Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Page 36
36
tíma síðar, en þó fyrir siðaskiftin líklega. Hversu sá kross hafi
verið, er þessi róða er af, geta menn fengið hugmynd um af eldri
búningnum á Berunesskrossinum, og svo af Draflastaðakrossinum,
þótt hann sé stærri. Þessir 3 hafa verið nær jafngamlir, sennilega
smíðaðir á fyrri hluta 13. aldar og benda helzt á Limoges eða Vestur-
Frakkland sem upprunastað sinn.
Þá skal geta þeirrar róðunnar, sem er með tölmerkinu 240, —
hjá Berunesskrossinum á myndablaðinu. Hún fanst í Bygðarholti á
Breiðumýri í Flóa, og kom til safnsins árið 1865; er því lýst nokk-
uð í Skýrslu I, bls. 110—11. Hún er steypt úr ijósleitum eirblend-
ingi eða messing, en er þó mjög dökk og með dumbrauðum blett-
um; því mun hún sögð í Skýrslu hafa verið máluð; en þetta stafar
af því, að hún hefir verið eldborin. Eins og sést af myndinni hefir
hægri framhandleggur verið sleginn fiatur og brotið af honum um
miðju. Hæðin er nú mest 14,6 cm., — kórónuna vantar, — en
faðmlengdin hefir verið um 14 cm. Höfuð er hátt upphafið, og fæt-
ur standa all-langt út, sömuleiðis horn af mittiskýlunni, en að öðru
leyti er myndin miðlungi upphleypt. Hún hefir aldrei verið smelt
og er því óskild hinum. Virðist hún kunna að vera íslenzk að upp-
runa og hefir verið fremur vel gerð. Ekki mun hún yngri en frá
13. öld. Vafasamt er hversu kross sá hefir verið, sem hún hefir
verið á i öndverðu.
Þá er síðasti krossinn, er hér skal lýst. Hann er með tölu-
merkinu 4811 og kom til safnsins árið 1901 frá Sólheimum í Mýrdal;
fundinn að sögn í kirkjugarðinum þar, en ekki virðist hann hafa
legið mjög lengi í jörðu, því að ekki sér á honum. Hann má heita
allsendis óbreyttur frá upphafi; einungis hafa verið boruð göt á
enda armanna og neðst við brodd, sem er niður úr, sjá meðf. mynd,
er lýsir allri gerð krossins vel. Bæði krossinn sjálfur og myndin á
honum er steypt úr ljósleitum kopar. Hæð krossins er 21 cm. og
broddur að auk niður úr, 3,2 cm. að lengd. Lengdin á þverálmunni
er 18,2 cm.; breidd yfirleitt 3,2 cm., nema við endana, þar er hún
3,9—4,2 cm. Þykt krossins um 3,6 mm., nema eftir miðjunni í báð-
um álmunum, þar er 1,5 cm. breið og 2 mm. djúp gróp inn í kross-
inn. Líkneskið er mjög hátt upphleypt, um hnén er hæð þess út
frá krossinum 2,2 cm. Lögunin er að mestu rómönsk; höfuðið hall-
ast þó nokkru meir en venja er á rómönsku krossunum, og fætur
eru kreptir um hnén meira en við á. Gætir fótstalls lítt og naglar
eru engir í fótum, en fótaþrepinu er fest við krossinn með nagla.
Ef til vill á að vera vottur fyrir síðusárinu á hægri siðu. Mittis-
skýla er síð og víð og fest með belti. Kóróna á höfði. Andlitið er