Morgunblaðið - 28.03.1999, Page 14
14 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
ÍÞRÓTTIR
Biörgvin
hefur
bætt sig
í báðum
greinum
Morgunblaðið/Halldór Sveinbjömsson
SKÍÐAFÆRIÐ á skíðasvæði ísfirðinga í Tungudal er eins og best verður á kosið þessa dagana. Gunnar Þórðarson, formaður Skíðafélags
ísafjarðar, Gylfi Guðmundsson, mótstjóri landsmótsins, Ellert B. Schram, formaður íþrótta- og ólympíusambandsins, og Egill Jóhanns-
son, formaður Skíðasambands íslands, prófuðu brekkurnar í síðustu viku og þótti mikið til koma.
20 erlendir keppendur
á Skíðamóti íslands
SKÍÐAMÓT íslands fer fram á skíðasvæði ísfirðinga í Tungudal í
næstu viku. Mótið stendur yfir frá mánudegi til fimmtudags. 120
keppendur eru skráðir til leiks og þar af allt besta skíðafólk
landsins og auk þess 20 erlendir þátttakendur í alpagreinum.
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti íslands, mun setja mótið á Silf-
urtorgi á mánudagskvöld. Búist er við spennandi keppni enda
hafa margir skíðamenn dvalið erlendis við æfingar og eru að
keppa við þá sem hafa æft hér heima í fyrsta sinn í vetur.
ÍSLENSKA skíðalandsliðið í
alpagreinum hefur æft er-
lendis í vetur og ef árangur-
inn vetrarins er skoðaður
kemur í ljós að Björgvin
Björgvinsson frá Dalvík er
eini landsliðsmaðurinn sem
hefur bætt sig bæði í svigi
og stórsvigi. Kristinn
Björnsson hóf keppnistíma-
bilið í 16. sæti á heimslistan-
um í svigi en er nú kominn
niður í 51. sæti. Hann hefúr
hins vegar bætt sig aðeins í
stórsviginu, farið úr 281.
sæti í 272. sætið.
Björgvin er bestur ís-
lensku skiðamannanna í
stórsvigi samkvæmt heims-
Iistanum, er með 29,51 stig
og er í 230. sæti og hefur
bætt sig um níu sæti frá því
á listanum í nóvember. I
sviginu var hann í 653. sæti
fyrir tímabilið en er nú
kominn upp í 384. sæti.
Arnór Gunnarsson frá
ísafirði er á svipuðu róli í
sviginu og stórsviginu núna
og fyrir túnabilið, hefúr
reyndar bætt sig hvað
punkta varðar en er aftar á
heimslistanum. Jóliaiin
Haukur Hafstein úr Ar-
manni hefúr bætt sig í svig-
inu en dalað í stórsviginu.
Sveinn Brynjólfsson, Dal-
vík, hefúr sigið neðar á list-
anum í svigi en bætt sig
töluvert í stórsviginu. Jó-
hann Friðrik Haraldsson,
KR, er á svipuðum stað í
sviginu nú og í nóvember,
en hefur bætt sig í stórsvigi.
Sigríður Þorláksdóttir
frá Isafírði, sem sleit kross-
bönd í hné fyrir skömmu,
er fremst íslensku kvenn-
anna í svigi. Hún er nú í
_J92. sæti en var númer 203
á nóvemberlistanum. Hinar
stúlkurnar hafa allar fallið
neðar á listann frá því sem
þær voru fyrir áramót bæði
í svigi og stórsvigi.
Undirbúningur mótsins hefur
staðið yfir_ í nokkra mánuði
enda leggja Isfirðingar mikinn
metnað í að gera mótið sem glæsi-
legast. Opnuð hefur verið vefsíða
með dagskrá mótsins og hinnar ár-
legu Skíðaviku sem hefst formiega
á skírdag. A heimasíðunni verður
hægt að fletta upp öllum úrslitum
mótsins um leið og þau verða til-
kynnt af dómurum. Netfang
heimasíðunnar er: www.snerpa
.is/sfi.
60 ár eru hðin síðan fyrsta
Skíðamót Islands var haldið á Isa-
firði, en þetta er í 61. sinn sem
landsmótið er haldið, en fyrst fór
það fram á Siglufirði árið 1937. Is-
firðingar státa af flestum Islands-
meistaratitlum í sögu landsmót-
anna. Þeir hafa 93 sinnum fagnað
íslandsmeistaratitli í alpagreinum
og 56 sinnum í norrænum greinum.
Akureyringar eiga 87 Islands-
meistara í alpagreinum og 21 í nor-
rænum greinum.
Kristinn Bjömsson frá Ólafsfirði
verður að teljast líklegur til afreka
í alpagreinum. Hann varð Islands-
meistari í svigi á Akureyri í fyrra,
en ætlar sér líklega stærri hluti
núna. Hann fær eflaust harða
keppni frá Dalvíkingnum unga,
Björgvini Björgvinssyni, sem varð
íslandsmeistari í risasvigi í fyrra
pg Hauki Amórsson úr Armanni,
Islandsmeistara í stórsvigi, sem
hefur aðeins æft hér á landi í vetur.
Síðan má ekki gleyma Jóhanni
Hauki Hafstein, Jóhanni Friðriki
Haraldssyni og Sveini Brynjólfs-
syni, sem allir hafa æft í Lil-
lehammer í vetur.
Brynja Þorsteinsdóttir og Theo-
dóra Mathiesen verða að teljast
líklegastar til afreka í alpagreinum
kvenna, sérstaklega vegna þess að
Isfirðingurinn Sigríður Þorláks-
dóttir, sem var þrefaldur meistari í
fyrra, verður ekki með vegna
meiðsla. Þá verður fróðlegt að sjá
yngri stúlkumar sem hafa verið að
gera það gott hér heima í vetur.
