagaðir úr
3 cm. þykkum borðum, 21 cm. (8”) breiðum; lengdin
er 152,5 cm. Þeir eru allir skrautmálaðir beggja vegna
með ýmsum litum á blám grunni. Eru allir úr milli-
gerð þeirri er var á milli kórs og framkirkju í Hóla-
kirkju.
6345 a-c.— Sami: Spjöld 3 úr furu, ferhyrnd, nær jafnstór, 1. 96—
98 cm., br. 20—21 cm. Á bakhlið eru þau hefluð þunn
við randir og hafa verið feld í umgjarðir, en að fram-
an eru þau flöt og máluð blá undir myndir efst, svört
um miðju en ómáluð nest. Á einu er mynd konu í
rauðum undirkyrtli og grænum yfir, með ljósleita kápu
yfir öxlum og baki; í hægri hendi heldur hún á tveim
samtengdum hjörtum, en í hinni vinstri á samróma
lýru. Fyrir ofan er letrað með hvítu skrifletri: Ein-
drægnen. — Á öðru er mynd konu í svipuðum búningi
og styður hún hægri hendi á akkeri; yfir er letrað: Von-
en. — Þá er 3. spjaldið, og er á því konumynd í rauð-
um kyrtli víðum með grænt yfirklæði bundið um herðar
og dökkleita slæðu yfir höfðinu og niður á brjóst; í hægri
hendi heldur hún á sprota, en á vinstri hendi hefir hún
fat, er tvær dúfur sitja á og stinga þær saman nefjum
(kyssast). Við hægri hlið konunni situr allsnakið ung-
barn á örvamæli og er bogi bundinn á handleggi og herð-
ar, en hendur bundnar á bak aftur. Til ekki ónauðsyn-
legrar leiðbeiningar við réttan skilning þessarar mynd-
ar er letrað fyrir ofan hana: HreinLijfið (n.b. ekki kven-
kynsorð). — Spjöld þessi munu hafa verið neðst í milli-
gerð þeirri milli kórs og kirkju, er áður var í Hóla-
kirkju. Myndirnar mega heita fremur vel málaðar og
svo má segja um alla þessa skrautmálningu, sem er á
þessum síðast töldu gripum. Mun hún vera eftir íslend-
ing, sem lært hefir málaralist, máske Jón Hallgrímsson
frá Kasthvammi (sbr. nr. 6336).
6346. — Sami: Grind lítil, 65 cm. að br. og 69 cm. að hæð,
með 4 »pílárum« útsöguðum og skrautlega máluðum;
af umgjörðinni vantar þann hlutann, er lainirnar hafa
verið á. Járnkrókur er á að framan. — Líklega frá