Morgunblaðið - 28.03.1999, Qupperneq 9
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999 9
Með Volvo S80 hefst nýr og spennandi kafli í langrí þróunarsögu.
Aldrei áður hefur Volvo lagt jafnmikla vinnu í hönnun fólksbíls.
Volvo S80 er ekki bara öruggasti fólksbíll sem Volvo hefur
nokkru sinni smíðað - hann er einstök upplifun.
Þægindi í hæsta gæðafiokki
Volvo S80 er frábærlega hannaður, hvemig sem á hann er litið,
jafnt að innan sem utan. Farþegarýmið er með því stærsta
og vandaðasta sem þekkist. Fjölbreyttar stillingar á stýri og sæti
gera ökumanni kleift að finna hina fullkomnu akstursstellingu.
I aftursætinu geta þrír fullorðnir notið fyllstu þæginda með
yfirdrifið rými til fóta. Þegar þörf er á auknu farangursrými
má fella niður aftursætisbakið, að hluta eða í heild. Bakið á farþega-
sætinu er einnig hægt að leggja niður.
Einstakir aksturseiginleikar
Volvo S80 hefur einstaka aksturseiginleika. Undirvagninn er einn
sá fullkomnasti sem framleiddur hefur verið og bíllinn helst nánast
alveg láréttur við allar aðstæður. Oflugt ABS hemlakerfi með
loftkældum diskum og EBD átaksdreifingu lágmarkar hemlunar-
vegalengd. STC spólvöm tryggir ávallt besta mögulegt veggrip
og DSTC skriðvöm vinnur gegn því að bíllinn skríði til hliðar.
Feiknarkraftur
Volvo S80 er boðinn með tveimur öflugum og þýðgengum vélum.
Fimm strokka vélin er 2,4 lítra og skilar 170 hestöflum. Hún nýtir
eldsneytið sérlega vel og hefur mikinn togkraft á öllu
snúningssviðinu. Volvo S80 T6 er fyrsti bíll í heiminum með
þverliggjandi sex strokka línuvél. Vélin skilar 272 hestöflum
og kemur bílnum í 100 km hraða á 7,2 sekúndum. Bíllinn er með
nýja Geartronic skiptingu sem sameinar kosti sjálfskiptingar
og beinskiptingar.
Nýr mælikvarði á öryggi
Með Volvo S80 kemur nýr mælikvarði á öryggi fólksbíla.
Af öryggisbúnaði má nefna tvær heimsnýjungar, WHIPS
aftanákeyrsluvörn og IC loftpúðatjöld fyrir hliðarglugga.
Bíllinn er með SIPS hliðarárekstravörn og hliðarloftpúða
í framsætum. Öll fimm sætin eru með þriggja punkta kippibeltum.
Öryggi bama er séstaklega tryggt í Volvo S80, meðal annars er
hægt að fá innbyggðan bamastól í aftursæti.
Fullkomnasta tölvukerfi í fólksbíl
Tölvukerfið í Volvo S80 er það fullkomnasta sem boðið hefur
verið í fólksbíl. Kerfið auðveldar viðhald og gefur ótrúlega
möguleika á uppfærslu búnaðar. Verði bilun í bílnum birtast
ökumanni upplýsingar um rétt viðbrögð á tölvuskjá í mælaborðinu.
Sami skjár getur einnig sýnt upplýsingar úr aksturstölvu, svo sem
bensíneyðslu. Rafeindastýrð þjófavöm útilokar að bíllinn sé ræstur
án rétta lykilsins.
Búnaður fyrir þá kröfuhörðustu
Staðalbúnaður Volvo S80 hefur hvergi verið sparaður og auka-
búnaðurinn mætir ýtrustu kröfum. Allur búnaður hefur verið
hannaður með öryggi í huga. Ökumaður getur til dæmis stjómað
hljómtækjum, farsíma og hraðastilli án þess að taka hendur af
stýri. Innbyggður farsími er með hljóðnema í baksýnisspegli
og hátalara í höfuðpúða ökumanns. Hægt er að gera bílinn
að fullkomnum hljómleikasal með Dolby Surround Pro Logic
hljómflutningskerfí með níu hátölurum.
VOLVO S80 FRUMSÝNDUR
Sunnudag kl. 13-16
VOLVO
brimborg
Bíldshöfða 6 - Sími 515 7000
ÖRUGGASTIKOSTURINN...
... GETUR LIKA VERIÐ MEST SPENNANDI