Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Årgang

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 20

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1914, Side 20
20 lét vera garn á vinduteininum svo þér sjáið hvernig undið var á hann, sem er alt í kross, því annars hefði flóknað vindan. Slangan eða sá óofni þráður, var ætíð gerð upp, og vafin yfir slána á bak við rifinn, en þegar hún tók að styttast var hún lögð yfir um loku- þollana. Göt þau, er sjást á hleinunum, lét eg gera til að sýna, hvernig rakið var til vefnaðar; í þau var stungið hælum til að rekja á þráðinn, í staðinn fyrir rakgrind, sem nú er höfð; en götin voru miklu fleiri á þeim fullstóra; hælar þessir voru teknir úr meðan ofið var, og aldrei hafðir í götunum nema meðan rakið var. Kljá- steina gat eg ekki fengið með götum á (eins og þeir þó voru), þess vegna saumaði eg utan um þá til að geta hnýtt fetana í þá. Skil- skaftið er ekki brúkað nema meðan settur er til vefurinn, það var haft í skilinu, meðan höföldin voru lögð á skaftið. Þegar ofið var vaðmál, voru hafaldasköftin 3, en svo mörgum sköftum var ómögu- legt að koma við á þessari grýtu; höfðum við því dúk, og eitt haf- aldaskaft; en þetta er svo illa ofið, það var ekki hægt betur í þessu, því það lætur alt undan þegar á að slá. Skeiðin er ólíkust því sem hún á að vera, og sagði sá sem smíðaði, að ómögulegt væri að koma réttu lagi á hana svo litla; en safnið á eina úr hvalbeini, svo það gerir minna til. Stúlkan, sem færir yður þessa ómynd, á að segja yður hvernig á að brúka meiðmarnar, það er ekki gott að lýsa þeim. — Eg bið yður nú að endingu að fyrirgefa mér hvað þetta alt er ófullkomið; en eg mátti ekki hafa hann stærri, hann varð þá ekki fluttur. — Vænt þætti mér um að fá að vita með nokkrum línum, hvernig yður líkar þessi sending. Virðingarfylst Anna Thorlacius*. Bréfið, vefstóllinn með vefnum byrjuðum og allt tilheyrandi meðtekið 2. júní 1877; bréfinu svarað og þakkað 10. júní s. á. Kafli úr bréfi frá sömu konu til sama, sem svar upp á bréfið frá 10. júní 1877: »Það gleður mig svo ósegjanlega, að yður gat líkað þessi ófull- komna sending mín. Þér biðjið mig að gefa yður upplýsingar um hvernig rekja eigi; því er ekki gott að lýsa, og þess vegna sendi eg yður nú með bréfi þessu dálitla grind, sem þýðir vefstólinn, með þræði á, sem verið er að rekja, og hefi eg beðið Ólínu mágkonu mína að útskýra betur fyrir yður, hvernig á að fara að því, og mun- uð þér fljótt sjá að slangan getur orðið löng á fullbreiðum vefstað, þegar rakið er á mörgum hælum; hönkin, sem hangir við grindina, heitir varptá, eða vartá, ekki veit eg hvort nafnið er réttara, enda
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126

x

Árbók Hins íslenzka fornleifafélags

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Árbók Hins íslenzka fornleifafélags
https://timarit.is/publication/97

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.