Morgunblaðið - 28.03.1999, Síða 57
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 5 7
I
MORGUNBLAÐIÐ
FÓLK í FRETTUM
I sigurinn
.
ÞAÐ var mögnuð stemmning og
mikil spenna þegar Menntaskólinn
við Hamrahlíð og Menntaskólinn í
Reykjavík áttust við í úrslitum
spurningakeppninnar Gettu betur í
Valsheimilinu á föstudagskvöld.
Bæði liðin voru sigurviss fyrir
keppnina og stóðu sig vel en M.R.
hafði betur og sigraði með 26 stig-
um gegn 24 stigum M.H. í verð-
laun fengu sigurliðið, þjálfari þess
og liðsstjóri vikuferð til Barcelona
með Ferðaskrifstofu stúdenta auk
bókmenntaverðlauna en bæði liðin
fengu fyrstu þrjú bindi Islenskrar
bókmenntasögu. Auk þess fengu
öll nemendafélög þeirra skóla sem
tóku þátt í átta liða úrslitum iMac
tölvu frá Aco.
Mikil vinna dómara
Það er ekki síst dómari keppn-
innar sem gerir hana spennandi.
Að þessu sinni gegndi Illugi Jök-
ulsson því embætti og með hnyttn-
um og vel útfærðum spumingum
hans var keppnin líflegri en oft áð-
ur.
„Eg er algerlega eins og undin
tuska og barinn hundur og annað
eftir því eftir þessa lokaviðureign,“
sagði Illugi sem taldi að spennu-
falls gæti orðið vart hjá sér hvað af
hverju.
„Þetta er miklu meiri vinna en
ég hélt og ég hef reynt að kanna
hverja spurningu í bak og fyrir áð-
ur en henni er varpað fram en
samt er ég aldrei viss um nokkum
einasta hlut. Það var um 40 mínút-
um fyrir þessa úrslitakeppni sem
síðustu spurningunni var hagrætt
örlítið svo að ekkert færi nú á milli
mála.“ Það hefur ef til vill viljað
MR-ingum til happs enda réðust
úrslitin á lokamínútunum.
Sigur sjöunda
árið í röð
Liðsmenn sigurliðsins, þeir
Hjalti Snær Erlingsson, Sverrir
Guðmundsson og Arnar Þór Stef-
ánsson, höfðu tekið lífinu með ró á
keppnisdaginn og vom afslappaðir
rétt fyrir keppnina og að henni lok-
inni vom þeir í sjöunda himni.
„Mér líður mjög vel, hefur aldrei
liðið betur,“ sagði Hjalti og brosti
sínu blíðasta með fullt fang blóma.
„Þetta er sætasti sigurinn,
stærsti salurinn og besta stemmn-
ingin hingað til að mínu mati,“
sagði Sverrir og Amar bætti við að
þetta hefði verið glæsilegur árang-
ur. „Við þökkum sigurinn miklum
æfingum, góðum þjálfurum og
traustum aðstandendum," hélt
hann áfram.
„Það hefur verið talað um H-in
þrjú: Hæfnin, heppnin og hefðin en
það virðist vera hún sem skapar
sigurinn," sögðu Sverrir og Hjalti
einum rómi og Amar var
sammála og bætti við:
„Við viljum þakka M.H.
fyrir drengilega keppni
en minnum þau á að það
þýðir ekkert að kæra
núna.“
-Hvernig ætlið þið
að fagna sigrinum?
„Við emm á leið í
útgáfuteiti hjá skóla-
blaðinu okkar á L.A.
Café og síðan verður
haldið heim til mín
býst ég við,“ sagði
Sverrir. „Og þai-
verður dansað og
sungið fram á
rauða nótt,“ sögðu
félagarnir hlæjandi
að lokum og tilhlökkunin skein úr
augunum á þeim.
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
ÞEIR Iljalti, Sverrir og Arnar voru að
vonum ánægðir með sigurinn.
FULLT
var út úr
dyrum í
Valsheimil-
inu og
hvöttu
stuðnings-
menn sitt lið
til dáða.
I
I
1
Komdu viö í FJALLAHJOLABUÐINNI Faxafeni 7
og fáöu boðsmiða á sérstaka forsýningu
á myndinni Blast fpom the Past
í Laugarásbíó 29. mars kl. 9.00.
HASKOLABIO
LAUGARÁSs -
SÍMI 5200 200 - OPIÐ MÁNUD. TIL FÖSTUD. KL. 9-18. LAUGARD. KL. 10 - 14
(D RAÐGREIÐSLUR
DX 3.3 DX 3.5 DX 3.7 ■ DX 5.3
Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Shimano ST-EF 28 Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano TY-32 Afturskiptir: Shimano 7 speed Skiptar: Grip Shift Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Altus Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: Shimano Alivio Bremsur: V Stell: Cro-Mo Framskiptir: Shimano Acera X Afturskiptir: Shimano Alivio Skiptar: ShimanoMC18 Bremsur: V
*Kr. 25.931,- ^ Kr. 29.352,- J Kr. 33.842,- 1 Kr. 47.730,-