Morgunblaðið - 28.03.1999, Side 8
8 SUNNUDAGUR 28. MARZ 1999
MORGUNBLAÐIÐ
FRÉTTIR
FINNST ykkur þetta ekki vera hreint ógeð? Svona eru þessar gærur alltaf að gera!
Arekstur
tefur um-
ferðina
ÞRIGGJA bfla árekstur varð á
Kringlumýrarbraut á sjötta tíman-
um á fostudaginn. Myndaðist mikil
biðröð bfla á meðan lögreglan var
að greiða úr málunum, enda er
umferð alla jafna geysimikil á
þessum tíma. Engin slys urðu á
fólki.
{ HMj 2
Morgunblaðið/Golli
Magnari: 2 x 100W RMS • Utvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing •
Þriggja diska spilari • Hátalarar þrískiptir: 100W -17 sm bassi • Power Bass
RDS
Magnari: 2 x 100W RMS • Útvarp með 24 stöðva minni • Sound Morphing • RDS
Þriggja diska spllari • Hátalarar þríkiptir: 100W - 16 sm bassi • Power Bass
Þegar hljónteekl sklpta náll
Lágmúla 8 • Sími 533 2800
UMBOÐSMENN UM ALLT LAND
Starfshæfni og kröfur á 21. öld
Breytt starfs-
umhverfí
NYLEGA hélt
Hansína B. Ein-
arsdóttir - fyrir-
lestur um starfshæfni á
21. öld. I fyrirlestrinum
kom fram að vinnumark-
aðurinn gerir nú talsvert
aðrar kröfur til starfs-
manna framtíðarinnar
heldur en hefur þekkst.
Þannig verður t.d. ríkari
áhersla lögð á sveigjan-
leika í starfi, símenntun,
hópvinnu og að kjör
manna verði metin eftir
öðrum þáttum heldur
hingað til hefur þekkst.
Þetta málefni er forvitni-
legt fyrir flesta, ekki síst
þá sem hafa verið á
vinnumarkaðinum
nokkurn tíma. Hansína
B. Einarsdóttir var spurð
af hverju sveigjanleiki yrði svo
mikilvægur á vinnumarkaðinum
á 21. öldinni.
„Fyiir því eru margar ástæð-
ur. Viðskiptaumhverfi fyrirtækja
er að breytast, verkefni fyrir-
tækjanna breytast að sama skapi
sem þýðir að fastmótaðar stöður
í fyrirtækjum framtíðarinnar
verða að öllum líkindum ekki til.
Hver starfsmaður má eiga von á
því að glíma við áður óþekkt
verkefni við áður óþekktar að-
stæður.“
-Hvers vegna sýnist þróunin
verða íþessa átt?
„Fyrst og fremst vegna þess
að þau fyrirtæki sem hafa náð ár-
angri á síðustu árum eru svoköll-
uð þekkingarfyrirtæki. Þessi fyr-
irtæki eru háð því að starfsmenn-
irnir sjálfír séu að skapa þekk-
ingu sem tekur mið af tvennu
a.m.k., annars vegar því sem
markaðurinn segir og vill og hins
vegar því sem starfsfólk fyrir-
tækjanna sér að hægt er að nota
og selja. Dæmi um svona fyrir-
tæki eru þekkingarfyrirtæki sem
ekki voru til fyrir tuttugu árum
en eru gríðarlega öflug nú, eins
og t.d. Microsoft, OZ, íslensk
erfðagi-eining og Flaga. Það má
fara enn nær í svona dæmum þar
sem þekking og hugvit skapa
gríðariega fjármuni, þá getum
við horft á öll hugbúnaðarfyrir-
tækin, auglýsingaiðnaðinn, hönn-
un og síðast en ekki síst menn-
ingu og listir. Fyrirtæki eða
greinar þar sem þekking, sam-
starf og sveigjanleiki eru greini-
lega lykilþættir. Þegar ég segi að
sveigjanleikinn skipti gríðarlegu
máli þá á ég fyrst og fremst við
að það að fyrirtæki hafi á að
skipa öflugum hópi starfsmanna
sem eru fljótir að bregðast við
breytingum, koma auga á mögu-
leika á markaði og hafa þekk-
ingu, og aðstöðu til að bregðast
við og nota ný tækifæri."
