Morgunblaðið - 28.03.1999, Síða 43
MORGUNBLAÐIÐ
MINNINGAR
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 4^
hann væri ekki alltaf að flíka því
enda dulur og hljóðlátur. Hann
hvatti þau til að mennta sig og not-
aði oft máltækið að heimskt væri
heimaalið bam. Það sama á við um
barnabörnin. Hann var ekki maður
sem tók þau á kné sér og hossaði
þeim, heldur leiddi hann þau um
jörðina til þess að skoða skepnurnar
eða skógarreitina og bauð þeim með
í ökuferð á dráttarvélunum. Þessar
ferðir veit ég að eru sonum mínum
ógleymanlegar og eru varðveittar
sem kærar minningar nú þegar afí
þeirra er farinn til þess að yrkja
jörð annars staðar.
Genginn er vitur maður. Hann
skildi margar perlur eftir börnum
sínum til umhugsunar. Hann veikt-
ist af lungnabólgu 10. mars og fljótt
varð séð að hann hefði það ekki af,
eins og hann sagði sjálfur. Aður en
hann missti rænu sat dóttir hans við
sjúkrabeð hans og þau ræddu
skáldskap og listir. Þegar umræð-
urnar voru komnar að atómljóðum
og abstraktverkum lét dóttirin í Ijós
þá skoðun sína að sumt af slíkum
verkum væri hnoð og undirmáls-
mennska. Þá kvað hann upp úr með
það að „maður skyldi fara varlega í
að dæma sokka og vettlinga sem
prjónaðir eru með öðru lagi“. Þetta
var síðasta perlan sem hann lét
börnum sínum eftir til umhugsunar.
! Ég þakka honum dýrmæta sam-
fylgdina.
Blessuð sé minning þessa mikla
öðlings.
Gunnar Jónsson.
Daníel tengdapabbi minn er lát-
inn. Þó að ég fagni íyrir þína hönd
og viti að þér fannst þínu ævistarfi
lokið eru blendnar tilfinningar sem
berjast í brjósti mér núna. Það er
oft sagt að einn komi þegar annar
fer og mér finnst það eiga sérstak-
lega við núna þegar þér er um þess-
ar mundir að fæðast þitt níunda
barnabarn. Erfitt er til þess að
hugsa að litla bamið okkar Friðjóns
geti aldrei komið til þín og eins að fá
ekki að sjá þig oftar sem stoltan og
glaðan afa með litlu bamabami eins
og þegar Valdís Halla kom til þín,
en ég trúi því að þú fylgist með okk-
ur þaðan sem þú ert nú. Ég veit að
þú hefðir viljað að við gleddumst yf-
ir nýju lífi en syrgðum ekki og það
ætla ég að hugsa um og gera.
Blómastofa
Friðfinns
Suðurlandsbraut 10,
108 Reykjavík, sími 553 1099.
Opið öll kvöld
til kl. 22 - einnig um heigar.
Skreytingar fyrir öll tilefni.
Gjafavörur.
Ingibjörg, þó að við höfum öll vit-
að hvað var í vændum þá er ekki
hægt að vera svo vel undirbúin að
tómleikinn leiti ekki til okkar en ég
vona að Guð veiti þér og allri fjöl-
skyldu þinni styrk í sorginni.
Elsku Friðjón minn, ég veit
hversu kært var á milli ykkar feðga
og skil hve mikilvægt það var fyrir
þig að geta verið hjá pabba þínum
síðustu dagana hans og að vera hjá
honum þegar hann kvaddi. Þú ert
búinn að takast á við sorgina á ein-
stakan hátt.
Ei'fið er tilhugsunin um að kom-
ast ekki til að kveðja þig, Daníel, en
þú mátt vita að hugur minn verður
hjá þér.
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Þín,
(V. Briem.)
Heiðrún.
Vertu yfir og allt um kring
með eilífri blessun þinni.
Sitji Guðs englar saman í hring
sænginni yfir minni.
(Sig. Jónsson frá Presthólum.)
Elsku Daníel afi.
Ég trúi að þegar ég fer með bæn-
irnar mínar á kvöldin komir þú og
setjist hjá mér. Núna þegar þú ert
engill hjá Guði viltu þá vemda mig
og líka Ingu ömmu svo að hún sé
ekki alein.
Þín,
Valdís Halla.
Formáli
minningar-
greina
ÆSKILEGT er að minningar-
gi-einum fylgi á sérblaði upp-
lýsingar um hvar og hvenær
sá, sem fjallað er um, er fædd-
ur, hvar og hvenær dáinn, um
foreldra hans, systkini, maka
og börn, skólagöngu og störf
og loks hvaðan útför hans fer
fram. Ætlast er til að þessar
upplýsingar komi aðeins fram
í formálanum, sem er feitletr-
aður, en ekki í greinunum
sjálfum.
Einbýlishús
Eyjaholt 15, Garði
135 fm einbýli með 4 svefnherb. og 52 fm bílskúr. Hús í góðu ástandi.
Skipti á eign í Hafnarfirði eða Reykjavík. Verð kr. 9.300.000.
Upplýsingar á Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 421 1420
og 421 4288. Fax 421 5393.
Sumarhús
Vantar nýlegan 50 til 60 fm sumarbústað eða lóð undir bústað. Þarf að
vera nálægt þjónustumiðstöð, hitaveita og rafmagn á svæðinu. Góðir
kaupendur fyrir réttan bústað.
Upplýsingar á Fasteignasölunni, Hafnargötu 27, Keflavík, sími 421 1420
og 421 4288. Fax 421 5393.