Kynslóðaskipti era í skíðagöng-
unni hér á landi og því er erfitt að
spá um úrslit þar. Haukur Eiríks-
son frá Akureyri hefur verið
sterkastur í karlaflokki í vetur, en
hann varð fyrst Islandsmeistari
fyrir tíu árum. Þá hafa ísfirsku
göngukonumar, Stella Hjaltadóttir
og Auður Yngvadóttir, hafið
keppni að nýju og verður forvitni-
legt að fylgjast með þeim á mótinu.
Landsmótið hefst á mánudag
með keppni í 30 km skíðagöngu
karla, 10 km göngu kvenna og 15
km göngu pilta 17-19 ára. Þá verð-
ur keppt í eldri flokkum, 35 ára og
eldri. A þriðjudag verður keppt í
stórsvigi karla og kvenna. A mið-
vikudag verður svigi karla og
kvenna og ganga í öllum flokkum
17 ára og eldri. Þá verður keppni á
snjóbettum og er það kynningar-
grein á landsmótinu. Landsmótinu
lýkur á skírdag með keppni í boð-
göngu karla og kvenna. Þá verður
einnig keppt í stórsvigi karla og
kvenna og era það jafnframt al-
þjóðleg stigamót.
Af erlendu keppendunum er
Norðmaðurinn Aane Saeter með
bestu punktastöðuna samkvæmt
heimslistanum. Hann er með 13,59
FlS-stig í svigi sem er aðeins betra
en Kristinn Björnsson hefur, en
hann er með 13,85 FlS-stig.
Finnska stúlkan Caroline Pellat er
með bestu punktastöðu kvenna,
36,14 FlS-stig í svigi og 25,35 FIS-
stig í stórsvigi.
Frakkinn Francois Simon ætlaði
að mæta á Skíðamót íslands, en
hann handleggsbrotnaði á franska
meistaramótinu um síðustu helgi
og varð því að hætta við þátttöku.
Simon hefur verið í fyrsta ráshópi í
svigi heimsbikarsins í vetur.
Árangur íslenska iandsliðsins í alpagreinum í vetur,
mældur í FlS-stigum og stöðu á heimslista
iPp. Smanburður ástöðu þeirra í nóvember 1998 og í mars 1999 I SVIG I
Nóv. 1998 Mars 1999 NÓV. 1998 Mars 1999
FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig álista FIS- Sæti stig á lista
Kristinn Björnsson 7,79 16. 13,85 51. 33,9 281. 32,21 272.
Arnór Gunnarsson 31,84 176. 31,44 186. 54,79 711. 53,1 731.
Björgvin Björgvinsson 61,91 653. 45,93 384. 31,20 239. 29,51 230.
Jóhann H. Hafstein 56,75 598. 53,37 531. 37,75 364. 38,01 393.
Sveinn Brynjólfsson 54,08 506. 53,51 536. 47,01 539. 40,65 444.
Jóhann F. Haraldsson 60,12 621. 57,66 629. 73,19 1245. 67,84 1177.
Sigríður Þorláksdóttir 43,12 203. 39,11 192. 46,72 313. 50,84 375.
Brynja Þorsteinsdóttir 41,69 193. 40,69 219. 47,41 326. 48,09 335.
Theodora Mathiesen 48,18 256. 46,91 276. 38,95 227. 53,56 419.
Dagný L. Kristjánsdó. 137,42 1452. 140,05 1686. 51,36 376. 57,07 496.
Leó þjálfar kvenna-
lið Skagamanna
LEÓ Jóhannesson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs IA í
knattspyrnu. Samningur Leós gildir til næsta hausts, en stefnt er
að því að ráða þjálfara að þeiin tíma liðnum til lengri tíma. Leó
lék áður með liði Skagamanna.
Laufey Sigurðai-dóttir, sem þjálfaði kvennalið Skagamanna síð-
astliðið sumar, mun aðstoða liðið áfram. Talsverðar breytingar
hafa orðið á ieikmannahópi liðsins, nokkrir eldri leikmcnn hafa
hætt og verður liðið að mestu leyti byggt í kringum leikmenn í
yngri kantinum.
Anelka áfram hjá Arsenal
FRANSKI landsliðsmiðheijinn
hjá Englands- og bikarmeistur-
um Arsenal, Nicolas Anelka,
kveðst ekki á förum frá félag-
inu í náinni framtíð. Yfirlýsing
Anelka kemur í kjölfar frétta
um að ftalska stórliðið Juvent-
us hyggist bjóða fúlgur fjár
fyrir kappann.
Juventus er talið tilbúið að
greiða um 20 milljónir punda
fyrir Anelka, en það samsvarar
ríflega tveimur milljörðum ís-
lenskra króna. Fyrir hjá
ítalska liðinu eru þrír franskir
landsliðsmenn, þeir Zinedinc
Zidane, Thierry Henry og Di-
dier Deschamps, og þeir hafa
lagt hart að kappanum að flytj-
ast til ítalfu. Anelka hefur hins
vegar nú tekið af öll tvímæli -
framtíðin liggi á Highbury í
Norður-Lundúnum.
„Þessa stundina er enginn
vafi í mfnum huga að ég muni
leika áfram í Englandi á næstu
leiktíð og í treyju Arsenal,"
sagði Anelka.
„Thierry hefur sagt mér frá
Iífinu á Ítalíu og hversu vel
hafi gengið að aðlagast leik Ju-
ventus. Við höfum hins vegar
ekki rætt komu mína þangað.
Það getur vel verið að ég verði
einn dag leikmaður Juve,
kannski eftir þrjú eða tíu ár.
En það verður ekki á næstu
leiktíð,“ sagði Anelka enn-
fremur.