Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 63
63
6339. 18/8
6340. 14/s
6341. —
6342. —
6343. —
til að steypa í tólgarkerti handa kirkju þeirri er hann
tilheyrði. Hann er útlendur að gerð og líklega frá 18.
öld. Sbr. nr. 5556.
Helgi Pétur Hjálmarsson, prestur á Grenjaðaðarstöðum:
Jámmél með hringum og eru þeir að utanmáli 8,9—9,4
cm., gildleika 0,6 cm., bilið milli þeirra 12,5 cm.; milli
mélanna er 3. hlekkurinn, boginn í miðju og með
lykkjur á endum, — önnur nú nær öll af; á mélunum
leika lausir hringar, svo sem á nr. 2570 og 4840,12 og
4020. Járnmél þessi eru vafalaust mjög forn; þau
fundust vorið 1886 á Grænavatnsmelum í Mývatns-
sveit.
Jósef Björnsson alþingismaður á Vatnsleysu í Skagafirði:
Grindverk, 278 cm. að lengd og 79 cm. að hæð, alt úr
furu og að mestu leyti rauðmálað annars vegar, að
aftan, en að framan með skrautmálningu, englamynd-
um o. fl. á grænleitum grunni; skiftist í fjóra aðalkafla
eða rimlagrindur, er hver um sig skiftist með smárim-
um í margar (36) smárúður; vantar nú eina af þessum
fjórum rimlagrindum í.
Sami: Grindverk, 206,5 cm. að lengd, jafnhátt og hitt,
nr. 6340 og að öllu leyti með líkri gerð, en skraut-
málningin er annarskonar, blómstrengir í skábogastíi.
Bæði erú grindverk þessi úr steinkirkjunni á Hólum í
Hjaltadal, frá þeim tíma er hún var bygð, um 1763;
munu vera milligerðir úr framkirkjunni innantil.
Sami: Stólbrúður með áfastri hurð á járnlömum ; hæð
stólbrúðarinnar er 164 cm., br. 24 cm., þykt 5 cm. —
Efst á henni er kringlótt höfuð og eru máluð framan
(þ. e. utan) á það ýms blóm á blám grunni, en blátt
er það að aftan (innan). Niður frá höfðinu er brúður-
in græn að framan en rauð að aftan. Hurðin er 133
cm. að hæð, 58,5 að br. og 2,7 cm. að þyKt, með einu
spjaldi rauðu og rauðum lista ofan á, rauð að aftan og
græn að framan, umgjörðin. Skrá úr járni og skráar-
lauf, rauðmáluð, og lamir líka. Strikin um spjaldið
eru gul. Skránni hefir verið lokið upp beggja vegna
með lykli, sem nú vantar. — Mun vera frá byskups-
sæti í Hólakirkju.
Sami: Stólbrúður með áfastri hurð, að öllu leyti líkar
nr. 6342, nema að hurðinni er fest hægra megin við
brúðina og sýnir það að þær eru vinstra megin úr