- Hvers vegna ---------------
verður meiri þörf á sí-
menntun en nú er?
„Fyrst og fremst
vegna þess, eins og ég
hef komið inn á, að
störfin eru að breyt-
ast, innihald starfs er
líka að breytast, það þarf að
þjálfa fólk í allt öðrum þáttum,
svo sem eins og samstarfi,
sveigjanleika, upplýsingaleikni,
sjálfstæði í vinnubrögðum og
þannig mætti lengi telja. Að
sama skapi þarf líka að þjálfa
stjórnendur bæði hvað varðar
viðhoif og vinnubrögð. Þannig
má gera ráð fyrir því að mennt-
un eða það að afla sér nýrrar
Hansína B. Einarsdóttir
►Hansína B. Einarsdóttir er
fædd 1957 í Kópavogi. Hún lauk
stúdentsprófi frá Fjölbrautaskól-
anum við Ármúla 1981 og cand.
mag. gráðu í félagsfræðum frá
háskólanum í Ósló 1986. Cand.
polyt. gráðu frá sama háskóla
Iauk hún árið 1990 í afbrotafræði
og sama ár lauk hún námi í
stjórnun frá sama skóla. Hún
starfaði við rannsóknarverkefni
tengd afbrotafræði fram til árs-
ins 1993 en eftir það hefur hún
eingöngu starfað við stjórnun og
starfsþróunarmálefni og rekið
fyrirtækið Skref fyrir skref.
Hansfna á fjórtán ára gamlan
son, Einar Margeir Kristinsson.
þekkingar verði ævistarf. Gróf-
lega má segja að hjá hverjum
starfsmanni á vinnumarkaði
framtíðarinnar úreldist þekking
um einhvern ákveðinn hluta á
hverjum degi. Dæmi um slíkt
eru t.d. öll fyrirtæki sem eru að
vinna með upplýsingar. Það
koma nýjar upplýsingar, nýjar
rannsóknir, nýjar niðurstöður á
hverjum degi, slíkt kallar á nýjar
aðferðir, nýjar nálganir, jafnvel
ný viðhorf. Bara það að kunna að
leita að upplýsingum, nota upp-
lýsingarnar í eigin þágu og þágu
umhverfisins kostar þjálfun og
tfma. Símenntun er að vissu leyti
erfiðari í framkvæmd fyrir þá
sem ekki hafa átt kost á mikilli
skólagöngu heldur en fyrir þá
sem vanir eru að tileinka sér
nýja þekkingu og gera sér grein
fyrir mikilvægi símenntunar.“
- Eftir hverju telur þú að kjör
manna verði metin á vinnumark-
aði 21. aldar?
„Kjör eru flókið hugtak en
þær hefðbundnu leiðir sem við
höfum þekkt í gegnum beina
kjarasamninga, þar sem kaup og
kjör hafa verið ákveðin eftir föst-
um þáttum eins og menntun,
_________ starfsreynslu og
starfsaldri, eru að
breytast. Breyting-
amar eru fyrst og
fremst í þá veruna að
nú er verið að skoða
meira hæfni einstak-
linga út frá þáttum
eins og frumkvæði, sjálfstæði,
sveigjanleika, ábyrgð, hæfni til
að tileinka sér breytingar, svo
eitthvað sé nefnt. Þetta er mjög
flókin aðferð og almennt hefur
íslenskur vinnumarkaður ekki
mikla reynslu í því að nota slík
matskerfi. Með öðrum orðum
verða kjör starfsmanna metin út
frá miklu fleiri þáttum heldur en
hingað til hefur þekkst.“
Störfin eru
að breytast,
innihald starfs
er líka að
breytast.