Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 37
MORGUNB LAÐIÐ
+ Helgi Guðmund-
ur Ingólfsson
var fæddur í Gr-
indavík 22. septem-
ber 1935. Hann lést
á heimili sínu í
Reykjavík 18. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hans voru
Ingólfur Sigurðs-
son, f. 23.5. 1913, d.
28.9. 1979, vélsijóri
og síðar bifreiða-
stjóri á Akranesi,
og kona hans, Soff-
ía Jónfríður Guð-
mundsdóttir, f. 23.6.
1916, nú vistmaður á sjúkrahúsi
Akraness. Systkini Helga eru
Magnús Davíð, f. 11.1. 1937,
matsveinn, Erla Svanhildur, f.
4.4. 1938, matráðskona, Krist-
ján Árni, f. 12.12. 1941, bifvéla-
virkjameistari, Steinunn Sigríð-
ur, f. 29.12. 1944, bókasafns-
fræðingur, Sigurður Björn, f.
8.2. 1950, verkamaður, og Guð-
björt Guðjóna, f. 13.8. 1953,
húsmóðir.
Hinn 9. október 1964 kvæntist
Helgi Jónínu Þóru Helgadóttur,
f. 16.7. 1946, d. 15.9. 1992, hús-
móður. Hún var dóttir Helga
Gestssonar, trésmiðs frá KoIIs-
vík, og konu hans, Sigríðar Ing-
veldar Brynjólfsdóttur frá
Þingeyri. Helgi og Jónína slitu
Vinur minn, Helgi Ingólfsson, er
fallinn í valinn í sinni síðustu orrustu.
Áður hafði hann marga hildi háð
og jafnan gengið af velli sem sigur-
vegari, en í þetta sinn var glíman
bæði snörp og ójöfn.
Vinátta okkar Helga spannaði
næstum hálfa öld er ég óharðnaður
unglingur fluttist á Aki-anes frá
Akureyri árið 1953. Fjölskylda
Helga var ein sú fyrsta sem ég
kynntist og var mér tekið opnum
örmum frá fyrstu tíð.
Margt var brallað á þessum íyrstu
árum á Skaga, en fljótlega tók alvar-
an við.
Helgi fór ungur á sjóinn en ég
samvistum. Börn
þeirra eru: 1) Guð-
mundur Helgi, f
17.7. 1964, mat-
reiðslumeistari á
Akureyri, kvæntur
Vordísi Baldurs-
dóttur og eru börn
þeirra Jónína Sæ-
unn, f. 23.5. 1990,
og Baldur Már, f.
11.8. 1991. 2) Sig-
urður Helgi, fram-
kvæmdastjóri í
Reykjavík, f. 27.6.
1966, kvæntur Ra-
kel Haraldsdóttur.
Þeirra börn eru Nína Rún, f.
8.12. 1995, og Jafet Þór, f. 28.3.
1998. Sonur Sigurðar af fyrra
sambandi er Kristófer Dan, f.
31.3. 1988. 3) Harpa, f. 17.6.
1970, lyíjatæknir í Danmörku,
sambýlismaður Bogi Kristins-
son, sonur þeirra er Kristinn
Helgi, f. 18.5. 1995.
Helgi fór 13 ára til sjós, fyrst
sem háseti og vélstjóri, en síð-
ustu þrjátíu árin sem mat-
sveinn, nú síðast á frystitogar-
anum Vigra. Helgi hætti sjó-
mennsku fyrir rúmu ári vegna
veikinda sinna.
títför Helga fer fram frá Há-
teigskirkju á morgun, mánu-
daginn 29. mars, og hefst at-
höfnin klukkan 13.30.
vann í landi svo oft var vík milli vina
en jafnan urðu fagnaðarfundir er við
hittumst.
Ég held að það sé ekki ofsögum
sagt að Helgi verði þeim minnis-
stæður er honum kynntust, svo lit-
ríkur persónuleiki sem hann var.
Honum var nánast ekkert óviðkom-
andi. Hann hafði skoðun á öllu, hvort
sem það var pólitík (en þar var hann
ævinlega í essinu sínu) eða ein lítil
saga úr hversdagslífinu.
Helgi var víðlesinn og tók jafnan
með sér bókastafla á sjóinn. Voru
það bæði fagurbókmenntir og ævi-
sögur og allt þar á milli.
Ég kveð Helga vin minn og sakna
vinar í stað. Um leið og ég þakka
honum samfylgdina sendi ég bömum
hans, aldraðri móður og systkinum
mínar innilegustu samúðarkveðjur.
Sigiiróli Jóhannsson.
