Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Síða 59
59
6317.
6318.
6319.
6320.
stendur: Sr. MOS innan í öðrum, en ártalið 1773 innan
í hinum og 3 deplar fyrir ofan og neðan það, en einn
fyrir framan og aftan. M 0 S eru upphafsstafir séra
Magnúsar Olafssonar, er varð prestur í Berufirði þetta
ár (1773) og síðar í Bjarnanesi (d. 1834).
8/7 Reiðgjarðarhnngja úr kopar, rauðleitum, ferhyrnt og
með þverbekk yfir miðju, óvenju stór, 1. 10,2 cm., br.
8,8 cm. Laglega grafin að framan og með áletrun með
rómversku upphafsstafaletri: EF | ÞV | GIRNIST |
GODVMM | HEST | E | (sic!) AD | RIDA | HAFDV
| TAUM | I | HENDE. Meira hefir ekki komist af
vísunni á þessa hringjuna, en botninn verið á hinni,
sem á móti henni hefir verið. Virðist vera frá 17. öld.
Sbr. nr. 2633, einar hringjur að öllu leyti svo líkar
þessari, að þær virðast steyptar eftir sama móti og
smíðaðar af sama manni; á þeim er ártalið 1674 ogeru
þær af Vesturlandi. Þessi er til safnsins komin fyrir
mörgum árum, en hefir ekki verið tekin á gripaskrána
fyr.
®/7 Karlmannssli’ór íslenzkir úr blásteinslituðu leðri, aftur-
þvengjaðir, þ. e. þvengurinn liggur yfir þveran skó og
er stungið út og inn um skóinn aftur með til hæls. —
Við heimabrúkun var þvengjunum stungið niður í skó-
inn undir hælinn, en á skóm, sem gengið var á
úti á ferðum, voru langir þvengir, sem bundið var um
mjóalegginn. Skór þessir eru nýgerðir. Frá Gunnars-
holti á Rangárvöllum.
u/7 Kristján Bergsson, Stað í Aðalvik: Flatskeifa úr járni,
lítil og rír, með 3 götum, 1. 8 cm., br. 8,6 cm. Annar
hællinn aflagaður. Fundin vorið 1912 um 2 álnir í
jörðu á Stað í Aðalvik.
20/7 Axarblað úr stáli af böðulöxi þeirri er þau Friðrik Sig-
urðsson og Agnes Magnúsdóttir, morðingjar Natans
Ketilssonar, voru hálshöggvin með 12. jan. 1830 í
Vatnsdalshólum af Guðmundi Ketilssyni. Blaðið er 44
cm. að lengd fyrir egg, virðist hafa verið cm. lengra,
og 27 cm. að breidd með auganu. Eggin hefir verið
mjög bein, er nú stórskörðótt og blaðið alt gallað, þar
eð öxin hefir lent í húsbruna á Möðruvöllum í Hörgár-
dal, þar sem hún var geymd meðan þar var amtmanns
setur og siðan unz Stefán skólameistari Stefánsson flutti
hana með sér til Akureyrar til þess að koma henni til
8*