Höfum í einkasölu á frábærum stað við Guliinbrú oa 500 £m lagerhúsnæði
með lofthæð um 3 m og ca 190 fm skrifstofuhúsnæði með frábæru útsýni.
Einar stórar innkeyrsludyr. Mjög góð bílastæði. Húsnæðið hentar mjög vel
fyrir heildverslun og þjónustu. Húsnæðið hefur mikið auglýsingagildi og er
á áberandi stað á homi Stórhöfða og Gullinbrúar.
Upplýsingar veitir:
Ásbyrgi fasteignasala, Suðurlandsbraut 54, sími 568 2444.
533 6050
Paradís á jörð
Vorum að fá í sölu búseldarlega 200 hektara jörð á Suðaustur-
landi. Jörðin liggur að sjó, lax- og silungsveiði. Ágætur húsa-
kostur. Jörðin er nýtt fyrir hrossarækt. Eignaskipti möguleg.
Verð 15 millj.
Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur á Höfða.
Vantar allar
gcröir eigna
á skrá.
Mikil sala
Fallegt sumarhús
Suöurlandsbraut 46, (bláu húsin)
S. 588 9999 • opið í dag kl.13-15
Vorum aö fá í einkasölu þennan fallega sumarbústaö sem staðsettur
er í kjarri vaxinni hlíð skammt frá Laugarvatni. Bústaðurinn er fullbúinn
aö utan og langt kominn aö innan. Kalt vatn og rafmagn og heitt vatn
í nágrenninu. Frábær staösetning. Verö 3,8 m.
—
Seljendur athugið
Vantar eftirfarandi:
2-3ja herbergja íbúð í Fossvogi og Kringlusvæðinu.
Góðar greiðslur.
Vantar einbýlishús í Seláshverfi fyrir fjársterkan kaupanda
sem búinn er að selja.
Höfum kaupendur að flestum gerðum og stærðum eigna,
vinsamlegast hafið samband við sölumenn okkar.
ASPARFELL - BÍLSK. Rúmg. 65 fm íb. á 6. hæð f lyftuh. ásamt bíiskúr.
ibúðin er í góðu ástandi með parket. Suðursv. Fallegt útsýni. Verð 6,8 millj. 9336
SAFAMÝRI - LAUS Rúmgóð 3ja herbergja íb. á 4. hæð í fjölb. með bílskúrs-
rétti. Gott útsýni. Vestursv. Hús og sameign í góðu ástandi. LAUS STRAX. 9445
ASBRAUT - KÓP. 4ra herbergja íb. á 3. hæð og skiptist i 2 saml. stofur og 2
svefnherb. Suðursv. Góð aðkoma. Stærð 91 fm. Áhv. 4 millj. Verð 6,9 millj. 9438
LEIRUBAKKI - AUKAHERB. Vorum að fá í sölu góða 4 til 5 herb. endaíb. á
3. hæð ásamt góðu aukaherb. f kj. með aðg. að snyrtingu. 3 svefnherb. Nýl. eldhús-
innr. Þvhús í íbúð. Hús í góðu ástandi. Áhv. byggsj. 2,4 m. Verð 8,3 millj. Stutt í
skóla og verzlanir. 9507
BERJARIMI - BÍLSK. 5 herbergja íb. á 1. hæð ásamt stæði í bílskýli. Sérsm.
innr. í eldhúsi. Þvhús í (búð. Parket á stofu. Stærð 111 fm. Hagstæð lán. Verð 10,7
m. Ath. skipti á minni eign. 9456
TUNGUVEGUR Mjög gott og mikið endumýjað raðhús, tvær hæðir og kj. 3-4
svefnherbergi. Nýl. sérsm. eldhúsinnr. Nýl. gler. Stærð 131 fm. Verð 9,5 millj. Gott
hús. Útsýni. 9500
NJORVASUND Gott einbýlishús á þessum frábæra stað, húsið stendur á hom-
lóð með afgirtum garði. 4-5 svefnherb. Góða stofa. Parket og fllsar. Stærð 191 fm.
Verð 16,9 millj. Húsið er talsvert mikið endumýjað. 9440
LOGAFOLD Einbýlishús á einni hæð ásamt bílskúr. 3 svefnherb. Góðar stofur.
Parket og flísar. Lott viðarklædd. Lóð frágengin. Stærð 153 fm + 40 fm bllskúr.Verð
16,9 millj. Frábær staðsetning. 9466
GAUTAVIK Glæsilegar sérhæðir, tvær 136 fm ásamt bílskúr og ein 109 fm [ nýju
húsi sem verða afhentar fullbúnar án gólfefna eða tilb. til innr. að innan. Hús full-
klárað að utan. Stærð 136 fm. Verð frá 11 millj. Allar nánari uppl. á skrifst. 9400
HAUKALIND - KÓP. Ný raðhús á tveimur hæðum með innb. bilskúr. Húsin
skilast fullbúin að utan, en fokheld að innan. 4 svefnherbergi og aukarými á neðri
hæð. Stærð 202 fm. Lóð þökulögð, bílastæði malbikuð. Teikn. á skrifst. Verð 11 millj.
9254
NÝBÝLAVEGUR - KÓP.
Gott og vel staðsett 167 fm verzl-
unar- og atvinnuhúsnæði á götu-
hæð með góðum gluggum og inn-
keyrsludyrum. Auðvelt að skipta i
tvær einingar. Útsýni. Verð 13,6
millj. LAUST I MAÍ. 9460
OPIÐ í DAG, SUNNUDAG, FRÁ KL. 12-15.
Sími 533 4040 Fax 588 8366
Ármúla 21
DAN V.S. WIIUM, hdl. lögg. fasteignasali.