Elsku afi, nú ertu farinn frá okkur
en við munum varðveita allar góðu
minningarnar um þær góðu stundir
sem við áttum saman. Við munum
alltaf muna jólin sem þú varst hjá
okkur á Akureyri og þegar þú keyrð-
ir norður til að vera hjá okkur á af-
mælunum okkar, hvað það var gam-
an. Einnig munum við ætíð minnst
allra stundanna sem við áttum sam-
an í sumarbústaðnum við Vestur-
hópsvatn. Sérstaklega er okkur ofar-
lega í huga ferðin í haust þegar við
vorum saman pabbi, Siggi, Krissi og
við þrjú, hvað það var gaman.
Elsku afi, þú sem varst alltaf svo
góður við okkur, varst alltaf að gefa
okkur eitthvað fallegt, nú ertu far-
inn, horfinn okkur að eilífu en við
munum ætíð minnast þín.
Þó að kali heitur hver,
hylji dali jökull ber,
steinar tali og allt hvað er,
aldrei skal eg gleyma þér.
(Vatnsenda-Rósa.)
Jónína og Baldur.
Afi, mér þótti þú svo góður og
skemmtilegur og fannst alltaf gaman
að vera með þér. Mér þykir mjög
vænt um þig. Guð blessi þig.
Þótt líkami falli að foldu
og felist sem stráið í moldu,
þá megnar guðs miskunnarkraftur
af moldu að vekja hann aftur.
(Stef. Thor.)
Kristófer Dan Sigurðsson.
Elsku afi, þú varst alltaf svo góður
við okkur. Þú gafst okkur svo oft ís
þegar við komum til þín í heimsókn.
Nú ert þú ekki lengur lasinn. Guð og
englarnir passa þig núna.
Vaktu, minn Jesú, vaktu í mér,
vaka láttu mig eins í þér.
Sálin vaki, þá sofnar líf,
sé hún ætíð í þinni hlíf.
(Hallgr. Pét)
Kristinn Helgi, Nína Rún
og Jafet Þór.
MINNINGAR
HELGIG.
INGÓLFSSON
+ Guðrún Hjart-
ardóttir var
fædd á Litla Fjalli í
Borgarhreppi 6.
janúar 1917. Hún
Iést á Hrafnistu í
Reykjavík 22. mars
síðastliðinn. For-
eldrar hennar voru
Hjörtur Þorvarðar-
son bóndi, f. 22.11.
1876, d. 4.6. 1937,
og kona hans Pálm-
ína Sigríður Guð-
mundsdóttir, f.
26.3. 1890, d. 6.5.
1976. Guðrún var fimmta í röð-
inni af sjö systkinum, en tvö
þeirra létust á fyrsta aldursári.
Elsku amma mín, nú kveðjum við
þig í hinsta sinn. Það var erfitt að fá
þau skilaboð að þú værir farin frá
okkur. Það er svo skrítið að það er
sama hversu mikið kveðjustundin
er undirbúin maður samt aldrei til-
búinn. Það er allt svo tómt, en við
reynum að hugga okkur við það að
núna líður þér betur og þér verður
vel tekið af gömlum vinum. Við
munum ávallt bera í hjarta okkar
minningamar um allar góðu stund-
irnar sem við áttum saman. Þær
voru ófáar, það var alltaf jafn gott
og gaman að koma í heimsókn til
þín.
Elsku amma, við eigum eftir að
sakna þín mikið og við viljum
kveðja þig með sálmunum sem þú
kenndir okkur og við fórum alltaf
með saman þegar við sváfum hjá
þér.
Eftirlifandi systkini
Guðrúnar eru Anna
Pálmey, Þuríður
Hugborg, Guð-
mundur Tómas og
Emil.
Guðrún eignaðist
eina dóttur, Fjólu
Guðrúnu Friðriks-
dóttur, og er eigin-
maður hennar Har-
aldur Jóhannsson.
Þau eiga tvö börn,
Guðrúnu Eddu og
Jóhann Friðrik.
títför Guðrúnar
fer fram frá Seltjarnarneskirkju
á morgun mánudaginn 29. mars
og hefst athöfnin klukkan 15.
Ó, Jesú bróðir besti
og barnavinur mesti,
æ, breið þú blessun þína
á barnæskuna mína.
Mér gott barn gef að vera
og góðan ávöxt bera,
en forðast allt hið illa,
svo ei mér nái’ að spilla.
Það ætíð sé mín iðja
að elska þig og biðja,
þín lífsins orð að læra
og lofgjörð þér að færa.
(P. Jónsson)
Guðrún Edda og Jóhann Friðrik.
Það er komið að leiðarlokum, hún
Guðrún Hjartardóttir var ekki bara
ömmusystir mín, heldur var hún
alltaf hún Gunna frænka, stór hluti
af minningum æskuáranna. Hún
var alla tíð glæsileg kona. Fágun,
virðuleiki, tryggð og festa voru ein-
kenni hennar, hún var samkvæm
sjálfri sér í öllu. Ekki er hægt að
hugsa um Gunnu frænku eina, í
huganum voru þær alltaf tvær, hún
og Fjóla, einkadóttir og lífsgeislinn
hennar.
Hún var alltaf heimsótt á barna-
heimilið í Rauðhólum 17. júní, þar
sem hún var forstöðukona í mörg
sumur, en á vetrum prjónaði hún
lopapeysur og sinnti uppeldi dóttur
sinnar. Síðar vorum við mamma
vanar að koma við í Skaftahlíðinni
eða í Grænmetinu og fá kaffi, en þar
vann hún sem matráðskona til
margra ára.
Minningin er skýr um sunnudag-
ana eftir að hún tók bílpróf og
keypti sér bíl. Þær mæðgur komu
akandi heim í Akrakot, hún með
prjónana og Fjóla með dúkkurnar.
Gunna frænka var á undan sinni
samtíð, sjálfstæð, pólitísk og mikil
jafnréttiskona, sem var ekki al-
gengt að konur af hennar kynslóð
væru. En hún var alltaf í nútíman-
um og að tala við Gunnu frænku var
ekki að tala við konu sem var eldri
en ég, heldur við konu með mikla
lífsþekkingu, þar sem hógværð og
æðruleysi voru leiðandi í ráðum
hennar.
Upp í hugann, sem leitar aftur í
tímann, koma eingöngu fram bjart-
ar og fallegar minningar um þig,
kæra frænka. Þitt líf var fallegt. Þú
varst umvafin ást dóttur þinnar,
hennar Fjólu, og síðar Halla
tengdasonar þíns og elsku barna
þeirra, Guðrúnar Eddu og Jóhanns
Friðriks, sem ég og fjölskylda mín
vottum samúð okkar. Þú varst til-
búin að verða sótt, eins og þú sagð-
ir.
Blessuð sé minning þín.
Júlíana (tílla) frænka.
GUÐRUN
HJARTARDÓTTIR
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 37
t
+
Elskulegur eiginmaður minn, faðir okkar,
tengdafaðir og afi,
ÓLAFUR SIGURJÓNSSON
frá Stórólfshvoli,
Gljúfraseli 11,
Reykjavík,
lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur föstudaginn
26. mars.
Kristín Guðmundsdóttir,
börn, tengdabörn og barnabörn.
t
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar og fóst-
urfaðir,
JÓHANN G. ÞORVALDSSON,
Seijabraut 40,
Reykjavík,
er andaðist á Vífilsstaðaspítala þriðjudaginn
23. mars, verður jarðsunginn frá Seljakirkju
mánudaginn 29. mars kl. 15.00.
Þeim, sem vildu minnast hans, er bent á Samtök lungnasjúklinga.
Lovísa Guðmundsdóttir,
Jóhanna Helga Jóhannsdóttir,
Elín María Jóhannsdóttir,
Arna Björg Jóhannsdóttir,
Guðmundur Þór Ámundason.
i
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir,
amma og langamma,
SIGRÍÐUR KJARTANSDÓTTIR,
Hrafnistu,
Hafnarfirði,
lést fimmtudaginn 18. mars.
Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk
hinnar látnu.
Fyrir hönd aðstandenda,
Jónatan Kristleifsson.
+
Bróðir okkar,
ERLENDUR ÓSKAR GUÐLAUGSSON,
Frakkastíg 26,
verður jarðsunginn frá Lágafellskirkju þriðju-
daginn 30. mars kl. 10.30.
Jarðsett verður í Lágafellskirkjugarði.
Elín Guðlaugsdóttir Hannam,
Guðrún Guðlaugsdóttir.
+
Elsku móðir mín, tengdamóðir og amma,
GUÐRÚN HJARTARDÓTTIR,
Skaftahlíð 6,
Reykjavík,
verður jarðsungin frá Seltjarnarneskirkju á
morgun, mánudaginn 29. mars, kl. 15.00.
Fjóla Guðrún Friðriksdóttir, Haraldur Jóhannsson,
Guðrún Edda Haraldsdóttir,
Jóhann Friðrik Haraldsson.
+
Ástkær móðir okkar,
GUÐLAUG SÆMUNDSDÓTTIR,
áður til heimilis
á Kársnesbraut 127,
verður jarðsungin frá Kópavogskirkju mánu-
daginn 29. mars kl. 15.00.
Fyrir hönd ættingja,
Oddný Erla Sadowinski,
Rut Ollý Sigurbjörnsdóttir.
*